25.11.2023 | 10:12
Hvers vegna eru bólusettu börnin með "long covid"?
Rannsakendur hafa skoðað langvarandi einkenni Covid-19 í íslenskum börnum. Komust þeir að því að langvarandi einkenni vegna sjúkdómsins eru algeng meðal þeirra og hafa áhrif á lífsgæði barnanna. Þetta kemur fram í viðtengdri frétt.
Rannsakendur voru m.a. barnalæknarnir Valtýr Thors og Ásgeir Haraldsson. Báðir mæltu þeir með því að íslensk börn fengju Covid bóluefni þrátt fyrir að hafa lokið eða um það bil verið að ljúka rannsókn þar sem fram kom að smit meðal barna á Íslandi hafi verið skoðuð í þremur smitbylgjum og leitt í ljós að smit í skólum væru fátíð, innlagnir barna engar á rannsóknartímabilinu og sjúkdómurinn væri ekki alvarlegur meðal barna.
Samt sem áður mæltu barnalæknarnir tveir (ásamt fleiri læknum), Valtýr og Ásgeir eindregið með því að börnin fengju þetta nýja tilraunalyf sem þó var vitað að hefði alvarlegar aukaverkanir.
Í eftirfylgnihluta rannsóknarinnar hjá þeim félögum kemur síðan fram að íslensku börnin væru að glíma við "long-covid" sem vissulega myndi flokkast sem alvarlegur/ir kvillar, þar á meðal hjartsláttatruflanir. Þegar þessi hluti rannsóknarinnar er gerður hafði meirihluti barna hér á landi fengið bóluefnið sem þeir mæltu með. En í rannsókninni er enginn samanburður milli hópanna eða minnst á sprauturnar. Eins og þær væru ekki til.
Rannsakendur telja mikilvægt að skoða áhrif langvarandi einkenna vegna Covid-19 á börn frekar og skoða fyrirbyggjandi aðgerðir", segir í niðurlagi fréttar mbl.is. Voru bóluefnin sem þeir mæltu með ekki fyrirbyggjandi aðgerð - ef ekki hvað voru þau þá?
Rannsóknarniðurstöður eru í takt við áframhald Covid-narratífsins. Ekki má minnast á skaðann sem sprauturnar hafa valdið, læknar segja að veikindin séu vegna Covid pestarinnar, burt séð frá því hvort viðkomandi hafi verið mikið eða lítið sem ekkert veikur af henni (mælst jákvæður). Og landlæknir telur að umframdauðsföll séu vegna Covid, og það eftir mörg hundruð þúsund gefna sprautuskammta!
Þetta mátti heyra snemma í ferlinu, munið handboltakonuna Ragnheiði Júlíusdóttur? Hún var þrísprautuð en með "long covid"? Það stemmir ekki við áróðurinn, þ.e. að sprauturnar ættu að koma í veg fyrir mikil veikindi. Í hvaða áhættu var ung og hraust íþróttakona með Covid? Hvers vegna þurfti hún að fá svona sprautur?
Samanburðarrannsókn á sprautuðum og ósprautuðum einstaklingum er eina vitið í þessum efnum. Í október átti ég og Helga Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir fund með heilbrigðisráðherra. Hann tók vel í að framkvæmd yrði samanburðarrannsókn á heilsu barna, sprautuðum og ekki sprautuðum.
Að rannsaka heilbrigði fólks eftir Covid án þess að skoða bólusetningastöðu er einskis virði og í raun fölsun á sögunni. Það er verið að velta veikindum af sprautum (í mörgum tilfellum a.m.k.) yfir á pestina sjálfa og það m.a. hjá fólki sem er margsprautað með lyfinu sem átti að koma í veg fyrir veikindi.
Hér má einnig sjá fyrirlestur Valtýs frá árinu 2020 um skaðleysi covid á börn. Ekki löngu síðar hvatti hann til þess að börnin fengju covid-sprautur.
Conflicts of interest:
Í seinni hluta rannsóknarinnar kemur fram:
VT (Valtýr Thors) has undertaken consultancy work for Pfizer and Sanofi. All funding related to these activities is paid to his employers, Landspitali University Hospitals Reykjavik, Iceland.
En í fyrri hluta rannsóknar:
The authors have no funding or conflicts of interest to disclose.
Sem sagt Valtýr verið í ráðgjafastörfum fyrir Pfizer og Sanofi eftir fyrri hluta rannsóknar. Fær ekki greiðslur fyrir það persónulega, heldur LSH.
Í dag er hann orðinn yfirlæknir barnalækninga hjá LSH.
Langvarandi einkenni Covid-19 meðal íslenskra barna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Af mbl.is
Innlent
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
- Svona verður verkfall lækna á Akureyri
- Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn systur sinni
- Einn fluttur á slysadeild: Miklar umferðartafir
- Myndir: Náttúrulegur þröskuldur að taka við
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
- Yfir 300 stæði fóru undir hraun
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
Erlent
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
Athugasemdir
Nauðsynleg forsenda samanburðarrannsóknar er að hafa "grunnlínu" eða hluta af þýðinu sem hefur verið einangraður frá þeim áhrifaþætti sem á að rannsaka. Í þessu tilviki væru það þau sem hafa ekki fengið sprautu, til að bera saman við þau sem voru sprautuð. Enn betra væri ef hægt er að skipta hvorum hópnum eftir því hvort þau hafi smitast af veirunni eða ekki. Þá væri hægt að bera hópana saman eftir hverjum áhrifaþætti fyrir sig þ.e. annars vegar veirunni sjálfri og hins vegar sprautunum. Með því að smala sem flestum í sprauturnar var fækkað svo mikið í grunnlínuhópnum að það gæti gert svona samanburðarrannsóknir erfiðar.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.11.2023 kl. 14:58
Það er enn slatti eftir sem ekki fékk sprautu, nóg til að bera saman en efast um að þeir hafi áhuga og tel mjög líklegt að þeir viti hvað sú rannsókn muni leiða í ljós.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 25.11.2023 kl. 17:56
og þá að ráðherra hafi tekið vel í að gera samanburðarrannsókn þá yrði ég yfir mig hiss ef sú rannsókn yrði að raunveruleika.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 25.11.2023 kl. 17:57
Þetta var Ásgeir barnalæknir búinn að gefa sér fyrirfram:
Vissulega getur bólusetning haft aukaverkanir í för með sér, segir Ásgeir, en afleiðingarnar af því að smitast séu ávallt alvarlegri
en þessi rannsókn sýnir að börnin eru að veikjast alvarlega, en hvor hópurinn? Vilja þeir ekki sýna fram á að fullyrðing þeirra sé rétt?
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 25.11.2023 kl. 18:15
Það þyrfti að fá svör við því en ekki er víst að þeir sem eiga hagsmuna að gæta vilji að þau svör komi fram.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.11.2023 kl. 18:30
Góð grunnlína er líka ástandið eins og það var á þessu sama þýði áður en inngrip var gert.
Mér skilst að alger lágmarks-fjöldi til að fá marktækar niðurstöður úr hvorum hóp séu 15 manns.
Það er nóg til í það.
"Og landlæknir telur að umframdauðsföll séu vegna Covid, og það eftir mörg hundruð þúsund gefna sprautuskammta!"
Þetta er auðvelt að athuga, vegna þess að svo margir voru mældir, að nær allir sem fengu kóvid AD 2020 eru nafngreinanlegir.
Svo... ef það er rétt, þá er ca 1/5 af þeim dauður núna.
Ásgrímur Hartmannsson, 26.11.2023 kl. 00:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.