28.5.2021 | 09:54
Þrítug dönsk kona fær skaðabætur vegna AstraZeneca
Danir hafa greitt sínar fyrstu bætur vegna bóluefnaskaða. Bæturnar voru greiddar þrítugri danskri konu sem fékk blóðtappa í heila og lifur eftir bólusetningu með AstraZeneca. Danska blaðið Politiken segir frá.
Í fyrstu eru bæturnar hóflegar en málinu er alls ekki lokið segir í fréttinni. Konan var bólusett í mars sl. í tengslum við starf sitt. Nokkrum dögum síðar fékk hún mikinn höfuðverk og síðan blóðtappa í heila og lifur. Hún var greind með nýja sjúkdóminn VITT sem varð til þess að Danir hættu að nota bóluefnið.
Í gær skrifaði ég um 44 ára breska fjölmiðlakonu sem fékk AstraZeneca. Stuttu síðar fékk hún mikinn höfuðverk og blæðingu í höfuð og lést. BBC sagði frá.
Í fyrradag skrifaði ég um 39 ára breska fyrirsætu sem veiktist nánast samstundis og lést skömmu síðar úr blóðtappa.
Í mars sagði Fréttablaðið frá því að ung kona lægi í lífshættu vegna blóðtappa eftir bólusetningu. Samkvæmt mínum heimildum er hún enn á lífi en óvinnufær.
Greiðsla á skaðabótum í Danmörku vegna blóðtappa eftir bólusetningu (a.m.k. með AstraZeneca) hlýtur að teljast merkileg því þar er í raun komið fordæmi, viðurkenning á því að beint samband sé milli bóluefnisins og blóðtappa.
Þess má geta að Ísland er enn að nota AstraZeneca og þrátt fyrir að nýjustu reglur landlæknisembættisins um að 55 ára og yngri taki það ekki, þá er enn verið að bjóða þeim aldurshópi upp á lyfið. Þetta kom m.a. fram hjá sóttvarnarlækni á almannavarfundi í gær.
Allar þessar konur voru heilbrigðar fyrir.
p.s. vonandi veit fólk að hægt er að sækja skaðabætur frá íslenska ríkinsu vegna skaða af þessum lyfjum sem eru á rannsóknarstigi til ársins 2023. Íslenska ríkið tók á sig ábyrgð lyfjafyrirtækjanna.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Þetta er stórmerkilegt mál, og enn merkilegra að íslenskir fjölmiðlar hafi ekki pikkað þetta enda er ég nokkuð viss um að þeir fylgist með norrænum fjölmiðlum:
https://nyheder.tv2.dk/samfund/2021-05-27-forste-dansker-far-erstatning-for-vaccinebivirkninger
https://ekstrabladet.dk/nyheder/samfund/foerste-dansker-faar-erstatning-efter-vaccine-bivirkninger/8598904
https://www.berlingske.dk/danmark/foerste-dansker-faar-erstatning-for-vaccinebivirkninger
Viðeigandi yfirvöld eru raunar að hvetja lækna til að ráðleggja fórnarlömbum bóluefnanna/líftækniefnanna um möguleika á skaðabótum:
https://www.dr.dk/nyheder/indland/foerst-fik-grethe-blodprop-i-coronaventetid-saa-glemte-hospitalet-raadgive-om
Geir Ágústsson, 28.5.2021 kl. 10:20
Auðvitað sjá þeir þetta allt en voru að fá ríkisstyrkina sína samþykkta. Sömuleiðis með bresku fjölmiðlakonuna.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 28.5.2021 kl. 10:30
VIÐ BORGUM EKKI !
Frétt frá guðseiginlandi í gær:
Aðstandendur konu í Michigan, sem dó skömmu eftir "bólusetningu",sendu líftryggingafélagi hennar kröfu þess vegna. Félagið bar ekki brigður á orsök andlátsins, en neitaði samt að borga út vegna þess að "bóluefnið" hefði ekki verið fullkomlega viðurkennt af FDA, bandaríska lyfjaeftirlitinu,heldur væri eingöngu um ófullnægjandi bráðabirgðaleyfi að ræða,sem því bæri engin skylda til þess að taka mark á !!
Björn Jónsson (IP-tala skráð) 28.5.2021 kl. 13:08
Ég blogga daglega um nýjustu aukaverkanirnar, og í færslu dagsins segi ég frá konu sem er varanlega blind eftir blóðtappa sem hún fékk daginn eftir bólusetningu með AstraZeneka! Sjá hér: https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar/entry/2265279/
Kristín Inga Þormar, 28.5.2021 kl. 15:29
Já,var einmitt að setja hlekk á þá færslu.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 28.5.2021 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.