Leita í fréttum mbl.is

Sprenging í POTS, stjórnvöld bera 100% ábyrgð

POTSÞað hefur orðið sprenging í POTS sjúkdómnum síðustu ár sem lýsir sér m.a. í hjartsláttartruflunum, yfirliði o.fl. Læknar vita að aukninguna megi rekja til Covid bólusetninga, en opinberlega segja þeir ekkert, heldur benda á Covid sýkingar sem helstu ástæðu. 

Sú kenning læknasamfélagsins gengur ekki upp. Íslendingar eru meðal bólusettustu þjóða heims og hefðu því átt að vera vel varðir gegn Covid sýkingum, hefðu a.m.k. ekki átt að fá alvarlega sjúkdóma í kjölfarið. Læknar verða að viðurkenna að þessi fullyrðing sem haldin var að fólki hafi verið röng, það fengu nánast allir Covid þrátt fyrir bólusetningarnar og margir eru enn veikir. Og samanburður milli þeirra sem fengu efnin og þeirra sem fengu ekki, þolir ekki dagsljósið.

Tóku á sig ábyrgð á skaðanum

Íslenska ríkið tók á sig ábyrgð á skaðanum sem bóluefnin kynnu að valda. Ríkið, þáverandi heilbrigðisráðherra a.m.k., samþykkti samning þar sem segir að lyfjaframleiðendur séu stikkfrí og að kaupendur (ríkin) tækju á sig alla ábyrgðina. Í samningnum stendur líka að ekkert sé vitað um langtímavirkni og áhrif þessara nýju bóluefna sem verið var að gefa milljörðum manna í fyrsta sinn í sögunni. Þennan kaupsamning neita yfirvöld að afhenda almenningi en honum var þó lekið á netið fyrir þó nokkru og má lesa hér. Sjá sérstaklega bls. 48-49 og bls. 52.

Íslenska ríkið á því að greiða allan kostnað af þeim veikindum sem fólk fékk í kjölfar sprautanna, og skuldar fólkinu reyndar milljónir í skaðabætur sbr. lög sem Alþingi samþykkti árið 2020.

 

Ný heimildarmynd um mRNA bóluefnin 

Í þessari nýju heimildarmynd má sjá hvernig efnið hefur með tímanum áhrif á líkamann, fer inn í öll líffæri og þá sérstaklega æxlunarfærin. Munið þið eftir þessari frétt um blæðingaróreglu kvenna? 

Myndin hefst á samtali við bandarískan skurðlækni sem er í dag óvinnufær eftir sprauturnar, hann missti  máttinn í fótleggjum og fékk alls konar kvilla í kjölfarið.

Á mínútu ca. 16 er samhengið milli POTS og efnanna útskýrt af bandarískum hjartalækni, en sá er einn af „mest útgefni læknir heims.“ 

Einnig er talað við Jessica Sutta, fyrrv. dansara og söngkonu í sveitinni Pussy Cats. En hún missti heilsuna í kjölfar sprautanna.

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og átján?
Nota HTML-ham

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband