Leita í fréttum mbl.is

Lögfræðiálitið er ekki til sýnis

Lýsing, SP fjármögnun og Íslandsbanki fjármögnun segjast hafa leitað eftir lögfræðilegu áliti um hvaða samningar falli undir dóm Hæstaréttar og var niðurstaðan sú að gengistryggðir rekstrar-, einka- og fjármögnunarleigusamningur „falli að öllum líkindum" ekki undir dóminn. Þetta lögfræðiálit hafa nokkrir óskað eftir að fá að lesa en svörin frá lögmönnum og sérfræðingum þessara fyrirtækja voru að „það væri ekki í boði", álitið væri vinnuskjal og innanhúsplagg og yrði ekki gert opinbert.

Það á sem sagt að halda áfram að rukka óbreyttar greiðslur á gengistryggðum samningum út frá einhverju innanhúsplaggi sem ekki má sýna mönnum sem skulu þó greiða óbreyttar afborganir þrátt fyrir dóm Hæstaréttar. Líklegt er að sá lögmaður/lögmenn sem fékkst til að vinna álitið skammist sín fyrir plaggið enda getur álitið ekki verið neitt annað en þvæla. Blush

(Fyrirtækin vilja meina að ofangreindir samningar séu leigusamningar og falli því ekki undir lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 en athugið sbr. skilgreiningu Hæstaréttar eru þetta allt lánssamningar enda eru þeir með höfuðstól og bera vexti. Hæstiréttur úrskurðarði einmitt að kaupleigusamningur SP fjármögnunar væri lánssamningur en ekki leigusamningur.)

Nánar hér, Einbeittur brotavilji fjármögnunarfyrirtækjanna


mbl.is Lýsing ófús að mæta skuldurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Þessi nefndu fjármögnunarfyrirtæki eru glæpastarfsemi, stjórnað af glæpamönnum og studd af illa upplýstum og illa innrættum stjórnmálamönnum í ríkisstjórn jafnt sem óbreyttum þingmönnum. Það þarf að slátra þessum fyrirtækjum í eitt skipti fyrir öll og setja nákvæma smáatriðalöggjöf um þá gróðastarfsemi sem þau hafa stundað glæpsamlega fram til þessa.

corvus corax, 24.8.2010 kl. 16:15

2 identicon

Þess má geta hér að lögfræðingur Samtaka Iðnaðarins (SI) hafði samband við SP fjármögnun (SP) og óskaði eftir rökstuðningi og/eða afriti af lögfræðiálitum sem SP vísaði til í almennu bréfi til lántakenda.

SP fjármögnun hafnaði ósk lögfræðings SI algjörlega og benti á að þeim bæri engin skilda til þess að sýna álitin, og þá sjálfsagt ekki heldur til þess að rökstyðja þá ákvörðun sýna að hundsa dóm Hæstaréttar

bkv

EP

Elías Pétursson (IP-tala skráð) 24.8.2010 kl. 16:27

3 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Þetta svar fékk ég frá Íslandsbanka fjármögnun:

„Sæl Þórdís,

Ég verð því miður að tilkynna þér að það er ekki í boði að nálgast það lögfræðiálit sem þú spyrð um hér að neðan. Málið mun fara fyrir dóm og verður þá skorið úr um hvort það álit sem við höfum standi.

Kær kveðja,

Hannes Ingvar Jónsson 

Sérfræðingur

Innheimtu og lögfræðisvið

Íslandsbanki Fjármögnun"

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 24.8.2010 kl. 16:30

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

og svar mitt til Hannesar var:

Sæll Hannes

Eru menn eitthvað óöruggir með þetta álit sitt, hvernig er hægt að óhlýðnast Hæstarétti Íslands út frá einhverju lögfræðiáliti sem ekki má sjá? Er virkilega hægt að krefja fólk um óbreyttar greiðslur gegn einhverju áliti sem menn geyma ofan í skúffu hjá sér?  Hvaða mál mun fara fyrir dóm?

Er ekki málið einfaldlega það að álitið er þvæla þar sem allir þessir samningar falla einmitt undir dóm Hæstaréttar, þetta eru allt lánssamningar sbr. skilgreingu Hæstaréttar á því hvað telst vera lánssamningur en ekki leigusamningur. Og því þorir ekki nokkur lögmaður að standa við mál sitt?

kv.þórdís

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 24.8.2010 kl. 16:32

5 Smámynd: Árni Halldórsson

Ef þetta álit þeirra er svona mikið leyndarmál, þá þarft þú varla miklu að kvíða og heldur bara þínu striki. Ef þeir hefðu málin sín pottþétt, væri það þeirra hagur að sýna þetta.

Fjármögnunarfyrirtækin sögðu líka fyrir hæstaréttardóm að þeir væri í engum vafa um að allt þeirra brask væri löglegt. Annað kom heldur betur í ljós. Þessi fyrirtæki hafa í gegnum tíðina þrifist á ótta viðskiptavina sinna, og það virðist það eina sem þeir kunna enn í dag. Vandamálið er bara að nú er komið í ljós að við þurfum lítið að óttast.

Árni Halldórsson, 24.8.2010 kl. 19:47

6 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Sumir eru yfir lög hafnir það sér maður alstaðar í þjóðfélaginu, meyra að segja úti á þjóðvegunum. Ég var nú svo grænn að halda að á Islandi væri engin spilling, en svo kemur í ljós að hvergi er meyri splling í hinum siðmentaða heymi, það er ekki hægt að treista stjórnmálamönunum, það er ekki hægt að treista fjármálakerfinu, þjóðkirkjan er ótrúverðug. Ég veit ekki um Hæstarét, ég tel hann hafa sýnt það að það megi treista honum en það virðist ekki vera að allir þurfi fara eftir hans dómi. Ráðist er á almenning þegar glæpahiskið er búið að klúðra málum og farið í vasa hanns, rifin af þeym húsin og bílarnir, og valdstjórnin segir allt í lagi. Og hvað er þá eftir sem gerir það eftirsóknar vert að búa hér á landi? Ekki neitt!!!! ´Svona sýn hef ég á þessu, og hvað skal gera? það er spurning sem ég hef ekki svar við.Er einhver þarna úti sem veit það? ( Kanski stofna Hróa hattar sveit svo allt sé í réttum stíl)

Eyjólfur G Svavarsson, 25.8.2010 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband