Leita í fréttum mbl.is

Veitir MMR bólusetning börnum og ungu fólki vörn gegn covid?

börnmmrÞetta er athyglisvert þó ég sé nokkuð viss um að enginn læknir hér heima muni fá þessa spurningu. Ástæðan fyrir því að börn og unglingar veikjast lítið sem ekkert af covid, getur verið sú að MMR bólusetning sem börn fá ung og aftur sem unglingar, veiti a.m.k. einhverja vörn gegn sbr. þessa grein

Eins hefur maður ekki heyrt nokkuð um það að hér gæti hugsanlega verið komið á þó nokkuð ónæmi í samfélaginu. Til er fjöldi greina sem benda til þess að C19 hafi fundist í Evrópu haustið 2019 og svo hér heima a.m.k. í janúar 2020. Við þetta bætist sú staðreynd að undanfarið hafa fundist fá eða engin smit og það þrátt fyrir partýstand og jóla-og áramótasamkomur. Að styðjast aðeins við mótefnamælingu (antibodies sem endast aðeins í nokkra mánuði) segir ekki alla söguna. Það þarf líka að taka T-og B-frumu ónæmi inn í myndina. 

Danski læknirinn, Vibeke Manniche, vill meina að Danmörk sé að nálagst hjarðónæmi og er einnig með þá kenningu að MMR bólusetning (MFR á dönsku) veiti börnum og ungu fólki einhverja vörn gegn sjúkdómnum. Sjá hér. En skaðinn sem börn hafa orðið fyrir vegna Covid aðgerða er mikill víðsvegar um heiminn.börnmmr


mbl.is Eitt smit innanlands í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband