18.4.2021 | 13:29
Ragga nagli og sóttvarnirnar - ,,af misjöfnu þrífast börnin best?"
Kórónaveiran fer greinilega ekki í manngreinarálit og tók sér bólfestu í Naglanum sem hefur státað sig gegnum tíðina af að vera annálað hreystimenni sem fær varla hor í nös, segir Ragga nagli á Facebook síðu sinni.Ragga segir að þrátt fyrir grímunotkun, óhóflegan handþvott, stöðuga sprittun, tveggja metra reglu, olnbogaskot og félagslega einangrun hafi henni samt tekist að næla sér í Covid. Hún sé nú að takast á við höfuðverk, háan hita, beinverki og slappleika."
Ég þekki ekki þessa konu en fannst áhugavert það sem hún segir um nánast manískar sóttvarnir. Þetta barst í tal meðal félaga minna í gær, þar sem við sátum þétt saman, grímu-og sprittlaus og höfum haft þann háttinn á síðustu ca. 10 eða 15 laugardaga. Um er að ræða hóp fólks sem á einn eða annan hátt tengist viðspyrnu öfgafullra sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Innsti kjarni er ca. 100 manns. Það sem er áhugavert er að ekkert okkar virðist hafa fengið covid, að einum undanskildum sem hafði víst fengið veiruna en ekki komist að því fyrr en síðar þegar hann fór í mótefnamælingu. Hann sagði að einkennin hefðu verið væg. Maður í eldri kantinum sem hresstist fljótt.
Spurning hvort við séum komin með mótefni án þess að vita, því við eigum það flest sameiginlegt að hunsa þessar aðgerðir eftir fremsta megni. Teljum það einfaldlega varasamt að hlýða þessum fíflagangi stjórnvalda sem ganga lengra og lengra því nær sem við komumst upphaflega markmiðinu, að verja gamla fólkið. Sem var augljóslega bara blekking! Það eru komin ný markmið; veirulaust samfélag og hjarðónæmi sem aðeins er hægt að ná með bólusetningum, segir WHO núna. Áður var skilgreiningin sú, að einnig væri hægt að ná hjarðónæmi með náttúrulegri sýkingu. Þau breytast ört vísindin þessa dagana sbr. þetta með Þórólf og grímurnar.
Eða, erum við kannski betur varin fyrst við höfum ekki vanið okkur á að blokka öndunarveginn með bréfi eða tuskum, baða okkur upp úr spritti (ónæmiskerfið þarf nefnilega bakteríur og vírusa til að haldast sterkt) og forðast annað fólk eins og heitan eldinn, út af sjúkdómi sem virðist einna helst draga til dauða þá sem eru þegar við grafarbakkann.
Þetta gæti a.m.k. verið áhugavert rannsóknarefni. Væri hægt að mæla hópinn og sjá hvort hann sé kominn með svokallað T-frumu ónæmi eða finna út hvers vegna hann veikist síður af þessum bráðsmitandi sjúkdómi?
Fólkið í hópnum á það líka sameiginlegt að vilja ekki sjá tilraunabóluefnið gegn covid og kannski getur vísindasamfélagið á einhvern hátt nýtt sér þennan hóp til rannsókna í framtíðinni. Því hefur til dæmis verið haldið fram að þeir sem taki inn bóluefnið verði líklegri til að veikjast frekar í næstu pestum. Það væri a.m.k. hægt að nota hópinn í einhverskonar samanburðarrannsókn.
Ragga nagli með Covid: Krossum fingur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Þér gæti þótt þessi grein á Kjarnanum áhugaverð:
Sóttvarnayfirvöld fylgja ekki rannsóknum sem benda til þess að andlitsgrímur virki ekki
Svo langar mig að bjóða þér upp á gestaþraut. Ef þú getur fundið og bent á stoð í sóttvarnalögum fyrir reglugerðarákvæði um grímuskyldu, hefur þú sigrað þrautina. Verðlaunin eru pakki af einnota "sóttvarnar"grímum. Ef þér mistekst eru sárabótarverðlaunin að það er engin grímuskylda.
Guðmundur Ásgeirsson, 18.4.2021 kl. 15:26
Já takk, vissi af greininni, helstu fjölmiðlar vildu ekki birta hana.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 18.4.2021 kl. 20:29
En fannstu stoð fyrir grímuskyldu í sóttvarnalögum?
Nýuppfærð: 19/1997: Sóttvarnalög
Guðmundur Ásgeirsson, 18.4.2021 kl. 20:41
Nei.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 18.4.2021 kl. 20:44
Guðmundur, greinin kom svo líka í Mogga. Og Hringbraut fjallaði um hana.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 20.4.2021 kl. 22:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.