24.5.2021 | 11:36
Varstu plataður? Engar sérreglur fyrir bólusetta!
Hver hefur ekki sagt eða heyrt: Já ætla í Covid bólusetningu, vil vera frjáls og geta ferðast."
Hægt er að sækja um vottorð ef fullbólusettur en á því stendur: Skírteini sem ferðast er með skal ekki vera eldra en 30 daga við upphaf ferðalags." Þetta er sem sagt ekki skírteini sem gildir í eitt ár frá útgáfu eins og gefið var til kynna í upphafi. Meira eins og vottorð sem þú þarft að sækja hverju sinni.
En hvert ætlar þú að ferðast bólusetta manneskja - kannski til Bandaríkjanna og þaðan til Jamaica? Nei, þangað kemstu ekki, það er ferðabann milli Bandaríkjanna og Schengen ríkjanna. Breytir engu þó þú sért bólusettur.
Hvað með önnur lönd? Sóttvarnarlæknir hefur gefið út tilmæli um að forðast ónauðsynleg ferðalög. Það á við um alla en undanskilin eru ferðalög til Grænlands og Færeyja. Það er hægt að komast til Spánar en engar sérreglur fyrir bólusetta. Eina undantekningin er við heimkomu, þá þurfa þeir bólusettu að fara í eitt PCR próf og vera í sóttkví þar til svar berst en þeir óbólusettu í tvö próf með sóttkví á milli.
Þangað sem Icelandair flýgur, gilda sömu reglur fyrir alla.
Hvers vegna er þetta svona? Samkvæmt því sem við höfum heyrt frá sóttvarnaryfirvöldum og þessu svari heilbrigðisráðuneytisins er þetta skýringin:
Bólusettir/ónæmir einstaklingar geta borið smit a milli einstaklinga."
Máttu sleppa grímu þar sem er grímuskylda? Nei.
Ertu undanþeginn samkomutakmörkunum? Nei, ekki heldur.
En geturðu smitast af Covid þrátt fyrir bólusetning? Já, já. Bóluefnið er líftæknilyf (Moderna / Pfizer) sem ekki inniheldur veiklaða veiru eins og hefðbundin bóluefni. Eins er áætlað að þú þurfir að fara í bólusetningu árlega vegna nýrra afbrigða, jafnvel tivsvar ár ári. Nóg til af bóluefni næstu tvö árin, a.m.k. 1,4 milljónir skammtar!
En ef þú kemur að utan og þarft að vera í sóttkví. Mega bólusettir gestir koma í heimsókn? Nei, engar sérreglur með það. Svar ráðuneytisins: Það er ekki undanþága fyrir bólusetta einstaklinga. Þeir þurfa jafnframt að vera í sóttkví." Sem sagt þeir (bólusettu og óbólusettu) sem búa á heimilinu þar sem heimkomufarþegi er í sóttkví.
Eitt besta dæmið um að bólusetningin hindri ekki smit eru Seychelles eyjarnar þar sem hlutfallslega flestir hafa verið bólusettir. Þriðjungur þeirra sem nú greinast með smit eru fullbólusettir. Eyjunum hefur verið lokað á ný vegna fjölda smita.
Heilbrigðisráðherra Bretlands varaði nýlega við því að bólusettir geti veikst illa af nýju afbrigði. Ath. hann nefndi ekki þá óbólusettu.
Og hér má sjá dæmi um veikindi Íslendinga eftir bólusetningu. Þetta eru engin flensueinkenni sem sagt var að búast mætti við.
Í stuttu máli. Varstu plataður? Þú ert a.m.k. ekkert á leið til Jamaica eða annarra landa þangað sem hinir óbólusettu komast ekki. Getur enn smitað, enn veikst, þarft að bera grímu, fylgja samkomutakmörkum og ert jafnframt útsettur fyrir nýjum afbrigðum og töluvert miklar líkur á aukaverkunum en þær voru sl. föstudag 1277 talsins, þar af 80 alvarlegar, en alvarleg aukaverkun er skilgreind á vef Lyfjastofnunar sem lífshættulegt atvik, lömun eða dauði.
Sóttvarnarlæknir sagði fyrir nokkrum dögum að engar sérreglur yrðu settar fyrir þá bólusettu, of flókið í framkvæmd.
Að lokum, ekki má heldur nefna lyf sem gætu virkað gegn Covid sýkingu eins og Ivermectin. Bendi á baráttu læknisins Guðmundar Karls eða Kalla Snæ.
Uppfært: Barnshafandi tónlistarkona greinist með veiruna. Hvaða afbrigði skyldi það vera? Þetta er nú meira bóluefnið og búið að taka áhættuna að bólusetja ófríska konu sem t.d. Svíar gera ekki.
En er undarlegt að fólk spyrji?
(Tekið af Kórónuveiran Covid-19 hópnum).
Bíða með bóluefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Góð samantekt. Það mætti svo undirstrika það enn og aftur að ekki má tala um að neinar meðferðir dugi því þá falla neyðarlyfin úr gildi og milljarðar stílaðir á lyfjafyrirtækin skila sér aftur til skattgreiðenda. Við viljum það ekki.
"Nýja normið" á covid.is er ennþá að hámarki 100 manna samkomur. Hver ætlar að hringja til Vestmannaeyja og segja þeim að spara sér ómakið að undirbúa Þjóðhátíð?
Geir Ágústsson, 24.5.2021 kl. 12:38
Takk, bætti þessu við neðst, mjög mikilvægt.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 24.5.2021 kl. 12:54
Þessi bólusetningarfarsi er að verða fáránlegri með hverjum deginum!
Kristín Inga Þormar, 24.5.2021 kl. 13:29
Virkilega góðar pælingar og gott að einhver haldi þessari umræðu
hátt á loft...
Larus Gabriel Gudmundsson (IP-tala skráð) 24.5.2021 kl. 15:14
Ekki er að finna þessa samantekt í fjölmiðlum enda gæti það óvart fengið fólk til að skoða hlutina betur.
Matthew Snape, prófessor í barnalækningum og ónæmisfræði við Oxford-háskólann stýrir rannsókn á því hvort öruggt sé að blanda saman bóluefnum, það er að gefa eitt bóluefni við fyrri bólusetningu en annað í þeirri síðari. Snape segir að ekki sé hægt að fullyrða neitt um áhrfiin á fólk fyrr en niðurstöður rannsókna liggi fyrir.
Þessi ágæti Snape ætti að hafa samband við hið íslenska ofur þríeyki þar sem klárlega þau vita eitthvað um að blanda saman bóluefnum sem aðrir vita ekki.
En æj .. vitlaus ég.. öll þessi bólusetning á fólki er tilraun/rannsókn hví ekki nýta tækifærið á meðan það gefst og blanda saman efnum svona tilraun á tilrauninni .. hvað gæti mögulega farið úrskeiðis.
Þröstur (IP-tala skráð) 24.5.2021 kl. 15:23
Sæl Þórdís,
Takk fyrir þessar upplýsingar, en ég hef meiri áhyggjur af þessu hérna fyrir neðan, og er orðinn bæði sár og leiður yfir þessu öllu, svo og hvernig þessir ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlar þegja yfir öllum alvarlegum aukaverkunum og dauðsföllum eftir bólusetningar.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 24.5.2021 kl. 16:37
Var að heyra í franska sjónvarpinu að vísindastofnun Pasteur væri búinn að þróa lyf gegn Covid19. Kemur líklega á markað í júní/júlí nk.
Yfirvöld hafa verið að þráast við í þó nokkurn tíma um að leyfa þeim að prófa lyfið á manneskjum og því tafið ferlið.
Þetta er byggt á lyfi sem þegar hefur verið notað en hefur verið lítilelga breytt.
Eggert Guðmundsson, 24.5.2021 kl. 18:55
Þú stendur þig frábærlega Þórdís. Keep up the good work!
Þorsteinn Siglaugsson, 24.5.2021 kl. 20:35
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.5.2021 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.