Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2021

Óbólusett spítalastarfsfólk - vita að erfitt er að gera bóluefni gegn kórónaveirum?

vaccine,,Eitt þeirra 26 kór­ónu­veiru­smita sem greinst hafa und­an­farna þrjá daga, inn­an­lands og við landa­mær­in, greind­ist hjá starfs­manni Land­spít­ala."

Enn koma fréttir af því að starfsfólk LSH sé óbólusett. Sá sem hefur skipulagt bólusetningar virðist vera alveg úti að aka. Er það sóttvarnarlæknir og / eða landlæknir? Eða Már Kristjánsson sem enn er ekki bólusettur (a.m.k. ekki komin frétt um það). Eða Kári Stefánsson?

Það hlýtur því að skrifast á sóttvarnar-og landlækni ef færa þarf spítalann á hættustig. Lyfjastofnun Evrópu er búin að gefa grænt ljós á AstraZeneca eftir hlé þannig að starfsfólk LSH getur fengið það efni og sýnt um leið hversu öruggt efnið er með því að taka það sjálft. Það gerði Boris Johnson og forsætisráðherra Ítalíu.

Hér er meira um óbólusetta starfsmenn LSH. Langfæstir bólusettir á smitstjúkdómadeild sem er mjög merkilegt. 

Ekki er ólíklegt að sérfræðingar og heilbrgiðisstarfsfólk viti að erfitt er að koma með bóluefni gegn kórónaveirum sem hafa fylgt okkur í áratugi.

"One of the problems with corona vaccines in the past has been that when the immune response does cross over to where the virus-infected cells are it actually increases the pathology rather than reducing it," Professor Frazer said.

"So that immunisation with SARS corona vaccine caused, in animals, inflammation in the lungs which would not otherwise have been there if the vaccine had not been given."


mbl.is Starfsmaður Landspítalans með Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungar konur eru ekki í áhættu vegna Covid

,,Til skoðunar er að af­marka bet­ur þann hóp sem get­ur fengið bólu­efni AstraZeneca gegn Covid-19 hér­lend­is. Blóðsega­vanda­mál hafa helst komið upp hjá ung­um kon­um, yngri en 55 ára, eft­ir bólu­setn­ingu með efn­inu. Því get­ur verið að bólu­efnið verði frek­ar gefið eldri kon­um og karl­mönn­um, ef í ljós kem­ur að þeir hóp­ar séu ekki í áhættu."

Ef í ljós kemur að þeir hópar séu ekki í áhættu? Hefur það verið athugað hingað til? Forstjóri Grundar og annarra hjúkrunarheimila hafa hvatt starfsfólk niður í 18 ára til að taka lyfin. Gísli forstjóri tekur þó fram að hann sé ,,allsendis ómenntaður í heilbrigðisfræðum;" Fór hann sjálfur í bólusetningu? Eða hvatti bara aðra til þess?

Bólusetning starfsmanna
Þessa dagana er að hefjast bólusetning allra starfsmanna Grundarheimilanna.  Ánægjulegt í alla staði og ber að þakka fyrir af heilum hug.  Bóluefnið mun hafa fulla virkni þegar seinni sprautan er gefin í maí mánuði en virknin er eftir fyrstu sprautu engu að síður um það bil 70%.  Þessi bólusetningarhrina innifelur í sér eins og áður segir, alla starfsmenn heimilanna þriggja sem eru fæddir frá 1957 – 2002.  Eldri en 65 ára fá annað bóluefni síðar og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins áttaði sig ekki á því að yngri en fæddir 2002 væru í vinnu hjá okkur, og þeir fá því heldur ekki boð um bólusetningu.  Það verður vonandi fljótlega.
Við stjórnendur Grundarheimilanna mælum eindregið með því að allir fari í bólusetningu og hjálpist þannig að við útrýmingu veirunnar í okkar góða samfélagi.  Ef einhver getur ekki eða kýs að fara ekki í bólusetningu (enginn skyldaður í það) þá er viðkomandi beðinn um að nota andlitsgrímu þangað til að faraldurinn verður yfirstaðinn, sem verður vonandi í byrjun næsta vetrar, ef til vill síðar.
Ef einhver starfsmaður efast um að hann megi, þá oftast vegna einhverra heilsutengdra mála, fara í bólusetningu þá er eðlilegast að ræða það við starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, þau vita allt um málið.  Það gæti misskilist ef ég, allsendis ómenntaður maðurinn í heilbrigðisfræðum, færi að úttala mig um það allt saman.
Ítreka þakkir mínar til þeirra sem stjórna þessum málaflokki og aðgerðum þeirra við útvegun á bóluefni sem mér sýnist geta leitt til þess að sumarið verði okkur barasta nokkuð hagstætt.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna


mbl.is Bóluefnið mögulega óheppilegast fyrir ungar konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhlýðinn forseti Tanzaníu látinn

tansaniaHinn 61 árs gamli forseti Tanzaniu, John Ma­gu­fuli, er látinn. Hann hefur helst komist í fréttir undanfarið fyrir að segja frá því að til dæmis greindist gömul geit, papaya ávöxtur o.fl. með jákvætt Covid próf. Eins virðist hann hafa verið tregur til að kaupa bóluefni fyrir þjóð sína:
 
“You should stand firm. Vaccinations are dangerous. If the White man was able to come up with vaccinations, he should have found a vaccination for AIDS by now; he would have found a vaccination [for] tuberculosis by now; he would have found a vaccination for malaria by now; he would have found a vaccination for cancer by now”, he said at the end of January, 2021."

Við forsetaembættinu tekur konan Samia Suluhu. Hún verður án efa hlýðnari en Magufuli. Hana er að finna á síðu World Economic Forum (WEF). En WEF var eitt þeirra samtaka sem stóðu fyrir heimsfaraldursæfingu í New York í október 2019, Event 201, nokkrum vikum áður en faraldurinn hófst í Wuhan, Kína.

Það verður fróðlegt að sjá framhaldið, byrjar hún á því að kaupa tilraunabóluefnið sem flest þarf að flytja í 60-90 gráðu frosti og aðeins má vera í kæli í nokkra sólarhringa eftir að það er tekið úr frosti. Eftir x margar klukkustundir eru lyfin ónýt og lífshættuleg. 

Ég segi bara eins og Lyfjastofnun með tilraunalyfin og aukaverkanirnar, það eru engin orsakatengsl þarna á milli!

 


Enn verið að leita að þeim "seka" er lak því að "tengdó" hafi ekki fengið bóluefnið!

oldlivesHelga Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur skrifar á facebook (myndin fengin að láni í opinni færslu Kára Stefánssonar):  · 

,,Jón og séra Jón! 
Í morgun fékk ég merkilegt símtal frá deildarstjóra í Sóltúni. Hún fékk það verkefni að hringja í mig og spyrja hvort að ég vissi nafnið á þeim sem hefði lekið út upplýsingum um að; Alma landlæknir (og hennar maður) hefðu bannað að tengdamóðir hennar yrði bólusett. Það er mikil rannsóknarvinna í gangi til að finna hinn seka. Að Alma fylgi ekki sínum eigin ráðum til þjóðarinnar, finnst mér einkennilegt. - Og forvitnilegt að vita af hverju hún vilji halda ástæðunni leyndri. Ég ætla ekki að giska á ástæðu þess að hún vilji ekki bólusetja tengdó; en giska þó á að sennilega eigi ástæðan við um þúsundir annarra aldraðra. . . sem fá því miður ekki sömu upplýsingar og vernd. Ég spurði um ástæðu þess að hringt væri í mig. Svar: „Það er leitað á netinu. . .“ og mér m.a. sagt að unglingar væru svo klárir að finna út úr hlutum. Ég hef póstað mínum skoðunum á fb um covidfárið, og mynd fannst af mér með hjúkrunarfræðingi á Sóltúni - sem er algjörlega saklaus af fyrrnefndu trúnaðarbroti. "Ef ég hefði nafn, þá myndi ég þegja eins og steinn um það. Þetta lyktar illa af pólitík“ svaraði ég. Ítrekað troða yfirvöld í almenning að hann sé hættlegur lögbrjótur.
Heilbrigðisyfirvöld hafa brotið mörg lög og m.a. Evrópulög (The Counsil of Europe 2361) og Nuremberg lög - sem segja að gefa eigi hverjum aðila sem tekur þátt í tilraun, greinargóðar upplýsingar, ekki sé vitað um mögulegar aukaverkanir þar sem að um TILRAUN sé að ræða (Þessari tilraun lýkur í lok árs 2023.) - Og ekki má þvinga né hefta frelsi einstaklinga; hvorki pólitískt, félagslega, né á annan hátt (ferðafrelsi?) sem ekki vilja þiggja þessa bólusetningu. Yfirvöldum ber skylda til að upplýsa fólk og þar hafa þau brugðist illilega.
Deildarstjórinn sagði mér góðar fréttir; að enginn starfsmaður yrði rekinn fyrir að neita bólusetningu og enginn móralskur þrýstingur væri fyrir hendi. Þetta er á skjön við það sem ég hef heyrt frá starfsfólki af öðrum stofnunum og jafnvel heyrt að vistmönnum séu settar frelsisskorður ef þeir eru ekki bólusettir.
Ef þér finnst nóg komið af mannréttindabrotum; bendi ég á að ALÞJÓÐADAGUR gegn Covid „Rally For Freedom“ er næsta laugardag. Tilvalið að fá sér rölt á Austurvelli næsta laugardag kl 13 - og finna sig tengdan milljónum manna um allan heim sem velja frelsi! Þín rödd er mikilvæg - Þú færð það sem þú gefur! ðŸ’Å¡ 🍀

 


Hverjar eru líkurnar á að ungar konur veikist illa af Covid?

ungarkonur„Það er nátt­úru­lega þekkt að það eru aukn­ar lík­ur á blóðtappa við notk­un getnaðar­varn­arpillu. Það þarf að vega það og meta hjá þeim sem henni ávísa, hvort menn vilji taka þá áhættu eða ekki. Þannig er það með öll lyf." (Þórólfur Guðnason um AstraZeneca).

En hverjar eru líkurnar á að ungar konur sem margar hverjar voru hálfneyddar til að taka bóluefnið (starfsfólki hjúkrunarheimila o.fl. - sagt að hjálpa til við að útrýma veirunni) veikist illa af Covid? Var þetta vegið og metið og þá sérstaklega í ljósi þess að bóluefnið er enn á rannsóknarstigi? Nei varla. Og var sá möguleiki hafður í huga að bóluefni sem væri á tilraunastigi eins og þessi efni eru reyndar öll, gætu verið tekin úr umferð? Hver er staða þeirra þúsunda hér heima sem eru hálfbólusettir með AstraZeneca ef lyfið verður ekki tekið aftur í notkun? 

Enginn ungur Íslendingur hefur látist af Covid og fáir veikst alvarlega. Þessar bólusetningaráætlanir virðast vera keyrðar áfram af lobbýistum lyfjafyrirtækja og bóluefnasamningar íslenska ríkissins við framleiðendur eru leynilegir vegna "almannahagsmuna." Er unga fólkið á hjúkrunarheimilunum (ath. búið að verja gamla fólkið) í meiri áhættu en miðaldra læknar og hjúkrunarstarfsmenn á LSH þar sem alltaf eru að koma inn nýir sjúklingar? En skv. Má Kristjánssyni hafa fæstir starfsmenn sjúkdómadeildar spítalans verið bólusettir. Hvers vegna ekki?  Var nauðsynlegra að nýta bóluefnið fyrir 18 ára starfsfólk hjúkrunarheimila og 100 ára og eldri?

Hér er skilgreining WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á veikinni? Veiran getur verið hættuleg þeim eldri og veikari en ekki þeim ungu og heilbrigðu. Meðalaldur látinna hér á landi er 88 ára.

p.s. eru einhverjar getnaðarvarnapillur sem verið er að ávísa hér á landi, enn á rannsóknarstigi?


mbl.is „Bind miklar vonir við að þetta hafi gengið upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalifornía og Flórída - samanburður dauðsfalla vegna Covid-19

samanburðurMyndin sýnir samanburð dauðsfalla í Kaliforníu (svart) og Flórída (appelsínugult) vegna Covid. Aðgerðir í Kaliforníu hafa verið mun strangari en í Flórída. Í Kaliforníu hafa skólar verið meira eða minna lokaðir en ekki í Flórída. Í Kaliforníu hefur verið grímuskylda fyrir allt niður í tveggja ára aldur og samkomutakmarkanir miklu harðari.  Athugið að í Flórída búa einnig hlutfallslega fleiri eldri borgarar. Eru sóttvarnaraðgerðir pólitískar? Kalifornía er demókrataríki en Flórída repúblikanaríki. Grímuskylda virðist a.m.k. vera pólitísk ákvörðun. Þau 16 ríki sem hafa fellt hana niður eru repúblikanaríki.

ríki


Kalifornía og Flórída - samanburður dauðsfalla vegna Covid-19

samanburðurMyndin sýnir samanburð dauðsfalla í Kaliforníu (svart) og Flórída (appelsínugult) vegna C-19. Aðgerðir í Kaliforníu hafa verið mun strangari en í Flórída. Og athugið að í Flórída búa einnig hlutfallslega fleiri eldri borgarar. Samt sem áður er dánartíðni þar lægri. Heimild.


Upphaflega markmiðið

,,Það er lík­legt að ferðaþjón­ust­an fái ein­hvern byr í segl­in síðsum­ars og inn í haustið þegar bólu­setn­ing­ar bæði hér á landi og í ná­granna­lönd­um okk­ar verða orðnar al­menn­ari. Sum­arið í ár verður þó að öll­um lík­ind­um svipað og síðasta sum­ar þar sem lands­menn munu ferðast mikið inn­an­lands. Þetta seg­ir Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, iðnaðar- ferðamála- og ný­sköp­un­ar­ráðherra."

 

Uppaflega markmiðið var alltaf að verja gamla fólkið en nú þegar það er bólusett er komið nýtt markmið, hjarðónæmi eða veirufrítt land. Þetta með gamla fólkið var auðvitað þvæla, enda hefur ríkisstjónum heims oftast verið skítsama um gamalt fólk sbr. baráttu aldraðra (og öryrkja).


mbl.is „Annað stórt innanlandssumar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þetta snýst um vírus?

,,Hvorki er tekið við bólu­setn­ing­ar- né mót­efn­is­vott­orðum á landa­mær­um Íslands ef komuf­arþegi kem­ur frá ríki utan Schengen-sam­starfs­ins, en það er gert að til­mæl­um ráðherr­aráðs Evr­ópu­sam­bands­ins."

Og þetta snýst um veirur og hættur af þeim? Því fleiri sem eru bólusettir með tilraunalyfinu, þeim mun harðari aðgerðir. 

Annars var Holland að bætast í hóp þeirra sem stöðva noktun AstraZeneca? Tíu tilkynningar um möguleg tengsl við blóðtappa.

Hvernig skyldi þeim þúsundum hér heima líða með simpansabóluefnið í sér? Hálfbólusettir með lyfi sem hefur verið hætt að nota og mun varla koma aftur?

Hjúkrunarfræðingur hér á landi (ca. um fertugt) fékk blóðtappa eftir bólusetningu með AZ. Og Lyfjastofnun passar sig á því að nefna ekki hverjar alvarlegu aukaverkanirnar eru (gert í öðrum löndum, sjá t.d. VAERS). Lætur þær bara vera í öðrum lit í súluriti!! Þið getið ímyndað ykkur ef þarna stæði, andlát, blóðtappi, lömun, o.sfrv. 

https://www.lyfjastofnun.is/lyf/covid-19/aukaverkanatilkynningar-vegna-covid-19/


mbl.is Ekki allir bólusettir velkomnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sterkari veira, veikara ónæmiskerfi!

mass,,Alls liggja 200 einstaklingar á sjúkahúsum Noregs með Covid-19. Flest­ir þeirra eru á sex­tugs­aldri en einnig fjöl­marg­ir á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri. Yngstu sjúk­ling­arn­ir eru á þrítugs­aldri. Þeir sem hafa þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna Covid-19 í Nor­egi nú eru veik­ari en í fyrri bylgj­um."

Því fleiri sem eru bólusettir þeim mun meiri veikindi! Það verður fróðlegt af fylgjast með þessu hér heima, enda þjóðfélagið lítið og auðveldara að fylgjast með hverjir veikjast á næstunni. Verða það þeir sem hafa fengið í sig bóluefnið eða hinir?

Í ljósi þessara frétta er vert að skoða þetta mál. Ákall til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO).

Innganginn skrifar Helgi Örn Viggósson.

Sterkari veira, veikara ónæmiskerfi

Þetta er risastórt mál! Ég veit ekki hvernig ég get orðað það betur til að það fái þá athygli sem það verðskuldar en opið bréf Dr. Geert Vanden Bossche, PhD, DVM, til WHO lýsir skelfilegum afleiðingum sem öruggt er að sú bólusetningarherferð sem nú er í gangi kemur til með að valda. Hann er ekki með neinar tilgátur heldur hrein og bein vísindi sem ekki eru véfengd.
Við erum hér að tala um einn fremsta vísindamann heims á sviði hönnunar og þróunar á bóluefnum, maður sem leitt hefur þróunarstarf hjá nokkrum af stærstu lyfjafyrirtækjunum, stjórnað bóluefnaþróun hjá þýsku smitsjúkdóma rannsóknarstofnuninni (DZIF), leitt starf hjá GAVI og Bill and Melinda Gates Foundation. Hann gerir sér vel grein fyrir því að með bréfi sínu er hann að fórna eigin frama og arfleið, komast í ónáð hjá lyfjarisunum og að þeir munu á næstu dögum hefja stórkostlega mannorðsmorð herferð á honum eins og þeim er tamt og einum lagið.
Í hnotskurn þá erum við að tala um að núverandi stefna kemur til með að valda því að meðfædda ónæmiskerfi bólusettra verði óvirkt gagnvart nýjum afbrigðum af kórónuveirum, helsta vörn þeirra sem ekki eru í áhættuhópum hingað til, sem kemur til með að stuðla að því að veiran sem flestum er skaðlaus í dag gæti breyst í stjórnlaust skrímsli.
Og hér er ágætt viðtal við hann, þar sem hann fer yfir þetta með nokkuð skýrum hætti:

 


mbl.is Innlögnum fjölgar hratt í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband