Leita í fréttum mbl.is

Rifrildi um gagnslaust bóluefni

Ef þetta væri nú bóluefni sem stöðvaði smit og veikindi, myndi maður aðeins skilja þetta en þarna er fólk að rífast eins og þetta væri alvöru bóluefni sem veitir ónæmi.

„Ég hef aldrei upp­lifað annað eins. Það er ótrú­leg­ur hiti í báðar átt­ir. Þeir sem eru bólu­sett­ir eru að skamma þá sem eru óbólu­sett­ir og eru ekk­ert að segja: „Hey, láttu bólu­setja þig“, held­ur frek­ar eitt­hvað eins og: „Ég óska þess að þú dey­ir ef þú færð kór­ónu[veiruna] og þú ætt­ir að borga fyr­ir eig­in spít­ala­vist“ eða hrein­lega: „Þú ætt­ir ekki að mega fara á spít­ala ef þú ert ekki bólu­sett­ur“ og eitt­hvað svo­leiðis,“ seg­ir Halla.

En hefur fólk ekki áhuga á að vita hvers vegna leynd hvílir yfir bóluefni Pfizer, eða bara alveg sama hverju það sprautar í sig?


mbl.is „Ég hef aldrei upplifað annað eins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eitt blogg um fréttina.

Hvers vegna ætti fólk að treysta ríkisstjórnum?

Eða þingheim yfir höfuð?

Hér varð efnahagshrun og tugþúsundir urðu undir á marga vegu.

Þáverandi ríkisstjórn vissi löngu áður um þáverandi slæmri stöðu bankanna og amk hluti af þingheims, og þau þögðu.

Ein missti út úr sér ( samkvæmt wikileaks ) að Ísland væri best geymt í skjóli ESB.( tilheyrir flokk með yfirlýsta stefnu gegn aðild að ESB )

Nú starfar hún í skjóli flokka sem einmitt báru ábyrgð á því efnahagshruni.

Þessi ríkisstjórn ætlar sér að hlýta fyrirmælum WHO.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 19.11.2021 kl. 20:58

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Árið 1889 fæddist maður í þessu landi sem fluttist til Þýskalands árið 1913 en 20 árum síðar var hann kominn með skrýtið yfirvaraskegg og orðinn kanslari.

Hann byrjaði á því að loka tiltekinn þjóðfélagshóp af frá eðlilegri samfélagsþáttöku á þeim forsendum að af þeim stafaði samfélagsleg ógn sem þyrfti að stemma stigu við.

Engan grunaði þá að nokkrum árum seinna yrði öllum sem náðist til úr viðkomandi þjóðfélagshópi smalað upp í flutningalestir og sendir eins og búfé til slátrunar í gasklefum.

Er virkilega engin sögukennsla í austurríska skólakerfinu?

Hvar er svo Evrópusambandið núna? Eða bregst það kannski bara við mannréttindabrotum sem eru framin utan þess?

Ef fram heldur sem horfir verður nýtt stríð í Evrópu. Ekki milli ríkja heldur borgarastyrjaldir út um allt.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.11.2021 kl. 23:25

3 Smámynd: Ágúst Kárason

Ég hugsa að ef að þessar sprautur væru öruggar og virkuðu einsog fólk ætlaðist til af þeim þá væru sprautaðir ekki að skipta sér af þeim sem kjósa að halda sig frá þessu. Þeir sprautuðu myndu segja með bros á vör, "Þinn líkami, þitt val". En þegar þessar sprautur gera allt annað en að vernda gegn smiti þá beina þeir gremjunni að þeim ósprautuðu sem á móti segja "Minn líkami, mitt val".

Ágúst Kárason, 20.11.2021 kl. 04:02

4 identicon

Sæl Þórdís,
Það er auk þess leynd yfir þessum alvarlegu aukaverkunum eftir þessar svokölluðu bólusetningar í öllum þessum ritstýrðu -og ríkisstyrktu fjölmiðlum hér á landi.  
KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.11.2021 kl. 22:19

5 identicon

Góð færsla, Þórdís. Góðar athugasemdir frá Guðmundi og Ágústi.

Og Guðmundur, þú hefur rétt fyrir þér. Andi Adolfs frænda svífur yfir vötnunum bæði í heimalandinu Austurríki, í Þýzkalandi og á Ítalíu.

Nýfasisminn hefur breiðzt út um allan heim sl. tvö ár, ekki sízt í Evrópu og Norður-Ameríku. Hafa þeir sem börðust gegn fasismanum forðum látið lífið til einskis? Voru vonir þeirra um að vera fyrirmyndir komandi kynslóða að engu gert þegar fólk nútímans sýnir sig að vera illa gefnir, hlýðnir sauðir?

Við megum ekki gleyma að verstu glæpir mannkynssögunnar komu til af hlýðni, en ekki af óhlýðni. Bólusetnigarskylda með eiturefni er þannig glæpur nútímans.

Stefán (IP-tala skráð) 20.11.2021 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband