Leita í fréttum mbl.is

Ekki heimild til að upplýsa um bólusetningarstatus þess látna?

deathsUm er að ræða sjúk­ling á sjö­tugs­aldri en að sögn Önnu Sigrún­ar Bald­urs­dótt­ur, starf­andi for­stjóra Land­spít­al­ans, hef­ur stofn­un­in ekki heim­ild til að veita frek­ari upp­lýs­ing­ar um and­látið að svo stöddu."

Hvaða frekari upplýsingar ætti fólk svo sem að vilja fá fyrir utan það hvort viðkomandi hafi fengið bólusetningu við sjúkdómnum sem hann lést úr eða ekki. Það er búið að sprauta meiripart þjóðarinnar með þessum efnum, það hlýtur að varða almenning hvort lyfin komi ekki heldur í veg fyrir dauða af Covid.

Hafi hann verið bólusettur, er svikamyllan endanlega hrunin. Fyrst átti þetta bóluefni" að mynda ónæmi hjá sprautuþegum, síðan átti að það að koma í veg fyrir mikil veikindi. Þá kom í ljós að svo var ekki. Sjá t.d. hér. Fjórir af fimm í öndunarvél voru bólusettir. Og síðan deyr einn sem er töluvert yngri en meðalaldur látinna  af covid (84 ára) áður en bólusetningarnar hófust. Gefum okkur að hann hafi verið bólusettur því annars væri eflaust búið að upplýsa um að hann væri óbólusettur, svona til að reyna að ná nokkrum hræðum í viðbót í sprauturnar.


En það sem ekki má koma í ljós er að langtum fleiri eru að deyja af völdum C19-lyfjanna en um er rætt og fleiri en tilkynningar til Lyfjastofnunar. Takið eftir hversu margir hafa verið bráðkvaddir síðustu mánuði. Og engin uppfærsla af dánartölum Hagstofunnar frá 15. apríl. Nýjar tölur hefðu átt að koma í júlí. Engar flensutölur, engar dánartölur. 

Fyrir víst veit ég að tveir læknar hafa spurst fyrir (og þá líklega hjá landlækni) hvernig standi á þessari auknu dánartíðni þessa mánuðina. En ekki einu sinni þeir fá svör. Þetta er alls staðar eins í heiminum, dauðsföll hafa hækkað mikið síðan að sprautugjafirnar hófust sem áttu að verja fólk fyrir faraldri sem leysti inflúensuna af hólmi. Alls staðar er reynt að þagga niður, en gæti verið erfiðara á litla Íslandi þegar uppi er staðið. 2000 konur búnar að hópa sér saman sem eiga það sameiginlegt að glíma við hormónatruflanir eftir sprauturnar, fósturlát, ofsablæðingar, engar blæðingar o.fl.
rebekkaegglos
Er kannski í lagi að spyrja bara beint? Er verið að reyna gelda þjóðina og fækka gamalmennum og sjúklingum. Hvers vegna þurfti að gefa gamla fólkinu þriðju sprautuna á 8 mánuðum og það með eldri útgáfunni af Pfizer sem talið er verja lítið gegna Delta. Fær það fjórða skammtinn þegar sú uppfærsla kemur. Einhver þarf a.m.k. að taka við þessu efni öllu.


mbl.is Andlát vegna Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

xx

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 27.8.2021 kl. 19:32

2 identicon

Eitt er pínu furðulegt með þetta, þarna er sagt að ekki sé hægt að upplýsa um hvort viðkomandi er búinn að fá bólusetningu eða ekki, væntanlega eitthvað tengt annaðhvort læknatrúnaði eða persónuvernd.

Þrátt fyrir það á að leyfa eða öllu heldur krefja fyrirtæki núna (t.d. tónleikahöldurum) um að fá þessar persónu upplýsingar frá viðskiptavinum, ætli þeir fari að krefjast þess að gestir sýni meiri upplýsingar, hvað með kynsjúkdóma eða sakarvottorð, það eru klárlega ákveðnir hagsmunir fyrir gesti að vita þessar upplýsingar einnig.

Halldór (IP-tala skráð) 31.8.2021 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband