Leita í fréttum mbl.is

Starfsfólk Pfizer fékk sérstaka framleiðslulotu af bóluefninu

Yfirmaður hjá Pfizer hefur upplýst að starfsfólk lyfjafyrirtækisins hafi fengið „sérstaka lotu“ af Covid-19 bóluefni, sem var verulega ólíkt bóluefninu sem dreift var til almennings.

Þetta opinberaðist við yfirheyrslur í öldungadeild ástralska þingsins þar sem talsmaður Pfizer upplýsti að lyfjafyrirtækið hafi flutt inn sérstaka lotu af COVID-19 bóluefnum sem eingöngu var notuð í bólusetningar á starfsfólki Pfizer.


Það var ástralski öldungadeildarþingmaðurinn Malcolm Roberts sem leiddi yfirheyrslur yfir yfirlækni Pfizer í Ástralíu, Dr. Krishan Thiru, og yfirmanni eftirlitsvísinda, Dr. Brian Hewitt. Spurningar Roberts leiddu að lokum til þess að Dr. Thiru viðurkenndi að starfsmenn Pfizer hefðu ekki fengið venjulegt bóluefni.

Þá vitum við það, hvað með hér heima? Fengu ekki allir sömu loturnar? Munið að landsmenn sem fengu strikamerkið* sent í sms  var ekki kallað í Höllina samkvæmt stafrófsröð eða tilviljanakennt, heldur voru ákveðnir árgangar og starfstéttir boðaðir á ákveðnum dögum og tíma. Það þótti einnig mjög göfugt að bíða eftir að röðin kæmi að sér.

Þessu tengt þá sýnir t.d. þessa danska rannsókn að um 5% lotanna tengist meirihluta alvarlegra tilkynntra aukavakerkana, m.a. dauðsföll.


Hér má sjá upptöku úr ástralska þinginu þar sem þetta kemur fram

 

*strikamerkið var tengt við kennitölu viðkomandi en ekki bóluefnið, þannig fengu þeir sem boðaðir voru í ýmis konar tegundir af bóluefni alltaf sama strikamerkið burt séð frá tegund bóluefnis sem boðað var í. Manneskjan var því vörumerkið en ekki bóluefnið. Þeir sem enn eiga strikamerkin geta skoðað þetta (þ.e.a.s ef þeir ekki sinntu t.d. fyrsta boði og fengu fleiri boð í kjölfarið).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband