Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2021

Heilbrigðisráðherra Ástralíu útskrifaður af sjúkrahúsi

huntEins og helstu fjölmiðlar hér heima greindu nýlega frá var heilbrigðisráðherra Ástralíu, Greg Hunt, fluttur á sjúkrahús daginn eftir að hann fékk tilraunabóluefnið AstraZeneca.

Hann tók bóluefnið til að hvetja Ástrala sem kunna að vera hikandi við bólusetningu. (Nei nei, fjölmiðlar sögðu ekkert frá því enda eru þeir allir á styrkjum frá ríkinu og þurfa því að gæta orða sinna).
Mogginn komst þó næst því, því bloggið mitt er í eigu Moggans og því má segja að ég sé blaðamaður hjá Mogganum ;) Sjá fréttina hér.

Í gær sendi ráðherrann frá sér tilkynningu og sagðist vera laus af spítalanum eftir að hafa fengið Cellulitis eða húðnetjubólgu í vinstri fótlegg. Hann tók ekki fram að veikindin væru alls ótengd bólusetningunni eins og einhverjir fjölmiðlar höfðu gert sem nefndu einnig að veikindi hans gætu haft neikvæð áhrif á almenningsálitið, sem sagt öfugt við markmiðið.

mediastatment

Heilbrigðisráðherrann setti tilkynninguna meðal annars á twitter þar sem má lesa ummæli fólks við fréttina, aðallega Ástrala sýnist mér. Þar benda menn á að Cellulitis sé skráð sem ein helsta aukaverkun AstraZeneca. Einn spyr ráðherrann hvers vegna hann hafi fengið sprautuna í fótlegginn!
leg


Er mikil eftirspurn?

,,Bresk-sænski lyfja­fram­leiðand­inn AstraZeneca til­kynnti í dag, laug­ar­dag­inn 13. mars, að hann gæti ekki staðið við fram­leiðslu og dreif­ingu á skömmt­um til Evr­ópu­sam­bands­ins vegna fram­leiðslu­vanda og út­flutn­ings­hamla.

„AstraZeneca þykir leitt að greina frá að það muni ekki geta sent fyr­ir­hugað magn skammta af Covid-19-bólu­efn­inu til Evr­ópu­sam­bands­ins þrátt fyr­ir að hafa unnið sleitu­laust að því að auka hraðann í fram­leiðslu­ferl­inu,“ sagði í yf­ir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu."

Er mikil eftirspurn? Og hvað verður um þá Íslendinga sem áttu að fá seinni skammtinn og bóluefnavegabréf í kaupbæti? Verða þeir látnir prófa það sem yfirvöld víða um heima hafa kallað mix & match aðferðina (tvö ólík bóluefni)?


mbl.is Enn eitt áfallið fyrir AstraZeneca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfum ekki Guðna Th. eða Vigdísi til að auglýsa!

gudni,,94% lands­manna hafa þegið eða hyggj­ast þiggja bólu­setn­ingu gegn Covid-19. Þetta kem­ur fram í könn­un sem MMR fram­kvæmdi á tíma­bil­inu 5. til 10. mars 2021."

En ekki hvað! Þetta er þjóðin sem nánast grátbað um að fá að taka þátt í tilraun hjá Pfizer, en samningar náðust ekki. Faraldurinn hafði verið kveðinn í kútinn skv. Pfizer. Sjá grein hjá Kára

Það að Pfizer hafi álitið faraldurinn hér á landi liðinn hjá er merkilegt í ljósi þess að yfirvöld vilja bólusetja alla þjóðina. Getur verið að stór hluti þjóðarinnar sé kominn með ónæmi og þurfi ekkert bóluefni eða hvað átti Pfizer við? Það er ekki eins og allir sem komust í snertingu við veiruna (veirurnar, alltaf að koma nýjar) hafi legið í rúminu, sumir sluppu með kvef og hafa ekkert endilega hlaupið í skimun. Rannsóknarstofan Sameind vill meina að veikin hafi verið á ferðinni mun fyrr en mælingar hófust, eða frá því í janúar 2020.

Joe Biden, aftur á móti, grátbiður sína landa að fara í bólusetningu, segir þá geta fengið sjálfstæði frá veirunni á þjóðhátíðardaginn næsta, 4. júlí! Og fólk geti þá komið saman og grillað, ekki endilega í stórum hópum en a.m.k. litlum. 

Og eins og mbl.is sagði frá í dag að þá eru fyrrum forsetar Bandaríkjanna og makar þeirra komnir í auglýsingaherferð líka, hvetja fólk til að fara í sprautu. Þetta er stórmerkilegt vegna þess að Bandaríkjamenn hafa farið skv. helstu fréttum, hvað verst út úr covid. Og það þarf að reka þá í sprautu! Hér heima þar sem dánartíðni 2020 var nánast lægri en á árunum áður og meðalaldur látinna 88 ár, grátbiður fólk um að vera með í tilraun lyfjafyrirtækjanna. Þurfum ekki Guðna eða Vigdísi til að auglýsa hér.

Eflaust spilar það inn í, að hræðsluáróðurinn á Íslandi hefur verið með ólíkindum, sérstaklega hjá Kára Stefánssyni. Og svo erum við með þríeykið sem margir hér heima myndu ganga í sjóinn fyrir. Algjörlega ómissandi fólk, sérstaklega Víðir sem sjálfur lenti í hópsmiti! 

p.s. mér var bent á að ég gleymdi Ólafi Ragnari, útrásarforsetanum sjálfum.


mbl.is Lítill hluti hyggst afþakka bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðsleyfi?

,,Bólu­efni belg­íska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Jans­sen, sem er í eigu John­son & John­son, hef­ur fengið markaðsleyfi í Evr­ópu." 

 Nei, nei, það fær skilyrt markaðsleyfi (undanþágu) eins og öll hin þrjú sem eru í noktun hér á landi. Ekki reyna að villa um fyrir fólki, enda eru þau enn á tilraunastigi.

 

Svar frá Lyfjastofnun:

Sæl Þórdís

Þau þrjú bóluefni sem sem samþykkt hafa verið hérlendis gegn COVID-19 hefur öllum verið veitt skilyrt markaðsleyfi

 


mbl.is Bóluefni Janssen J&J samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóttvarnarlæknir úti á þekju?

mjólkandi,,Enn frem­ur benti Þórólf­ur á að bólu­setn­ing­ar hér á landi hafi gengið vel og hann hafi ekki fengið nein­ar upp­lýs­ing­ar um al­var­leg­ar auka­verk­an­ir hjá fólki sem var bólu­sett með bólu­efni Astra Zeneca."

Er hann ekki að fylgjast með eða er hann að reyna blekkja? Hann talar ekki eins og læknir þessa dagana, meira eins og lobbýisti fyrir lyfjafyrirtæki. Þrjár tilkynningar hafa borist um alvarlegar aukaverkanir vegna AstraZeneca.

Og hvað telst vera alvarleg aukaverkun? Svar frá Lyfjastofnun, tveggja vikna gamalt:

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum. Fyrir þær 18 alvarlegu tilkynningar sem nú hafa borist í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 eru 9 andlát, 9 tilfelli um innlögn á sjúkrahús og þar af vörðuðu 2 lífshættulegt ástand.

Og þykir þetta eðlilegt - nýja normið? Tekið af síðu Droplaugarstaða:

Kæru íbúar og aðstandendur
Starfsfólk Droplaugarstaða fékk bólusetningu í gær og ansi margir starfsmenn eru veikir í kjölfar hennar. Við höfum því ákveðið að fresta þorrablótinu sem átti að vera á öllum hæðum í dag til mánudags (að því gefnu að þessi veikindi gangi hratt yfir). Mánudagurinn verður því sannkallaður veisludagur með bollum og blóti.
Það eru margir frá vinnu í dag vegna veikinda og starfsemin í algjöru lágmarki. Margir þeirra sem eru í vinnu ganga á verkjalyfjum og eru ekki frískir. Við vitum ekki hvernig helgin verður en við reynum allt til að manna eins og hægt er og hugsa vel um íbúana okkar. Við óskum eftir skilningi aðstandenda gagnvart þessum aðstæðum og vonandi gengur þetta yfir sem allra fyrst.
Bestu kveðjur
 
p.s vonandi varð ungabörnunum ekki meint af þó að vitað sé að allt sem fer í móðurina fer í brjóstamjólkina, sjá mynd ofar.

 


mbl.is Stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilbrigðisráðherra Ástralíu á gjörgæslu eftir AstraZeneca

huntHin 55 ára gamli Greg Hunt, heilbrigðisráðherra Ástralíu var fluttur á gjörgæslu daginn eftir að að hafa fengið í sig tilraunbóluefnið AstraZeneca sem Danir hafa nú hætt að nota, tímabundið að minnsta kosti, vegna tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir.

Tekið er fram í fréttinni að það verði aldrei vitað hvort veikindin tengist bóluefninu. Ástralir virðast vera aftarlega í rannsóknum, hér heima tók það nokkra daga að finna út að gamla fólkið hafi ekki dáið vegna bólusetninga.

Í þessari frétt kemur fram að Hunt, ásamt forsætisráðherra Ástralíu hafi farið í bólusetningu til að hvetja þá sem eru hikandi við Covid bólusetningar, rétt eins og Dolly Parton gerði nýlega með bóluefnið Moderna.

Fólk flykkist auðvitað í bólusetningu ef Dolly Parton, sem lagði peninga í framleiðslu á Moderna, lætur sprauta sig! En hvað með Pál Óskar, er hann kominn með? Ég myndi bjóða honum minn skammt ef ég væri ekki hreinlega á móti því að fólk léti sprauta í sig ófullprófuðu lyfi sem er á undanþágu. Ég fékk ítrekun um að mæta (í stuttermabol) 17. mars kl. 14.20 í Laugardagshöllina.

Uppfært: "Hunt’s condition has not been considered to be related to his dose of the AstraZeneca COVID-19 vaccine on Sunday in Melbourne." Hafið þið heyrt einhvern segja að aukaverkanir séu tengdar bólusetningu? Þá á ég við yfirvöld og lyfjafyrirtækin?

Í stuttu máli. Fjöldi ríkja hafa nú tekið AstraZeneca úr umferð, a.m.k. tímabundið, vegna tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir. En segja samt að það sé ekkert sem bendi til þess að það séu nokkur tengsl.

Ráðerrann frá jafnvel í 2 vikur vegna húðsýkingar!

Uppfært: Svo virðist sem hluti áhafnarinnar á skipinu HMAS Sidney hafi einnig verið flutt á sjúkrahús vegna vægra aukaverkana.

Uppært: Laus af spítala.

hunt


mbl.is Danir stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

16 ríki hafa fellt niður grímuskyldu!

ríkiÍ 16 ríkjum Bandaríkjanna er ekki grímuskylda. Texas var fyrst til að fella hana niður. Allt eru þetta repúblikanaríki og því óhætt að draga þá ályktun að grímuskylda er pólitísk ákvörðun. Vorum reyndar búin að sjá það fyrr sbr. Trump samkomur fyrir kosningar. Nánast enginn með grímu og engin fjarlægðartakamörk. Á samkomum hjá Biden voru allir með grímur og sátu inni í bílum sínum, flautandi á kallinn. 


mbl.is Bólusettir geta sleppt grímunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fólkið veikt?

save lives,,Eins og áður hef­ur komið fram virðist breska af­brigðið meira smit­andi en upp­haf­legt af­brigði veirunn­ar."

Þetta hefur komið mörgum sinnum fram, að það sé meira smitandi. En hvernig er ástand hinna smituðu? Einkennalausir, kvefaðir, mikið lasnir, á spítala, á gjörgæslu? 


mbl.is Stefnir á að skila tillögum um aðgerðir í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðarlaust - fólk að skíða undir áhrifum!

Áfengissala í Hlíðarfjalli.

,,Um helg­ina verður hægt að kaupa bjór, kakó með rommi, prosecco, hvít­vín húss­ins (ch­ar­donnay) og rauðvín húss­ins (shiraz) á veit­ingastaðnum á hót­el­inu. Uppi í Strýtu verður það bjór og kakó með rommi.Ekki má taka áfengi út af skíðahót­el­inu þessa helg­ina, en inn­an skamms verður sett upp svæði þar sem má neyta áfeng­is á skafl­in­um við nest­is­húsið."

Þetta er fjölskyldusvæði og mikið af ungu fólki og börnum að skíða. Íslendingar eru ekki beint sú þjóð sem helst kann sér hóf þegar kemur að áfengisdrykkju.

Það er sem sagt leyfilegt að skíða undir áhrifum áfengis, þar sem börn eru meðal annars á ferðinni.

Sjá frétt um slys og fulla Breta á skíðum. Og hér um aukna möguleika á skíðaslysi eftir áfengissneyslu.

 


mbl.is Áfengissala í Hlíðarfjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauf starfsmaðurinn sóttkví / einangrun eða ekki?

,,Í gær var greint frá því að tveir hefðu greinst um helg­ina utan sótt­kví­ar en þeir smituðst vænt­an­lega af snertifleti á stiga­gangi en íbúi í sama húsi greind­ist með smit við seinni skimun á landa­mær­un­um."

Einn þessara sem býr í stiganginum virðist samkvæmt sögunni vera starfsmaður LSH og hafa farið á tónleika í Hörpu án þess að niðurstaða siðari skimunar lægi fyrir

Það hlýtur að þykja saga til næsta bæjar ef það er starfsmaður á heilbrigiðisstofnun sem kemur hugsanlega af stað hópsmiti með því að fara á tónleika. Víðir slítur fundinum þegar Þórólfur kemst í vandræði með svör. ,,Þetta átti bara að vera stuttur fundur."

Hér er upplýsingafundurinn.


mbl.is 15 í einangrun – 107 í sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband