Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Slúðurfrétt RÚV: Nei þetta var ekki Kalli Snæ!

Merkileg fyrsta frétt RÚV í gærkvöldi, að læknir hafi skráð fjögur andlát af völdum Covid sprauta árið 2023. (Læknar eiga sko að vita að þeir eigi alls ekki gera það heldur merkja við Covid og/eða einhverja "undirliggjandi áhættuþætti sem dánarorsök).

Sterklega var ýjað að því að um væri að ræða Guðmund Karl Snæbjörnsson lækni þó hann hafi reyndar ekki unnið á elliheimili eða í tengslum við það árið 2023. En hinn almenni borgari hér á landi sem hefur eitthvað heyrt um nóbelsverðlaunalyfið Ivermectin tengir það auðvitað við Guðmund Karl, því hann er eini ötuli talsmaður Ivermectin sem almenningur veit um. Samt hafði fréttastofa RÚV samband við Guðmund Karl fyrir fréttatímann og spurði hvort hann væri umræddur læknir, en því svaraði hann neitandi.

Svipað og að RÚV kæmi með frétt af frambjóðendum til Alþingis: Umræddur frambjóðandi er læknir og sá til þess að tengdamóðir hans á Sóltúni fengi ekki Covid sprautu eins og allt hitt gamla fólkið.“ 

Munurinn á fyrri fréttinni og þessari síðari ímynduðu frétt er að það er vissulega einn frambjóðandi sem bjargaði tengdó frá því að fá ímyndað bóluefni.;) Landlæknir. 


mbl.is Fjögur andlát til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmar fréttir fyrir Ölmu og Covid19 gengið, nú verður farið ofan í saumana!

barringtonFærslan er þýðing Guðmundar Franklín á nýrri mikilvægri frétt og yfirlýsingu frá Donald J. Trump varðandi skipan nýs læknis yfir bandarísku stofnuninni NIH (National Institute of Health).

Hún hljóðar svona:

Ég er yfir mig spenntur að tilnefna Dr. Jay Bhattacharya, lækni, til að gegna starfi forstjóra Alríkisheilbrigðisstofnunarinnar (NIH).
Dr. Bhattacharya mun starfa í samstarfi við Robert F. Kennedy Jr. við að stýra læknisfræðilegum rannsóknum þjóðarinnar og stuðla að mikilvægum uppgötvunum sem munu bæta heilsu og bjarga mannslífum.

Jay er prófessor í heilbrigðisstefnu við Stanford-háskóla, rannsóknarstofnun við Þjóðhagsstofnunina í rannsóknarhagfræði (NBER) hjá Stanford Institute for Economic Policy Research. Hann stýrir einnig miðstöð Stanford Háskóla fyrir lýðfræði og hagfræði heilbrigðis og öldrunar. Rannsóknir hans beinast að heilsu og líðan viðkvæmra hópa.

Jay er einn af höfundum Great Barrington-yfirlýsingarinnar, valkosti við lokanir sem lögð var fram í október 2020. Ritrýndar rannsóknir hans hafa verið birtar í tímaritum um hagfræði, tölfræði, lögfræði, læknisfræði, lýðheilsu og heilbrigðisstefnu. Hann hefur læknispróf og doktorsgráðu í hagfræði frá Stanford-háskóla.
 
Jay og RFK Jr. munu saman endurreisa NIH sem fyrirmyndarstofnun í læknisfræðilegum rannsóknum og rannsaka undirliggjandi ástæður og lausnir á stærstu heilbrigðisáskorunum Bandaríkjanna, þar á meðal krísunni vegna langvinnra sjúkdóma og veikinda. Þeir munu vinna hörðum höndum að því að gera Bandaríkin heilbrigð á ný!"
May be an image of 1 person and text that says 'Robert Kennedy @RobertKennedyJr 7h I'm so grateful President Trump for this spectacular appointment. Dr. Jay Bhattacharya is the ideal leader to restore as the international template for gold-standard science and evidence-based medicine. TRUMP VANCE TRANSITION -Novembar 2024- STATEMENT FROM PRESIDENT DONALD J. TRUMP |am thrilled nominate Jay Bhattacharya Institutes Health. Kennedy direct Nation's discoveries Health, MD, PhD. serve Director the work cooperation Robert make important National Bureau Well-Being Senior courtesy Stanford Freeman Spogli Demography alternative research Policy Joumnals. from Stanford University proposed October Legal, holds they examine Health they hard underlying causes Chronic Make America Healthy Medical America's Disease.'
 
 
 
 

Verður RFK Jr. lykillinn að falli kóvid spilaborgarinnar hér á landi?

rfkmahaEndurbirtur pistill eftir Helga Örn Viggósson.

 

 

Fréttaflutningur sumra ríkisstyrktra íslenskra fjölmiðla um skipan Robert F. Kennedy, Jr., sem heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna í verðandi ríkisstjórn Donald Trump er til háborinnar skammar.

Ég leyfi mér að efast um að íslenskir blaðamenn séu svo illa gefnir að þeir séu ekki færir um að kynna sér staðreyndir og fjalla um þær á hlutlægan hátt.

Ég leyfi mér einnig að efast um að þeir séu svo illa innrættir að þeir viljandi hjóla í manninn með rætnum hætti, enda á slíkt ekkert skylt við blaðamennsku, það flokkast sem áróður. Spjótin beinast því óhjákvæmilega að eigendum og stjórnendum þessara miðla en eins og alþjóð veit mútaði Gates Foundation fjölmiðlum í hinum vestræna heimi með mörgum tugum milljarða í aðdraganda og á meðan kóvid faraldurinn stóð, jafnvel ríkisfjölmiðill eins BBC þáði feita "styrki" frá Gates, eins og opinberar upplýsingar staðfesta.


Sem dæmi, þá leggur áróðursmiðillinn RÚV [1] mikið upp úr því að einhverjir telji RFK hættulegan heilbrigði bandarísku þjóðarinnar og að hann hafi talað gegn bóluefnum og haldi því fram að þau valdi einhverfu, sem "löngu sé búið að afsanna".

Fáránleikinn hér verður vart meiri, því þarna er RÚV að taka sem marktæka, aðila sem deila ábyrgð á núverandi ástandi í heilbrigðiskerfi BNA, sem er vægast sagt hörmulegt. Bandaríkin eyða langmest allra þjóða til heilbrigðismála per haus og búa við langverstu heilsu þróaðra ríkja, með hærra hlutfall fólks með króníska sjúkdóma en nokkur þjóð, ungbarnadauða á við þróunarríki og hvergi í heiminum verða fjölskyldur í eins miklu mæli gjaldþrota vegna heilbrigðiskostnaðar - það er í raun varla hægt að ímynda sér hvernig hægt væri að gera ástandið verra.

RFK hefur lagt fram ítarlega áætlun um hvernig laga megi þetta hörmulega ástand, m.a. með því að ráðast á spillinguna. RÚV kýs af einhverjum undarlegum ástæðum að taka stöðu með og verja þá aðila sem eru að baki spillingarinnar.

Hvað bóluefnin varðar þá er það staðreynd að engin af þessum efnum, sem verið er að sprauta í börnin okkar, hafa farið í gegnum alvöru tvíblindar klínískar rannsóknir með lyfleysu samanburðarhópi og því ekki með nokkurn hætti hægt að fullyrða að þau séu örugg eða virki almennt. Sem sagt, vísindin á bakvið öryggi efnanna eru ekki til staðar áður en þau fá markaðsleyfi og farið er að sprauta börnin. Kuklið getur vart verið meira.

Að búið sé að "afsanna fyrir löngu" að bóluefni valdi einhverfu er lygi. Urmull rannsókna óháðra aðila sýna að þau gera það og fyrir 10 árum síðan kom fram uppljóstrari hjá CDC, William Thompson, Ph.D., CDC senior scientist, sem staðfesti að stofnunin hefði eytt gögnum í rannsókn á hennar vegum sem sýndi fram á að MMR bóluefnið valdi einhverfu - bóluefnin valda einhverfu! Rétt er að geta þess að þáverandi forstjóri CDC, fékk í skömmu síðar starf sem yfirmaður bóluefnadeildar Merck (framleiðandi MMR bóluefnisins), með milljóna dollara kaupréttarsamningi.

Árið 1986 voru sett lög í BNA, eftir þungan þrýsting frá stóru lyfjafyrirtækjunum, sem halda úti dýrasta lobbýista batteríinu í Washington DC, sem fólu í sér friðhelgi lyfjafyrirtækjanna gegn skaðanum sem bóluefnin valda. Síðan þá hefur bólefnaskömmtunum sem börn í BNA fá til 18 ára aldurs fjölgað úr í kringum 10 í 72, hlutfall einhverfra farið úr að vera 1/10.000 í 1/36, og börn með króníska sjúkdóma úr 12,8% í 54%. [2]

Áður en RFK fór að gefa heilbrigðismálum gaum var hann einn allra farsælasti lögmaðurinn í Bandaríkjunum á sviði umhverfismála, mál sem gerðu kröfu um gott vísindalæsi, bæði hvað varðar líf- og efnafræði. Hér er því sannanlega um að ræða afburðamann á þessu sviði.

Ég leyfi mér að fullyrða að allir með snefil af heilbrigðri skynsemi eru sammála RFK hvað varðar þær umbætur sem hann vill koma á. Þær fela m.a. í sér að ráðast á spillinguna, bæði í heilbrigðis- og matvælaiðnaðinum, þannig að eftirlits- og aðrar stofnanir sem verja eiga hagsmuni almennings verði ekki lengur í vösunum á auðvaldinu, að kröfur gerðar til bóluefna verði sambærilegar og með önnur lyf og að framleiðendur þeirra beri ábyrgð á þeim.

Í meðfylgjandi myndbandi reynir illa upplýst fréttakona að grilla RFK með aðstoð læknis, Dr. Butt. Ég mæli með að fólk horfi á þetta tiltölulega stutta myndband til að komast nær sannleikanum og hætti svo að taka mark á óvönduðum áróðursflutningi RÚV, hann er mannskemmandi.

https://youtu.be/KLxBwIupF88?si=4aevb6D3vTconJ2i

Heimildir:

1. Tilnefning Trumps á Kennedy sem heilbrigðisráðherra víða gagnrýnd - https://www.ruv.is/frettir/erlent/2024-11-15-tilnefning-trumps-a-kennedy-sem-heilbrigdisradherra-vida-gagnrynd-427584

2. 10 Facts Every Parent Needs to Know About Vaccinations - https://childrenshealthdefense.org/news/10-facts-every-parent-needs-to-know-about-vaccinations/

Höfundur pistilsins er Helgi Örn Viggósson, áður birt á hópnum Kóvid uppgjörið.


Feluheitið "long covid" stendur fyrir sprautuskaða

"Vík­ur­frétt­ir greina frá að Gunn­ar Axel Axelsson bæjarstjóri hafi glímt við lang­tíma­af­leiðing­ar eft­ir Covid-19. Hann hef­ur verið í veik­inda­leyfi en stefndi að því að koma aft­ur til starfa síðustu mánaðamót."

Nei hann er að glíma við langtímaafleiðingar af covid-sprautum, sem valda m.a. því að fólk fái endurtekið sýkingar sem greinist sem Covid sýking. Ástandið kallast VAIDS (Vaccine Aquired Immune Deficiency, sem er í raun alnæmi.

Samtökin Heilsuvon-hagsmunasamtök fólks með C-19 sprautuskaða voru stofnuð í sumar og þar má heyra reynslu fólks af þessu efni sem heilbrigðisyfirvöld hér og annars staðar hafa ranglega kallað "bóluefni". Endurteknar sýkingar, síþreyta, máttleysi, hjartsláttartruflanir, lömun í útlimum, sjónmissir o.fl. er það sem fólk er að glíma við og tengir beint við sprauturnar. Flestir segja að læknar reyni að tengja það við covid pestina, en hvernig var þetta aftur? Áttu sprauturnar ekki að koma í veg fyrir alvarleg veikindi? En einhverjir læknar segja sprauturnar vera orsökina þó þeir vogi sér ekki að stíga fram og segja það opinberlega. 

Einhverjir hafa farið illa út úr Covid og það þá helst í upphafi, eða 2020. En í dag er langstærsti hlutinn af þeim sem glíma við "long-covid", fólk sem hefur veikst af þessum sprautum sem íslenska ríkið hefur greitt 5,3 milljarða kr. fyrir. 

Fimm ríki í Bandaríkjunum eru að stefna Pfizer fyrir blekkingar í markaðssetningu og yfirhylmingu á alvarlegum aukaverkunum, þar á meðal hjartakvillum og fósturlátum. Landlæknir Íslendinga, sem ætlar sér að verða heilbrigðisráðherra, býður þó barnshafandi konum þessar sprautur. 

En hún gætti sín á því, ásamt eiginmanni sínum, hjartalækninum, að tengdamóðir hennar á Sóltúni fengi ekki sprauturnar sem allt hitt gamla fólkið var látið taka. Staðfesting á innherjaupplýsingum. 

 


mbl.is Hættir sem bæjarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn hugrakkasti stjórnmálamaður Bretlands heldur erindi á Íslandi

bridgen

 

Þessi grein birtist á Krossgötum í morgun og endurbirti ég hana hér:

 

Andrew Bridgen, fyrrverandi þingmaður breska Íhaldsflokksins, hefur þegið boð um að flytja erindi á málþingi samtakanna Frelsi og ábyrgð sem haldið verður 11. ágúst n.k. Bridgen var þingmaður frá árunum 2010 til 2024.

Bridgen sem er líffræðingur að mennt er orðinn þekktur fyrir efasemdir sínar um gagnsemi Covid-19 bóluefnanna sem og sýkingar- og smitvarnar og notar hvert tækifæri sem gefst til að vekja athygli á skaðsemi efnanna sem yfirgnæfandi líkur eru á að hafi valdið mikilli fjölgun umframdauðsfalla á Bretlandseyjum ekki síður en hér á landi.

Þessi afstaða Bridgen til bóluefnanna er talin meginástæða þess að honum var vikið tímabundið úr þingflokki íhaldsmanna í janúar 2023 og síðan úr Íhaldsflokknum í apríl sama ár þótt öðru væri borið við. Til þess var tekið, bæði meðal almennings á Bretlandseyjum og víðar um lönd, hvernig þingmenn neðri deildar (Commons) létu sig hverfa úr þingsalnum í hvert sinn sem Bridgen kvaddi sér hljóðs. Væntanlega hafa samtalaðir þingmennirnir ekki áttað sig á að með því uppátæki vöktu þeir athygli á málflutningi Bridgen langt umfram það sem orðið hefði, hefðu þeir setið sem fastast.

Bridgen taldi í fyrstu að brottvikningin úr þingflokknum væri tímabundin. Annað átti eftir að koma á daginn. Aðspurður um aðdraganda brottrekstursins sagði Bridgen að 13. desember 2022 hafi hann í ræðu í neðri deild þingsins greint frá áhyggjum sínum af tilmælum eftirlitsstofnunar með lyfjum og heilbrigðisvörum (MHRA) í Bretlandi þess efnis að Covid bóluefnin yrðu boðin börnum allt niður að 6 mánaða aldri.
Bridgen sagði í ræðu sinni að börnum stafaði ekki hætta af Covid-19 flensunni en hins vegar stafaði þeim hætta af tilraunaefninu, auk þess sem hann sagði bóluefnin valda skaða umfram hugsanlega gagnsemi og vísaði máli sínu til stuðnings í rannsóknargögn Pfizer sem þá voru tekin að birtast samkvæmt dómsúrskurði eftir að mistekist hafði að halda þeim leyndum fyrir almenningi í allt að 75 ár.

„Og það vildi svo vel til að ríkisstjórnin lét ekki verða af þessari áætlun með börnin, en snemma í janúar 2023 setti ég inn færslu á Twitter (nú X) og skrifaði: Eins og einn hjartalæknir sagði við mig, þessar [Covid bólusetningar] eru stærsti glæpur frá því að helförin átti sér stað. Leiðtogar Íhaldsflokksins sögðu þetta vera gyðinga-og kynþáttahatur og hentu mér úr flokknum,“ sagði þingmaðurinn með bros á vör. 

Bridgen hefur sagt frá því að eftir gagnrýni hans á fyrirhugaðar bólusetningar smábarna hefði hann lent á svörtum lista BBC og meginstraumsmiðla því enginn miðlanna hefði lengur sýnt því áhuga að taka við hann viðtal.

Andrew Bridgen er eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefnum og þekktur fyrir baráttu sína gegn notkun efnanna og notar hvert tækifæri til að benda á skaðann sem efnin hafa valdið og hættuna af notkun þeirra. Áhugavert verður að hlýða á Bridgen greina frá persónulegri reynslu sinni af baráttunni við áhrifin sem lyfjaframleiðendur hafa á Bretlandseyjum en sem þingmaður þekkir hann ítök lyfjaframleiðenda í pólitíska baklandinu þar í landi.

Fleiri ræðumenn taka til máls

Ásamt Bridgen, verður á málþinginu Catherine Austin Fitts sem starfaði á fjármálmörkuðum Wall Street í áratugi og var einnig aðstoðarráðherra í ríkisstjórn Bush eldri. Hún mun fjalla um hið miðstýrða stafræna fjármálakerfi (CBCD/seðlabankaeyri) sem nú /sé verið er að innleiða á ógnarhraða og þar með sé fjármálafrelsi fólksins stefnt í hættu, m.a. með brotthvarfi reiðufés. Fitts telur að það besta sem við getum gert á þessum tíma sé að styðja við bændur, enda séu bein tengsl á milli yfirráða (control) matvælaframleiðslu og yfirráða (control) fjármála í heiminum.

Þá mun Steinþór Logi Arnarson flytja erindi á málþinginu en hann er formaður samtaka ungra bænda og varamaður í stjórn Bændasamtakanna. Steinþór mun fjalla um stöðu og horfur í landbúnaði á Íslandi og hver næstu framtíðarskref bænda eru.  Leitast verður við að setja stöðuna í samhengi við þá þróun sem hefur átt sér stað og hvað framtíðin gæti borið í skauti sér.

Viðburðinn má finna hér á facebook.

Þ
essi auglýsing mun birtast í Morgunblaðinu 8. ágúst nk.

nymalthinguppfaert11agust


Dagur og Katrín bæði á biðlaunum - misnotkun á réttinum?

Eins og fram kemur í tengdri frétt þá er Dagur fyrrv. borgarstjóri á biðlaunum í sex mánuði. Heildarkostnaður við hans laun nema 18.398.840 kr.

Samkvæmt svari frá forsætisráðuneytinu er Katrín Jakobsdóttir einnig komin á biðlaun, en hún afsalaði sér þeim meðan á kosningabaráttunni stóð, mögulega vegna umfjöllunar um málið.

Katrín lét sjálfviljug af störfum til að freista þess að verða forseti. Samkomulag var um í stjórnarsáttmála að Dagur léti af borgarstjóraembættinu eftir eitt og hálft ár og Einar tæki við.

Er rétturinn til biðlauna hugsaður svona eða er þetta misnotkun á réttinum - geta menn möndlað með borgarstjóraskipti og að ráðherrar stökkvi frá til að freista þess að fá annað starf? Fái þeir það ekki, geta þeir komið aftur og fengið biðlaun vegna fyrra starfs? Og kostnaður upp á margar milljónir úr ríkis-og borgarsjóði.

Í greinargerð með frumvarpi til laga um biðlaun segir m.a.

„Réttur til biðlauna er viðurkenning á þeirri erfiðu stöðu sem einstaklingar lenda í við starfsmissi.“ 

Hver kom fyrrv. borgarstjóra og fyrrv. forsætisráðherra í erfiða stöðu? Þeir sjálfir í þessu tilfelli ekki satt - vitandi að þeir gætu nýtt sér full laun í sex mánuði á eftir á kostnað skattgreiðenda.


mbl.is Dagur bara á biðlaunum borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þú ert lauslát mella og þú ert nasisti!"

Ærumeiðingamál eru áhugverð, hvers æru er verið að meiða og hver meiðir - eru ærur fólks misverðmætar?

Dv.is segir frá því í gær að lögreglustjóri hafi ákært Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, fyrir ærumeiðingar gegn héraðsdómaranum Barböru Björnsdóttur.

Margrét hafði látið meintar ærumeiðingar falla á facebook síðu sinni að kvöldi dags sem Barbara sakfelldi Margréti fyrir líflátshótun gegn Semu Erlu og dæmdi hana í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Um var að ræða fimm ára gamalt atvik sem átti sér stað fyrir utan bar í Reykjavík í ágúst 2018. Lögreglan hætti rannsókn málsins á sínum tíma en saksóknari tók málið upp aftur einhverju síðar, en þá var Margrét komin með eigin fjölmiðil, Fréttin.is, umdeildan vef eins og RÚV kallar það.

(Vefurinn“ hefur fjallað mikið um Covid tímabilið og t.d. vakið athygli á fjölda rannsókna á svokölluðum Covid bólusetningum og skaðanum sem þær hafa valdið og svindli í markaðssetningu efnanna. Tíminn mun leiða í ljós hversu umdeilt efni Fréttin.is hefur birt annars vegar og hins vegar hversu óumdeilt efni RÚV hefur birt í þessum efnum. Allt geymist þetta á veraldarvefnum nema kannski fréttir sem óvart detta út hjá RÚV (en hunskast til að setja inn aftur þegar þeim berst fyrirspurn.) Einnig hefur vefurinn verið sá eini sem undanfarið hefur fjallað um fósturvísamálið svokallaða.)

 

Dómi Barböru snúið við í Landsrétti 

Dómi Barböru gegn Margréti var snúið við í Landsrétti í desember sl. Ekki var hægt að sanna hvað nákvæmlega var sagt fyrir utan barinn sumarið 2018.

Barbara kærir síðan Margréti fyrir meiðyrði í apríl 2023, hún höfðar sem sagt ekki einkamál eins og tíðkast með ærumeiðingar. Og nú hefur lögreglustjórinn gefið út ákæru. Lögreglan aðhefst vanalega ekkert í svona málum.

Margrét er m.a. ákærð fyrir að kalla dómarann lausláta mellu vegna sögusagna um samband hennar við annan dómara sem nú situr í Landsrétti (en var þó ekki einn af dómurunum í máli Margrétar þar).

Barbara kærir Margréti einnig fyrir að skrifa að Barbara hafi falsað vitnisburðinn. En það gerði dómarinn vissulega. Ég var í réttarsal þegar vitnaleiðslur fóru fram og eins las ég dóminn. Dómarinn laug, sjá nánar

Þess má einnig geta að svo virtist sem Sema Erla hefði e.k. vald í dómsalnum. Hún kveinkaði sér undan því að Margrét væri að horfa á sig á meðan Sema gaf sína skýrslu og sagðist bara „ekki geta þetta.“ Dómarinn bauð þá Margréti að fara inn í sérherbergi og fylgjast með þaðan á skjá, eins og tíðkast í t.d. barnaníðingsmálum!

Það verður áhugavert að sjá hvernig málið með Barböru og Margréti fer og eins og segir í frétt Dv.is þá hefur Barbara óskað eftir lokuðu þinghaldi, sem lögmaður Margrétar hefur hafnað.


Arnar Þór teiknaður sem nasisti

Til samanburðar mætti t.d. skoða mál Arnars Þórs lögmanns og fyrrv. forsetaframbjóðanda sem var einmitt verjandi Margrétar í héraðsdómi í umræddu máli.

Arnar er teiknaður upp sem nasisti í skopmynd Halldórs á vísi.is, sem sagt fjöldamorðingi er tengist helförinni.

nasisti

Arnar kærði myndina sem ærumeiðandi  til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands og taldi lög vera brotin. Félagði taldi ekki að um brot væri að ræða.

Þess má auðvitað einnig geta að fjölmiðar hafa sagt Arnar Þór umdeildan. Á fyrsta blaðamannafundi í forsetakosningum var t.d. reynt að klína á Arnar að hann væri með umdeildar skoðanir. „Á hverju?“ spurði Arnar. „Á bóluefnum“, var svarið. „Hafa þau (bóluefnin) gefist vel?“ spurði hann. Þá kom bara þögn.

Er munur á teikningu og skrifuðum orðum á facebook? Er fótur fyrir því að Arnar sé tengdur nasistum og/eða helförinni?

Hvað ef Margrét hefði teiknað dómarann í gríni sem lausláta mellu" í dómssal, í e.k. mellubúningi?

Fer kerfið öðruvísi með umdeilda einstaklinga en „óumdeilda sbr. t.d. vinsælasta bloggara mbl.is, Pál Vilhjálmsson sem virðist nýlega hafa verið rekinn úr starfi sem kennari. Hann er álitinn umdeildur kennari af fjölmiðlum?

Er hann það? Eða kannski með umdeildar skoðanir? Páll heldur því m.a.s. bara blákalt fram að kynin séu bara tvö og ekki sé hægt að fæðast í röngum líkama! 


Barbara dæmir lögmanni sínum óvenju háan málskostnað 

Eitt umdeilt hér að lokum. Barbara dómari sýknaði atvinnurekanda af meintri nauðgun í maí 2023. Lögmaður meinta nauðgarans var Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, en hann var einmitt lögmaður Barböru Björnsdóttur í kærumálinu gegn Margréti.

Málskostnaðurinn sem Barbara dæmir Vilhjálmi þykir óvenju hár, en þóknun Vilhjálms hljóðaði upp á 4.218.480 kr. að undanskildum virðisauka.

Var verið að greiða Vilhjálmi „óbeint“ úr ríkissjóði fyrir lögmannsstörf hans í máli Barbörgu gegn Margréti? Þetta er tvö-til þreföld fjárhæð þess sem gengur og gerist í svona málum.


Og hvers vegna höfðar Barbara ekki sjálf einkamál í stað þess að láta ríkið vinna það og borga fyrir sig? 

p.s. það eru ca. 99% líkur á að héraðsdómur dæmi ákæruvaldinu í hag, þannig er þetta, en svo er það Landsréttur.

 


Hunsa þessar kappræður - x Arnar Þór

frambjóendur

Fyr­ir svör­um í kappræðum mbl.is verða þeir fimm for­setafram­bjóðend­ur sem hlotið hafa 10% fylgi í skoðana­könn­un­um eða meira. Eng­ir fram­bjóðend­ur aðrir hafa náð 10% fylgi í þeim viður­kenndu skoðana­könn­un­um sem gerðar hafa verið í aðdrag­anda for­seta­kjörs." 

Læt þessi orð Sigurðar Oddsonar fylgja (svar undir færslu Jóns Steinars):

 

Í framboði til forseta eru 12 einstaklingar. Þeir 5, sem eru með mesta fylgið hafa mikið verið í umræðunni og eru þjóðþekktir.
Í fyrsta sinn, sem spurt er þekkja flestir í markhópnum þá 5 og velja einhvern þeirra, sem sinn forseta án þess að vita mikið um hina 7.
Skoðanakönnunin sýnir svo að þessi 5 fá yfirgnæfandi meirihluta og hinir 7 allt niður fyrir 1%.
Síðan er fjallað um niðurstöðuna án þess að minnast mikið á aðra en þessa 5.
Eftir daglega könnun er sýnt með línuriti, hvernig fylgi breytist hjá þessum 5 og ekki minnst á hina 7. Þeir verða berjast í tímahraki við að kynna sig með miklum kostnaði á meðan þau hin eru með fría kynningu hjá stærstu fjölmiðlunum og sum með frítt myndefni fyrir sjónvarp.
Niðurstaðan er að margir sem ekki fylgjast með virðast ekki vita að í framboði séu fleiri en 5 + Ástþór.
Ég bjóst við að RÚV myndi kynna sinn frambjóðanda á hlutdrægum hátt líkt og Guðna, en svo er ekki núna.
Ekki átt ég von á að Mbl. myndi gera það sbr. hraðferð um landið með fimmmenningana.
 
Svo eru nú kappræður á mbl.is með þeim sem tóku þátt í hraðferðinni og alveg horft framhjá þeim sjötta, sem er með 6+% á meðan hinir 6 eru með um og innan við 1%.


Skoðanakannanir eru ólýðræðislegt apparat og æsa líka upp menn eins og Glúm Baldvinsson sem reynir að skipa fólki fyrir verkum.  




mbl.is Forsetakappræður á mbl.is í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetakosningar: Viðsnúningur að hætti Ólafs Ragnars?

katrinórg
 
Ég birti þennan pistil á Nútímanum í dag og endurbirti hér. Að gamni má geta þess að sjálf hef ég alltaf verið hrifinn af Ögmundi Jónassyni (VG) og myndi líklega nefna hann sem minn uppáhalds stjórnmálamann í gegnum tíðina.
 

Hér kemur greinin:


Einn af þekktari og óvæntari atburðum í íslenskri stjórnmálasögu er þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, skipti um fylgi ef svo má að orði komast. Í upphafi síns ferils naut Ólafur Ragnar helst fylgis í herbúðum sem sumir kalla vinstri, en síður hjá hægrimönnum. Undir lokin voru það hins vegar hægrimenn sem báru hann uppi. Nú virðist svipað vera að gerast enn á ný.

Katrín Jakobsdóttir, sem var og er reyndar enn eftir því sem best er vitað í VG, nær miklu fylgi meðal kjósenda flokka sem oft eru taldir spanna frá miðju til hægri. Hún nýtur reyndar stuðnings alveg úti á jaðri; Hannes Hólmstein Gissurarson styður hana með áberandi hætti. Þessu er öfugt farið með Arnar Þór Jónsson, sem var einu sinni í Sjálfstæðisflokknum.

Tómas Ísleifsson, þekktur innanbúðarmaður í VG styður Arnar Þór með rökum sem hann segir frá í Morgunblaðinu nýlega. Morgunblaðið sjálft hampar helst nokkrum frambjóðendum sem eiga það sameiginlegt að hafa verið í framboði fyrir VG eða Samfylkingu, eða tala eins og þeir væru það. Moggi hampar ekki Arnari Þór, sem hefur sagt upp áskriftinni að blaðinu. Á hinn bóginn hefur Arnar Þór Jónsson oftar en einu sinni verið gestur á Samstöðinni.

Ætli þetta sé undanfari fylgisaukningar Arnars Þórs; að hann sópi að sér fylgi fullveldissinna af vinstri kantinum, taki með sér stóran hóp hægrimanna, og landi kosningunum? Það skyldi þó aldrei vera.




 
 

Halldór teiknar Arnar Þór í nasistabúningi

Skopmyndateiknarar hafa oftast meira frelsi en aðrir til að ýkja raunveruleikann og móðga fólk, sérstaklega stjórnmálamenn. 

En það kemur líka fyrir að þeir séu reknir úr starfi. Dagblaðið Guardian rak t.d einn slíkan á síðasta ári. Það var teiknarinn Steve Bell, sem hefur lengi verið skopmyndateiknari. Hann á að hafa neitað að birta teikningu af Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sem gagnrýnendur sögðu að byggði á gyðingahatri.

Ástralski skopmyndateiknarinn Michael Leunig var rekinn frá blaðinu The Age árið 2021. 

cartoonHann teiknaði mynd í tengslum við skyldubólusetningar í Ástralíu á Covid-tímum. Þar er Covid-bólusetningum líkt við morðin á Torgi hins himneska friðar. Gangrýnin beinst að ríkisstjórn Ástralíu.
Þá voru á síðasti ári þrír verðlauna -skopmyndateiknarar reknir á einum degi í Bandaríkjunum. Sjá nánar hér.

Í gær birti Vísir teikningu eftir Halldór af nokkrum forsetaframbjóðendum. Þar var Arnar Þór Jónsson klæddur í nasistabúning. Það má glögglega sjá ef myndir af þess konar búningum eru skoðaðar. Ekki sést í hakakrossinn á rauða borðanum á hægri handlegg en búningurinn er SS liðsforingjabúningur (þ. traditionsanzug der SS unterscharführer): Brún skyrta, svart bindi, rauður borði á vinstri handlegg, axlabelti og svartar pokaðar reiðbuxur.

ssuniform

Arnar sagði á facebook í gær að hann hafi sent kæru til siðanefndar Blaðamannafélag Íslands vegna myndarinnar. Að þarna hafi menn farið yfir strikið og brotið lög og bendir á að hann sé þarna settur í búning sem stangast á við allan hans boðskap, eða einmitt það sem hann hefur talað gegn. 

Arnar var t.d. eini þingmaðurinn sem gagnrýndi ofríki og valdníðslu yfirvalda á Covid-tímum, kallaði einnig eftir því með opnu bréfi í Mogganum 2022 (sjá neðar) að læknar myndu lýsa því yfir að Covid-sprautuefnin sem þeir vildu m.a.s. sprauta í börnin væru í raun örugg.

Enginn læknir svaraði. Arnar benti margoft á að yfirvöld hafi farið út fyrir vald sitt og brotið á fólki í nafni „öryggis“. Við vitum í dag hverslags blekkingar og lygar voru þarna í gangi. Hættan stórlega ýkt og ungt og hraust fólk sprautað með skaðlegum efnum.

Það verður því áhugavert að sjá hvað siðanefnd BÍ segir um teikningu Halldórs í Vísi. Við vitum að Ásdís Rán er fyrirsæta og Baldur samkynhneigður og að Katrín og Sjálfstæðisflokkurinn vinna náið saman. En er Arnar Þór nasisti eða hefur hann með einhverjum hætti lýst aðdáun sinni eða stuðningi á þess konar stjórnarháttum? Hefur hann ekki einmitt talað þvert á ofríki og valdboð í samfélaginu? Er í lagi að kalla (teikna) menn nasista og þá um leið fjöldamorðingja bara í gríni? 

Hér má einnig sjá dæmi um ástralska stjórmálamenn frá því í fyrra sem hótuðu dagblaði málsókn vegna skopmyndar sem líkti þeim við nasista. 


Bréf Arnars til lækna árið 2022.

opiðbrefarnar

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband