Leita í fréttum mbl.is

Auðvitað eiga yfirvöld að rannsaka hvaðan orðrómurinn kemur!

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir seg­ir að það sé skelfi­legt að verið sé að nýta sér svona hörmu­leg­an at­b­urð í þágu ein­hvers málstaðar. „Þetta er fyr­ir neðan all­ar hell­ur," seg­ir Þórólf­ur, „gagn­vart aðstand­end­um og öðrum er þetta skelfi­legt í einu orði sagt," bæt­ir hann við þegar blaðamaður spyr hann út í þenn­an sögu­burð. Hann seg­ist ekki vita hvort yf­ir­völd muni taka á þessu á ein­hvern hátt, það verði skoðað."

Auðvitað eiga yfirvöld að rannsaka hvaðan orðrómurinn kemur og senda frá sér yfirlýsingu og staðfesta að unga konan hafi ekki farið í bólusetningu.

Á síðasta Almannavarnarfundi var sagt frá því að rannsaka eigi fjölda tilfella um blóðtappa og andlát sem hafa verið tilkynnt Lyfjastofnun í tengslum við bóluefnin. Blóðtappar hafa mikið verið í umræðunni; ríki heims þar á meðal Ísland hafa verið að hætta og byrja aftur með ýmis bóluefni, einmitt vegna hættu á blóðtappa. Þegar ung kona lætur lífið vegna blóðtappa í miðri umræðu af þessum toga, er kannski skiljanlegt að svona sögur fari af stað. Hræðsla getur verið uppspretta sögusagna og því kannski óþarfi hjá sóttvarnarlækni að vera með upphrópanir.
Sjá til dæmis þessa
 tilkynningu. Ung kona fær blóðtappa eftir bólusetningu. Hefur hún náð heilsu á ný?


Lyfjastofnun ætti auk þess að hafa upplýsingar um aukaverkanir aðgengilegar og augljósar. Fólk er engu nær þegar það skoðar súlurnar á síðu þeirra. Önnur vestræn ríki tilgreina tegund aukaverkana, en ekki Ísland. Hvað kemur upplýsingasíða Lyfjastofnunar þessari umræðu við? Jú, Lyfjastofnun stendur fyrir þöggun um aukaverkanir af bóluefnunum. Þöggun ýtir undir vantraust. 


mbl.is „Þetta er fyrir neðan allar hellur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Kárason

Gróusaga blásin upp í mogganum sem stórfrétt á meðan ekkert er minnst á raunveruleg dauðsföll af völdum gena tilrauna á Íslendingum.  Mogginn á auðvitað að vera núna að lemja á dyrnar hjá lyfjastofnun eftir svörum heldur en að vera skrifa um gróusögur. Eru einhverjir alvöru blaðamenn á mogganum eða eru þetta bara ritarar?

Ágúst Kárason, 26.5.2021 kl. 15:16

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Var þetta í blaðinu sjálfu líka? Það hefði verið auðvelt að segja einfaldlega: Konan fékk ekki bólusetningu, en það gerir Þórólfur ekki, heldur er með dylgjur um að einhverjir séu að nýta sér atburðinn til styrktar ákveðnum málstað. Aumkunarverður! Ég bauð þeim aðstoð við að finna út úr uppruna orðrómsins en engar undirtektir. Og Lyfjastofnun vill ekki sjá gögn um orðróminn sagði hún. ,,Það er ekki hennar starf að rannsaka orðróm." Enda á hún fullt í fangi með að reisa þagnarmúr í kringum auakverkanasúlurnar sínar.

Hún hafði þó fyrir því að svara, aldrei þessu vant. Meira segja sendi hún mér svar við eldri fyrirspurn.

Væri ég sóttvarnarlæknir/landlæknir hefði ég sagt.
,,Þetta er einfaldlega rangt", konan fékk ekki bólusetningu. Búið mál. Óþarfi að hneykslast svona svakalega í miðjum blóðappa- og aukaverkanafaraldri! Fékk líka svar við líðan konunnar sem fékk blóðtappa og var í lífshættu sbr. fréttina í blogginu. Ekki frá Lyfjastofnun heldur konu sem þekkir til. 

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 26.5.2021 kl. 15:35

3 Smámynd: Ágúst Kárason

Ég veit nú ekki hvort það hafi verið í blaðinu líka. Það væri gaman að vita hver kom þessu upphaflega af stað og það ætti að skoða það. Ef þetta var með vilja gert þá hallast ég að því að það hafi verið gert til að láta annað sem á eftir að koma líta út fyrir að vera ótrúverðugt.

Ágúst Kárason, 26.5.2021 kl. 16:14

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Ætla ekki að gera þeim upp skoðun en þau ætla a.m.k. að skoða hvort eitthvað eigi að gera í málinu, þá hljóta þau að þiggja alla aðstoð sem býðst.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 26.5.2021 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband