Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021

Fullbólusettir miklu líklegri til að bera veiruna segir samgöngumálaráðherra Breta!

transportsecrÍ veirufréttum er þetta helst:

Samgöngumálaráðherra Breta, Grant Shapps, segir hér í sjónvarpsviðtali varðandi ferðalög Breta, að fullbólusettir séu líklegri til að fá/bera kórónuveiruna á milli. Hann virðist hika aðeins, segir: "We know that double vaccinated, fully vaccinated people are much more likely to get...to carry the coronavirus..."

Þetta hlýtur að vera saga til næsta bæjar. Og sóttvarnalæknir Íslands að mæla með því að þeir óbólusettu haldi sig heima. Bólusetta fólkið með nýju vottorðin sín að ferðast til útlanda þar sem mikið er af óbólusettu fólki, berandi smitin á milli landa. An effective but imperfect vaccine!

BidendoorNæsta áhugaverða veirufrétt er frá Bandaríkjunum þar sem forsetinn segir að nú þurfi að herða bólusetningarherferðina og fara að banka upp á hjá fólki með sprauturnar. Svona eins og trúboðar eða pólitíkusar í atkvæðasmölun. Og í Bandaríkjunum af öllum stöðum sem áttu að hafa farið hvað verst út úr faraldrinum. Ætla mætti að fólk kæmi sjálfviljugt, hlaupandi í sprauturnar. (Viðskiptahugmynd; senda Íslendinga út til að hjálpa, þeir kunna að smala.)

newzelandÞar næsta veirufrétt er frá Nýja Sjálandi og ekki ólík þeirri frá Bandaríkjunum. Viðbragðsráðherrann (Response minister), Chris Hipkins, segir að mannleg hegðun sé bara þannig að það gæti þurft að leita að fólki til að fá það í sprautu.

Ef við tengjum þessar þrjár fréttir saman, þá er sem sagt planið að leita að fólki, banka upp á hjá því og fá það til að taka bóluefni sem er á rannsóknarstigi til a.m.k. ársins 2023, og gerir það að verkum að viðkomandi er miklu líklegri til að fá/bera drápsveiruna á milli. Í bónus er möguleiki á hálf-ömurlegum aukaverkunum."

Fullbólusettir á Íslandi eru líka að leggjast inn á sjúkrahús og með versta Covid tilfellið í síðustu bylgju. Lesa hér.

 

 


mbl.is Covid-19 hættuminni börnum en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Ef ég sé eftir einhverju í þessu lífi er það að hafa látið sprauta í mig þessum viðbjóði!"

Í hópnum Kórónuveiran Covid-19 er fjallað um ýmislegt tengt Covid og undanfarið töluvert mikið um hin ýmsu veikindi eftir sprauturnar. Ég fékk leyfi til að skrifa um þessar frásagnir, nokkuð sem fjölmiðlar hafa ekki nokkurn áhuga á, eins æstir og þeir voru í að fjalla um Covid veikindin.  

Í hópnum skrifar til dæmis Hrafnhildur Birgisdóttir:

„Ég upplifði kulda af fyrstu Pfizer sprautunni en af seinni fann ég mikið fyrir máttleysi og mikilli þreyttu u.þ.b þremur vikum síðar. Ef ég hef séð eftir einhverju í þessu lífi þá er það að hafa látið sprauta þessum viðbjóði í líkama minn. Ég er að bíða eftir mínum lækni sem kemur úr sumarfríi um miðjan júlí. Ég er betri í dag en þetta kemur allt yfir mig á kvöldin sem fer minnkandi sem betur fer. Ef þú ert með góðan lækni, láttu hann athuga."

Sú sem hóf umræðuna heitir Helga Kristín Einarsdóttir:

Mig langar að forvitnast aðeins varðandi aukaverkanir af Pfizer bóluefninu. Er einhver sem upplifði skrítna tilfinningu í nefkoki, sár verkur frá stungu með leiðni uppi í eyra út í kjálka og upp í höfuð og doða tilfinningu út í fingurgóma fyrst á eftir fyrri bólusetningu. Allt gekk svo sem fljótt til baka nema sár verkur í kjálkanum. Núna á 5. degi eftir bólusetningu er ég viðþolslaus af verkjum í bakinu með máttleysi og doða í útlimum, svima og einbeitingarskort og miklar kvalir í maga. Nú spyr ég: Kannast einhver við svona einkenni eftir bólusetningu við COVID eða ætli þetta sé einhver umgangapest?" Hún bætti við:
„Ég er ekki kvartsár kona og held alltaf að nú sé þetta yfirstaðið svona um miðjan dag en svo hellist þetta yfir mig af miklu afli aftur seinnipartinn þar til um miðjan næsta dag. Mjög sérstakt og virkilega óþægilegt. Ég er ekki vön svona magakvölum eða höfuðverk og slappleika alls ekki. En núna."

hrafnhildurmynd
Ég spurði Hrafnhildi (sem er á myndinni) hvers vegna hún hefði farið í sprautuna. Hún sagðist hafa upplifað mikla pressu í þjóðfélaginu, hlustað á umfjöllun lækna og sóttvarnarlæknis, og hafi trúað því að hún myndi ekki fá neinar aukaverkanir. Hún bætti því við að hún hefði alltaf verið hraust, æft mikið í World Class en ekki farið í tvær vikur vegna þróttleysis.
 
Ég spurði hana líka hvort hún væri búin að tilkynna aukaverkanirnar til Lyfjastofnunar:

„Nei, hver hlustar á okkur? Treysti ekki þessu batteríi. Því miður."

Hér má lesa fleiri frásagnir Íslendinga eftir sprauturnar og hér eru lýsingar kvenna sem eru að glíma við vandamál tengd tíðarhringnum. Þetta er allt tekið úr fjölmennum opnum hópum og því ætti að vera í lagi að endurbirta efnið. Enda varðar þetta almenning þó að læknar, yfirvöld og Lyfjastofnun þegi.
 
Þöggunin í kringum veikindin eftir sprauturnar er mikil og alvarleg. Hér heima hafa borist yfir 2000 tilkynningar og þar af um 130 alvarlegar sem teljast samkvæmt skilgreiningu Lyfjastofnunar vera lífshættuleg tilvik eða dauði. Og það sama á við um allan heim. Sjáið þetta myndband sem fer nú eins og eldur um sinu þar sem Bandaríkjamenn kalla á hjálp. "We want to be heard."
 
wanttobeheard

 

Er endaröðin betri en aðrar raðir - röð valdamanna?

Víðir Reyn­is­son var kampa­kát­ur og ný­kom­inn af há­lend­inu þegar mbl.is náði tali af hon­um í Jans­sen-röðinni fyr­ir utan Laug­ar­dals­höll í dag."

Víðir var sem sagt að taka þátt í nýjustu gervilæknavísindatilrauninni, að fá bóluefni við sjúkdómi sem hann hefur nýlega sigrast á. Hann vonast m.a.s. til þess að með sprautunni fái hann bragð-og lyktarskynið til baka (ca. sex og hálfum mánuðum síðar, flestir endurheimta skynið nokkrum vikum síðar, 21,6 dagur er meðaltalið). Þannig að næst þegar þið fáið inflúensu, þá er sniðugt að fara í flensusprautu á eftir. Eða þegar börnin fá hlaupabólu, bóka þá hlaupabólusprautu skömmu síðar.

Það var verið að ræða það í heita pottinum í gærmorgun hvort endaröðin væri fyrir valdafólkið og hvort það sé ekki örugglega líka bóluefnaröð. Ekki eitt þeirra hefur setið annars staðar. Hér koma myndirnar, tvær af Þórólfi, fyrri og síðari skammtur, Víðir, Svanhildur, Katrín, Guðni forseti. 

Hvað með alla hina ráðherrana, alþingismenn og fyrrum forseta?

víðirþórólfurfyrriþórólfurseinniAlmaguðnikatrinsvandisbolus


mbl.is Víðir fékk Janssen og þríeykið fullbólusett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullbólusettur á sjúkrahúsi - bóluefnið að slá í gegn eða þannig!

Sá sem ligg­ur á Land­spít­ala vegna Covid-19 er með virkt kór­ónu­veiru­smit. Hann er ekki á gjör­gæslu held­ur á al­mennri legu­deild. Þetta kem­ur fram í svari við fyr­ir­spurn mbl.is. Ann­ar ein­stak­ling­ur, sem nú er út­skrifaður, var lagður inn á Land­spít­ala vegna Covid-19 í síðustu viku." 

Nú þegar um 90% Íslendinga yfir 16 ára aldri hafa fengið a.m.k. einn skammt af lekandi bóluefni mætti gjarnan fylgja öllum svona fréttum hvort viðkomandi hafi fengið bóluefnið eða ekki. Það ættu a.m.k. að vera ca. 90% líkur á að umræddir sjúklingar hafi fengið einn skammt. Við fáum nánast daglegar fréttir af því að þessi efni komi ekki í veg fyrir smit. Nú þurfum við líka að vita hvort þau komi kannski ekki í veg fyrir veikindi heldur (fjölmörg dæmi þess erlendis).
covideftirjanssen

Sendi snöggvast póst á smitsjúkdómadeildina til að spyrjast fyrir hvort veita megi þessar upplýsingar. Það gera alvöru fréttamenn á farsóttatímum! Svarið frá farsóttadeildinni er komið; annar þeirra var óbólusettur, hinn fullbólusettur. Báðir útskrifaðir, gott að heyra. 
„Sæl
Annar sjúklingurinn var ekki bólusettur- sá útskrifaðist um helgina. Hinn var fullbólusettur og útskrifaðist í gær.
Fh Farsóttanefndar Landspítala."

Mælið þið enn með þessu bóluefni? Og sjá þetta dæmi á myndinni (smella til að sjá betur). Sem sagt einn fullbólusettur lagður inn á sjúkrahús með Covid og svo versta Covid tilfellið í síðustu bylgju eftir Janssen efnið. Eina samsærið sem virðist vera  gangi er samsæri gegn fólkinu, það er blekkt og haft af fíflum. Bólusettir með þessum nýju líftæknilyfjunum geta bæði smitast og veikst. Og þessi fullbólusetta íslensk/bandaríska hjúkrunarkona var sett í einangrun og komst ekki aftur heim til sín og bólusettir ættingjar hennar sendir í sóttkví.

Hafnarfjarðarbrandari: Hafið þið heyrt um Hafnfirðinginn sem fór í Laugardalshöllina og fékk sér bóluefni (tvo skammta) sem virkar hvorki gegn smiti né veikindum með tilheyrandi aukaverkunum?

 

Bólusettu þig fyrir lífstíð!

Ef þið viljið bólusetja ykkur 100% við Covid fyrir lífstíð,  hlustið þá á Mike Yeadon vísindamenn með meiru sem starfaði hjá Pfizer í yfir 20 ár og gegndi þar yfirmannsstöðu. Hann fjallar um lygina með Covid bóluefnin, PCR-prófin, rotnu stjórnmálamennina sem ætti að handtaka, ljúgandi BBC, tekur alveg fyrir að einkennalausir geti smitað. "It´s utter non-sense...rubbish"! Ekki er ástæða til að óttast sjúkdóminn sem er mjög læknanlegur, það eina sem er að óttast eru ríkisstjórnir heims og hlýðni fólksins!

Yeadon segir sem sagt Covid vera mjög læknanlegan sjúkdóm en lækningu og upplýsingum þar um sé haldið frá fólkinu, læknar ljúga og "antibody dependent enhancement" (ofurmögnun ónæmissvars) er raunverulegt áhyggjuefni meðal þeirra bólusettu. Hendið grímunum í ruslið segir vísindamaðurinn og látið ekki þessa idiota segja ykkur að það þurfi að bólusetja börnin til að þau smiti ekki ömmu, amma er komin með bóluefnið (nema tengdó á Sóltúni, passa að hleypa ekki krökkunum nærri henni). Yeadon segir bóluefnin vera skaðleg og að markmiðið með heilsuvegabréfunum séu stafræn skilríki. Og þetta með öll afbrigðin, þau eru svo til nákvæmlega eins! Hér er myndbandið.
yeadonvariants

Gula stjarnan - óbólusettir lokaðir inni og metfjöldi sjúkraflutninga

gulastjarnarHeil­brigðisráðherra Þýska­lands lofaði því í dag að fólk sem er bólu­sett gegn Covid-19 muni ekki þurfa að sæta út­göngu­banni eða ströng­um sótt­varn­a­regl­um aft­ur."

Þeir kunna þetta Þjóðverjarnir, en mér skilst að hinn almenni Þjóðverji sé ekki mjög heitur fyrir bólusetningunum. Fullbólusettir eru aðeins 37% eða nánast helmingi færri en viljugu Íslendingarnir. Ef ég þekki Þjóðverjana rétt, þá munu þeir ekki láta bjóða sér þetta.

Það er ekkert sem skýrir aðgerðir ríkisstjórna heims betur en þessi mynd. Skoðið hana vel og lengi.
labratx

Það glittir líka í gulu stjörnuna hjá íslenskum yfirvöldum. Í nýrri reglugerð segir að þeir sem ekki eru bólusettir þurfi að fara í sóttkví við komuna til landsins, ekki hinir. Að loka heilbrigt fólk inni í sóttkví stenst ekki stjórnarskrá og því best að hunsa reglurnar og láta reyna á málið fyrir dómstólum eins og með sóttkvíarfangelsið Foss. Það versta sem fólk getur gert er að hlýða þessum ólögum.

Fullbólusetta hjúkrunarkonan í einangrun

Fyrir nokkrum dögum skrifaði ég um fullbólusetta íslensk/bandaríska hjúkrunarkonu sem komst ekki aftur heim til Bandaríkjanna þar sem hún greindist með veiruna áður og dúsir nú í einangrun, einkennalaus en missti lyktarskynið. Nokkrir bólusettir ættingjar konunnar sem hittu hana voru sendir í sóttkví. Það var ekki einu sinni Delta afbrigðið sem hún var með heldur gamla Alpha (nýja nafnið yfir Wuhan afbrigðið). Frábært bóluefni eða þannig. Það fær mest eina (gula) stjörnu af tíu!

Metfjöldi sjúkraflutninga á sumarkvöldi í miðri viku

Það voru 147 útköll sjúkraflutningabíla síðasta sólarhring, þetta er bara rugl" sagði stjórinn. Hvers vegna spurði fréttamaðurinn ekki hver ástæðan gæti verið á sumarkvöldi í miðri viku? Er það blóðtappafaraldurinn mikli sem má ekki tala um? Fór órannsakaða tilraunablandan í Laugardalshöllinni í gær nokkuð illa í mannskapinn? Svona eitthvað?


mbl.is Ekkert útgöngubann fyrir bólusetta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sláandi upplýsingar um tengsl fósturláta og mRNA bóluefna við Covid

miscarriageHelgi Örn Viggósson tók þennan pistil saman. Í þessu sambandi mætti líka vekja athygli á fjölda tilkynninga sem hafa borist vegna breytinga á blæðingum kvenna. Einnig í Noregi og Bretlandi. Hvers vegna breytast þær eftir bólusetningu? Miklir verkir og engar blæðingar eða ofsalegar blæðingar hér og þar....? Hér er samantekt á lýsingum íslenskra kvenna um þessar sérstöku aukaverkanir. Er verið að reyna gelda okkur" er spurt? Hvers vegna ráðlagði landlæknir fyrst bólusetningu á meðgöngu en breytti svo um stefnu? Skv. upplýsingum neðarlega á þessari síðu Lyfjastofnunar hafa borist þrjár tilkynningar um aukaverkanir tengdar meðgöngu.

Enn er logið í ritrýndri grein í New England Journal of Medicine (NEJM)

Í nýbirtri grein í NEJM (sem ekki er enn búið að draga til baka eða leiðrétta), er reynt að sýna fram á að engin "augljós" hætta sé á að sprauta ófrískar konur með mRNA efnunum. Í niðurlagi segir:
"Conclusions: Preliminary findings did not show OBVIOUS safety signals among pregnant persons who received mRNA Covid-19 vaccines..." (áherslubreyting er mín - en þetta orðalag fékk mig til að skoða gögnin.) Greinina má finna hér:
Þegar gögnin eru skoðuð, kemur í ljós að 82% þungaðra "persóna" sem ekki eru komnar á loka þriðjung meðgöngunnar, misstu fóstrið skömmu eftir að hafa verið sprautaðar með mRNA efnunum. Tölurnar sem notast er við í greininni sem bakgrunnstilfelli eiga við um fyrsta þriðjung meðgöngu.

Skv. greininni voru skoðaðar 829 þunganir sem var lokið, þar af fengu 700 sprautu í síðasta þriðjungi meðgöngunnar en 129 sem voru skemmra á veg komnar. Af þessum 129 misstu 104 fóstrið eða 82%, allt að 8x þess sem vænta má. Ef þetta eru ekki AUGLJÓS hættumerki, þá veit ég ekki hver þau ættu að vera!
 
Ég las athugasemd frá lækni sem sendi ritstjóra NEJM bréf með gagnrýni á rannsóknina en nú er búið að eyða því og þær safnvefsíður sem áttu snapshot af því gátu ekki miðlað því, eins og t.d. þessi hér:
Sami læknir er núna kominn með athugasemd sem birt er á NEJM, sem hljóðar á allt annan veg heldur en upphaflega bréfið, sem gefur til kynna að ritstjórn NEJM hefur einbeittan afbrotavilja og náð að "siða til" bréfritarann.

Við smá leit fann ég ágæta umfjöllun um þetta hér:
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stóru læknisfræðitímiritin eru uppvís af svona vinnubrögðum frá því að faraldurinn byrjaði. Bæði Lancet og NEJM tóku þátt í stríði lyfjafyrirtækjanna gegn lyfinu sem má ekki nefna hérna á Facebook og urðu að taka þær til baka þegar upp um svindlið komst og bæði hafa þau neitað að birta rannsóknir sem hafa komist að niðurstöðu sem þjónar ekki hagsmunum þeirra sem stjórna faraldrinum, t.d. stóra danska grímurannsóknin sem sýndi að grímur gerðu ekkert gagn og vandaðar meta-greiningar um óæskileg ódýr lyf, sem hafa sýnt stórkostlegan árangur, betri en allt annað sem reynt hefur verið.

Haft var eftir Richard Horton ritstjóra Lancet eftirfarandi í kjölfar þess að upp um stóra glæpinn komst í júní í fyrra:
“Now we are not going to be able to, basically, if this continues, publish any more clinical research data, because the pharmaceutical companies are so financially powerful today and are able to use such methodologies, as to have us accept papers which are apparently methodologically perfect but which, in reality, manage to conclude what they want to conclude… This is very, very serious!"

Þarna þykist hann ekkert hafa vitað og hann sé bara fórnarlamb stóru lyfjafyrirtækjanna, sem víla engu fyrir sér til að ná sínu fram. Hann heldur líklega að við trúum því að hann sé svona vitlaus.

Í þessari grein er viðtal við bandaríska lækninn Peter McCullough sem segir að barnshafandi kona eigi ALDREI að taka þessi bóluefni. Hann tekur nákvæmlega sama dæmið og Helgi fann í rannsóknargögnunum, 82% kvenna sem tóku efnin á fyrri part meðgöngu misstu fóstrið. Byrjar ca. á mín 24.

Uppfært: Fólk hefur dregið í efa þessar niðurstöður því tölurnar sjást ekki við fyrstu sýn. Helgi Örn útskýrir það svona:

Ég lái ykkur ekki fyrir að geta ekki séð þessar niðurstöður við lestur greinarinnar, því það er ekki ætlast til þess. Þú verður að lesa gögnin vandlega til að sjá þetta. Kveikjan að þessari færslu minni var einmitt að benda á hversu óheiðarlegir þeir eru hjá New England Journal of Medicine, því ef þú lest aðeins samantektina (abstract/conclusion), sem flestir láta sér nægja, þá er látið líta út fyrir að engin "augljós" hættumerki séu til staðar. Því miður er þessi grein ekki eina dæmið um vinnubrögð af þessu tagi hjá stóru læknisfræðiritunum í faraldrinum, þau eru alltof mörg. Ef þú skoðar töflu nr. 4, þá kemur eftirfarandi fram neðanmáls:
"A total of 700 participants (84.6%) received their first eligible dose in the third trimester."
Sem sagt af þeim 829 loknu meðgöngum sem voru til skoðunar í þessari stúdíu voru 700 á síðasta þriðjungi meðgöngunnar, sem þýðir að 129 voru komnar skemur á veg, á fyrsta eða öðrum þriðjungi. Í töflunni hins vegar er sagt "Spontaneous abortion: <20 wk" (fósturlát innan 20 vikna meðgöngu) að 104 fósturlát af 829 eða 12,6%. Þarna hefði átt að taka út þessar 700, sem voru komnar lengra 28 vikur, sem þýðir 104/129 eða 82% af þeim sem voru komnar innan við 20 vikur leið misstu fóstrið. 82% er augljóst hættumerki!"


Hér er bréf frá kanadískum lækni til ritstjóra NEJM, þar sem bent er á þetta ásamt hvernig logið er til um bakgrunntilfellin í greininni.
editor

Heilaþvottur leikskólabarna í Ísrael - sprautuleikur!

israelleikurÞetta myndband er tekið á leikskóla í Ísrael þar sem í gangi er leikur. Leikskólakennarar ganga um og klukka krakkana með sprautu og sá klukkaði tekur þá niður grímuna.

Magnað dæmi um heilaþvott barna sem stendur til að gera IV fasa rannsókn á með bóluefnið frá Pfizer. Ísraelar hafa örugglega fengið aðstoð frá Xi Jinping með svona skólaleiki.

Ísrael gerði samning við Pfizer um að vera „fyrirmyndaland" lyfarisans og um leið rannsóknarsetur. Því eru Ísraelar komnir lengra en margar aðrar þjóðir með bólusetningar. En þó ekki mikið lengra en Ísland sem einmitt vonaðist til að fá samskonar samning sem átti að ganga út á að Ísland yrði rann­sókn­ar­setur fyrir fasa IV rann­sókn þar sem að stærsti hluti þjóð­ar­innar yrði bólu­settur á stuttum tíma.

Var það ekki einmitt gert hér heima þó að fleiri bóluefni en Pfizer hafi verið notuð?  Erum við rannsóknarsetur án þess að það sé formlega vitað? Hvers vegna vill Ingileif Jónsdóttir hjá Íslenskri Erfðgreiningu endilega bólusetja unglingana (12-15 ára), þó svo að verið sé að rannsaka betur tengsl lyfjanna við hjartavöðvabólgu í ungu fólki? FDA hefur meira að segja sett viðvörun á Pfizer og Moderna vegna tengsla við þann alvarlega kvilla. Hvað er hún að skipta sér af bólusetningum Íslendinga, starfandi hjá erlendu einkafyrirtæki (ÍE/Amgen er 100% í eigu erlendra aðila). Er hún einhver ráðgjafi íslenskra stjórnvalda? Og hvað var Kári Stefánsson að skipta sér af? Hvað vissi hann um að samfélagið yrði á hliðinni í tvö ár. Vissi hann að bólusetja ætti mannskapinn í a.m.k. tvö ár með 1,4 milljónum skömmtum?

En aftur að leikskólakrökkunum og sprautuleiknum í Ísrael. Stjórnvöld um allan heim virðast þurfa að taka þátt í heilaþvottinum að einhverju leyti. Hér heima var grunnskólabörnum nýlega sýnd áróðursmynd um bólusetningar. Og ástæðan er auðvitað sú að yfirvofandi er bólusetning krakkanna með Pfizer efninu. Þá er betra að koma réttum skilaboðum inn í hausinn á þeim þrátt fyrir að þeim stafi ekki hætta af þeim sjúkdómi. 

Þessi mynd neðar útskýrir hugsunarhátt lyfjafyrirtækjanna og þjóna þeirra hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni sem segja yfirvöldum heims hvernig eigi að glíma við faraldur. Við sáum aðra útfærslu af henni hjá Sjálfstæðisflokknum, flokki frjálshyggjunnar þar sem þetta var kannski ekki sagt með berum orðum (líka neðar). 
labratxxd


Alsælar tilraunarottur - hvar er sjálfsvirðingin?

mice„Þetta reddaðist bara mjög vel,“ seg­ir Ragn­heiður Ósk Er­lends­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­un­ar hjá Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins, en skammt­ar af AstraZeneca bólu­efn­inu kláruðust í dag áður en bólu­setn­ingu var lokið og því var fólki boðið upp á Pfizer bólu­efnið í seinni skammt...Það voru svona 99,9% sem fannst þetta bara enn betra að fá Pfizer í seinni skammt."

Bara alsælt með að láta nota sig í tilraun lyfjafyrirtækjanna. Hvar er sjálfsvirðingin?

Mix&match aðferðin var aldrei rannsökuð en Íslendingar alsælir með að prófa þetta skv. yfirhjúkkunni.

Búið að hálfbólusetja mannskapinn með Astra en sorry allt búið en má ekki bjóða þér aðra tegund í staðinn, það hefur ekki verið rannsakað hvort og hvernig það virkar, en okkur vantar þátttakendur sem eru til í hvað sem er, bara til að klára rannsóknina okkar. (Næst á að bjóða Jansen þegum svona blöndu líka, strax komið fram að þetta með einn skammt var bara blöff).

Í Fréttablaðinu segir reyndar að það hafi orðið uppnám þegar ljóst var að Astra væri búið. Sem sagt, ekki allir alsælir! Þannig að fleiri voru boðaðir en skammtarnir sem voru til? Var það kannski plottið svo hægt væri að prófa blönduna. Eða birgðabókhaldið í ólagi? 

Flestir halda að bólusetningu þurfi til að komast til útlanda en það komast allir til útlanda, líka óbólusettir, en þeir vita að verið er að ljúga því að þess þurfi. Partur af söluáróðrinum.  Á Tenerife sem dæmi þarftu hvorki að sýna neikvætt próf eða bólusetningavottorð, bara labbar inn í landið. Þið fáið að fara til útlanda ef þið takið tilraunabóluefnið!":
labratx

 



Og þetta hefur fyrrum yfirmaður og vísindamaður með meiru hjá Pfizer að segja um nýju afbrigðin sem eiga að drepa fullt af fólki á næstunni og því þurfi að bólusetja unga fólkið og eldra fólkið þarf meira og meira.
yeadonvariants


mbl.is „Enn betra að fá Pfizer í seinni skammt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn betur sett með náttúrulega sýkingu heldur en bóluefnið segir ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar

The Times og Telegraph segja frá því að öruggara væri fyrir börn og unglinga að sýkjast náttúrulega af Covid heldur en að fá bóluefnið.

Þetta er mat Dr. Robert Dingwall eins af ráðgjöfum bresku ríkisstjórnarinnar í bólusetningum sem ákveður nú hvort bjóða eigi unglingum, 12- 18 ára, bóluefnið.

Dingwall segir að í ljósi þess hve væg veikindin eru hjá unglingum yrði bóluefnið að vera „einstaklega öruggt" til að valda ekki meiri skaða en gagni. 

Hann heldur því fram að núverandi bylgja meðal unga fólksins gæti í raun bundið endi á faraldurinn og hvatti fólk til að örvænta ekki vegna fjölda smita. Jafnfram sagði hann sjúkdóminn ekki lengur vera verulega dánarorsök og að vísindin ættu ekki miða að ódauðleika. 

Þetta er viðsnúningur og hér heima virðast menn ætla að minnsta kosti að hinkra með bólusetningu 12-15 ára (en búið að bjóða þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.) 16 - 18 ára hafa þegar flest fengið fyrsta skammtinn. Því miður var ætt áfram með þann hóp þrátt fyrir að rannsóknir um tengsl lyfjanna og hjartavöðvabólgu væru í gangi. Yfirvöld hér heima vissu vel af þeim rannsóknum en samt var bólusetningin keyrð áfram og nú hefur FDA (Lyfja-og matvælaeftirlit Bandaríkjanna) sett viðvörun á Pfizer og Moderna vegna tengsla við þann alvarlega kvilla. 

Ingileif hjá Íslenskri Erfðagreiningu er á öndverðum meiði, hún hefur ráðlagt stjórnvöldum að bólusetja unga fólkið og hafði engan áhuga á að bíða eftir frekari gögnum, bara gera þetta hratt!

Er Íslensk Erfðagreining og/eða HÍ að gera rannsókn á Íslendingum í tengslum við bóluefnin? Hvað fær fólk til að hvetja til þess að ungt fólk sem ekki er í hættu vegna sjúkdóms fái ófullreynd lyf á neyðarleyfi? Glæpsamlegt að mínu mati! 

 


mbl.is Pfizer ekki í boði fyrir óbólusetta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband