Leita í fréttum mbl.is

Froðusnakkurinn Kári Stefánsson

„Auðvelt að vera klár eftir á“ er fyrirsögn á grein Moggans sem fjallar um viðtal Kára Stefánssonar á Bylgjunni þar sem hann segir að eftir á að hyggja hefði bara átt að „bólusetja" 50 ára og eldri. (Þetta er ekki bóluefni heldur líftæknilyf sem aldrei hafði áður verið notað á mannfólki.)

Það var ekki erfitt að vera klár frá byrjun. Kári er froðusnakkur og segir það sem hentar hverju sinni, ókjörinn ráðgjafi íslenskra heilbrigðisyfirvalda sem starfar fyrir erlenda fyrirtækið Amgen, eiganda ÍE. Hann er sölumaður. Það voru margir vísindamenn sem upplýstu um hættuna frá byrjun, en voru hunsaðir af fjölmiðlum og fleirum.

Kári froðusnakkur fékk að vaða uppi í helstu fjölmiðlum og hræða fólk til hlýðni, fá það til að sprauta sig með hættulegu „bóluefni“ sem stóðst ekki kröfur um það sem á ensku kallast Good Manufacturing Practices og því ekki hægt að kalla lyf eða bóluefni. Þetta voru allt svik frá upphafi og Kári bóluefnasali tók þátt í glæpnum.

Ekki einu sinni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) reyndi að halda því fram að C-19 hafi verið stórhættulegur sjúkdómur eins og Kári segir að hefði mátt reikna með í upphafi.


Hér er upphaflega skilgreining WHO (henni var breytt síðar en ekki hvað varðar hættuna).

Coronavirus disease (COVID-19) is an infectious disease caused by a newly discovered coronavirus.

Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment.  Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness.

 

Sem sagt, flestir fá væg einkenni af pestinni og munu ná sér án sérstakrar meðferðar, samkvæmt WHO, helsta ráðgjafa íslenskra yfirvalda.

Boðaði hjarðónæmi - en aldrei var prófað hvort „bóluefnið“ kæmi í veg fyrir smit

 

Kári froðusnakkur sem vildi fá Pfizer til að nota íslensku þjóðina sem tilraunadýr (sem þau voru þrátt fyrir allt), staðhæfði í viðtali við Morgunblaðið í nóvember 2020, að „bóluefnin“ væru feikilega góð:

„Þetta bólu­efni hef­ur alltaf þótt feiki­lega lof­andi,“ seg­ir Kári um fregn­ir af bólu­efni sem fram­leitt er af lyfja­fyr­ir­tæk­inu Pfizer og líf­tæknifyr­ir­tæk­inu Bi­oNTech. Hef­ur bólu­efnið í 90% til­vika komið í veg fyr­ir Covid-19-smit í þriðja fasa lyfjaþró­un­ar­inn­ar. „Það þykir feiki­lega góður ár­ang­ur, betri en ár­ang­ur­inn af flest­um in­flú­ensu­bólu­efn­um. Því er þetta af­skap­lega góð niðurstaða,“ seg­ir Kári.  

Hvernig gat hann sagt að efnið kæmi í veg fyrir smit í 90% tilvika? Það var aldrei prófað! Þetta viðurkenndi yfirmanneskjan, J. Small, hjá Pfizer í yfirheyrslum á Evrópuþinginu í október 2022. Hún sagði að enginn tími hafi gefist til þess. Hér má sjá þessa merkilegu játningu.

Þessi játning Pfizer staðfestir að allt tal um að ná hjarðónæmi var aldrei byggt á vísindum, það hafði aldrei verið rannsakað hvort sprautuefnið kæmi í veg fyrir útbreiðslu smita. „Að bólusetja sig fyrir aðra; ömmu og afa á Grund og Siggu frænku með sykursýkina“, var ekki byggt á vísindum. En áfram var haldið að ljúga að fólkinu á meðan landlæknir sat frá upphafi „bólusetninga“ og skráði niður smit meðal „bólusettra“. Frá þessari smitskráningu landlæknis var sagt frá á vef Lyfjastofnunar en var síðar tekið niður. Fréttina má þó finna á vefnum way-back-machine. Morgunblaðið sagði einnig frá á sínum tíma.

Kári froðusnakkur sagði í viðtalinu á Bylgjunni að meta þyrfti áhættuna þegar gefin eru lyf, og að í ljós hefði komið að hjartabólgur væri „sjaldgæf aukaverkun“.

Nei hún er ekki sjaldgæf Kári froðusnakkur. Fjöldi rannsókna hefur sýnt að hún er algeng, ásamt blóðtöppum, heilablóðfalli, lömunarsjúkdómum, augnsjúkdómum o.fl.

Hér er nýjasta rannsóknin frá Sviss sem sýnir hversu algeng hjartabólga er hjá sprautuþegum (búin að senda Kára hana
).

Hvað höfum við lært? Treystið ekki froðusnakknum Kára, lesið það sem helstu fjölmiðlar þegja um, lesið það sem þeir segja sem eiga ekki hagsmuna að gæta í formi peninga eða stjórnmála. 

Berið saman það sem „samsæriskenningasmiðir“ fjölluðu um annars vegar og „vísindi“ Kára froðusnakks og þríeykisins hins vegar. Hverjir eru með betri ferilskrá?

 

 

 


mbl.is „Auðvelt að vera klár eftir á“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snilldar samantekt hjá þer og svo sönn.

Nú bíðum við bara eftir því að forsetinn biðji

okkur afsökunar á sínum ummælum.

Sigurður Kristján Hjaltested, 4.8.2023 kl. 13:04

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það eru fjölmargir einstaklingar sem þurfa nú að koma fram og biðjast afsökunar á bullinu sem frá því hefur komið. Baðst Kári afsökunar á framferði sínu og öllum þeim fölsku yfirlýsingum sem hann lét út úr sér?

Tómas Ibsen Halldórsson, 4.8.2023 kl. 14:50

3 Smámynd: Guðrún Bergmann

Takk fyrir þessa frábæru samantekt um froðusnakkinn og hvernig hann, ásamt sóttvarnalækni og mörgum öðrum laug að þjóðinni.

Guðrún Bergmann, 4.8.2023 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband