Leita í fréttum mbl.is

Hver er bólusetningastaða þeirra greindu og látnu?

Það sem vantar alveg inn í svona fréttir er hver bólusetningastaða þeirra veiku (greindu) og látnu er. Því samhliða svona fréttum er oftast talað um bólusetningar í leiðinni og þannig er það í pappírsútgáfu Moggans í dag (og sbr. mynd með þessari tengdu frétt):

19 létust af Covid-19. Hver var bólusetningastaða þeirra? 90% landsmanna hafa fengið Covid-sprautur og hlutfallið er enn hærra hjá 70 ára og eldri.

Segir í skýrslunni að tímabært sé að skoða hvort hægt sé að afmarka frekar hvaða hópar þurfa enn Covid-bólusetningu reglulega. Árið 2025 er síðasta árið sem samevrópskir samningar um covid19-bóluefni skila bóluefni hingað til lands."

Og:

Í fyrra greindust 145 með kíghósta og var helmingur þeirra börn 14 ára og yngri, þar af sex ungbörn á fyrsta aldursári, en þeim er hættast við alvarlegum veikindum. Enginn lést vegna kíghósta í fyrra. Frá 2019 hefur verið boðin bólusetning gegn kíghósta á meðgöngu með ágætri þátttöku, eða um 70%."

Í svona frétt þar sem fjallað er um veikindi og bólusetningar samhliða, þá vantar algjörlega samanburðinn. Hvaða börn fengu kíghósta, mæður þeirra sem ekki fengu bólusetningu á meðgöngu, börn sem ekki fengu sjálf kíghósta bólusetninga eða hvað?

Hér er samantekt frá því í fyrra í tengslum við sýkingar í skólum. Skv. fyrirspurn og svari sóttvarnalæknis höfðu allir þeirra greindu fengið bóluefnið.

Án þessara upplýsinga eru engin vísindi til staðar! Og konurnar á mæðratips" missa sig og saka foreldra um að bólusetja ekki börnin sín!!

https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2301684/

Í þessu samhengi mætti einnig nefna að heilbrigðisyfirvöld eru ekkert að hafa fyrir því að kanna flensubólusetningastöðu (eða segja það a.m.k.) þeirra sem lagðir eru inn vegna flensunnar. Hvernig væri það nú? Þau segjast ekkert vita um samband flensubólusetninga og innlagna vegna flensunnar. En sú vísindi! ;)

https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2310303/





mbl.is Versta bylgja kíghósta í nær 30 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekki er óvarlegt að áætla að sprautuhlutfallið sé svipað og í heildarþýðinu þ.e. yfir 90%. Með því að sprauta næstum öll var líka eyðilagður sá möguleiki til framtíðar að gera marktækar rannsóknir á afleiðingunum samanborið við afdrif ósprautaðra. Enda hefur enginn haft samband við neinn til að óska eftir þátttöku í neinum slíkum rannsóknum og ólíklegt er að þau sem sniðgengu þetta kæri sig um slíkt eftir að heilbrigðisyfirvöld gerðu þau markvisst að útskúfuðum minnihlutahópi.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.7.2025 kl. 17:00

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

það er enn nóg til af óbólusettu fólki hér á landi til að taka þátt í samanburði.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 1.7.2025 kl. 17:23

3 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

ég hafnaði óvert athugasemdinni þar sem þú spurðir Guðmundur:


Já en hversu viljug eru þau til þátttöku í rannsóknum?

ef þú átt við þá óbólusettu held ég að margir þeirra væru reiðubúnir, en frekar ætti að spyrja: hver vill gera þannig rannsókn. Vísindasamfélagið hefur ekki áhuga og hefur aldrei haft. Það er varla að finna neinar þannig rannsóknir þar sem samanburður er.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 1.7.2025 kl. 19:43

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Allir.
Þeir einu sem fá Kóvid núna eru sprautaðir.  Vegna ADE.

Ásgrímur Hartmannsson, 1.7.2025 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og sex?
Nota HTML-ham

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband