Leita í fréttum mbl.is

Vísitölunum haldið leyndum fyrir neytendum

Rétt, a.m.k. bjuggu SP Fjármögnun og Avant til sínar eigin vísitölur/gjaldmiðla en því var haldið leyndu fyrir neytendum og skráð voru á lánasamninga ákveðin prósentuhlutföll í erlendum gjaldmiðlum þó að þau hlutföll hafi aðeins átt við þegar vísitalan (samsett úr nokkrum gjaldmiðlum) var stofnuð. Þannig samningar hljóta að vera ógildir, þar sem neytendur voru hvorki að fá lán í erlendri mynt né er íslenska lánsfjárhæðin bundin við gengi erlendu gjaldmiðlana heldur er hún bundin við gjaldmiðil fjármögnunarfyrirtækisins sem ekki er skráður á fjármálamörkuðum. Þetta kallast líka afleiðuviðskipti og þessi fyrirtæki hafa ekki leyfi til að stunda þess konar viðskipti og almenningi er  einnig óheimilt skv. lögum um verðbréfaviðskipti að taka þátt í viðskiptum með afleiður sem ekki eru skráðar á mörkuðum. Aðeins fagfjárfestar hafa til þess heimild. Og hvað með að reikna LIBOR vexti á íslenska gjaldmiðla/vísitölur, er það heimilt skv. lögum?
mbl.is Yrði u-beygja hjá Hæstarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Það verður að viðurkennast, Þórdís, að flétturnar sem fjármálafyrirtækin beittu er hver annarri furðulegri.  Það breytir þó engu hverjar þær voru, þetta er allt að leysast upp og vonandi falla vígin hvert á fætur öðru.

Það mikilvægasta við dóm héraðsdóms er vonin sem hann gefur.  Von um réttlæti.

Marinó G. Njálsson, 14.2.2010 kl. 13:55

2 identicon

Eru svona mikilvægum málum flýtt fyrir hæstarétti? Hvað haldið þið að það sé nú langt í niðurstöðu frá hæstarétti?

Gústaf (IP-tala skráð) 14.2.2010 kl. 14:12

3 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Gústaf.

Ætli þessu verði ekki vísað aftur til héraðsdóms, vegna einhverra galla sem þeir finna, svo dæmir héraðsdómur aftur, og aftur verður þessu vísað til baka, svona gengur þetta næstu 3 árin eða svo.

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband