Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2021

Tilraunarottur sóttvarnarlæknis!

rotta,,Líða fer að ann­arri bólu­setn­ingu fólks sem fékk fyrsta skammt­inn af bólu­efni AstraZeneca en er nú ekki í þeim hópi sem bólu­efnið er ætlað. Þetta fólk mun geta valið að fá aft­ur AstraZeneca en að öðrum kosti fengið skammt af öðru bólu­efni."

Þetta sambland hefur ALDREI VERIÐ RANNSAKAÐ. Augljóst að það á að nota yngra kvenfólk að mestu í þessa tilraun (þetta er helst starfsfólk elliheimila, konur í heimahjúkrun og þess háttar, sem sagt konur). En annars má velja að taka annan skammt af Astra, segir sóttvarnarlæknir, þó það sé ekki fyrir þann aldurshóp, ef ég skil þetta rétt. Það á sem sagt annað hvort að bjóða þessum hópi Astra sem konur yngri en 55 mega ekki fá skv. nýjustu reglunum um aldur, eða lyf af annari tegund sem unnið er með annari tækni (mRNA), í bland við hitt. Spáið í það, bjóða konum lyf sem búið var að finna út að væri áhættusamt fyrir þann hóp! Er einhver á prósentum í þessum bóluefnabransa hér heima?

Fjallaði um þetta um daginn! Sjá hér. Væri ekki nær að landlæknir mætti í sína fyrstu sprautu áður en farið verður í frekari tilraunir á yngri konum! 

Og nú hætta Danir að nota Jansen. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þetta væri einhverskonar leikur! Prófa smá, hætta, breyta aldurshópum, prófa aftur, banna þennan aldurshóp, nei leyfa hann aftur, prófa aftur hinn sem ekki mátti fá fyrst,  prófa þá bara karlana, fór ekki nógu vel í konurnar, blanda saman tveimur ólíkum tegundum eða bjóða þá samt hitt sem búið var að banna.

 

 

 

 


mbl.is Sennilega ráðist í tilviljanakennda bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur landlæknir ekki mætt í bólusetninguna?

truthmedia18.400 manns fá bólu­efna­skammt gegn C19 í Laug­ar­dals­höll í vik­unni en þar af fá 7.400 sinn ann­an skammt og öðlast þannig fulla bólu­setn­ingu. Ekki er út­lit fyr­ir að bólu­sett verði eft­ir ald­urs­hóp­um í þess­ari viku."

Í síðustu viku fengu þeir sem fæddir eru árið 1961 kvaðningu um að mæta skv. þessari frétt.

„Við boðuðum þá sem fædd­ir eru 1961 og eldri í dag en við erum búin að boða all­an 1962 ár­gang­inn og erum að fara að boða 1963 ár­gang­inn,“ seg­ir Jór­laug. 

Landlæknir, Alma Möller, er fædd árið 1961. Ekki hefur borið á því að hún hafi mætt. Það hefði nú örugglega komið í fréttum, myndir af bólusetningunni og lófaklapp. Er hún kannski í anti-vax hópnum með tengdó?

Maður heyrði bara af Bubba sem ákvað að stíga út úr óttanum og skella sér, tilkynnti svo að hann væri frekar veikur.

p.s. myndin er ekki beint í tengslum við þennan texta, en góð mynd og táknræn fyrir tímana sem við nú lifum.

Uppfært: Þetta er komið, fékk klapp og kökur. Algjör hetja!


mbl.is 18.400 manns fá bóluefni í Höllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband