28.7.2021 | 13:21
Sjúklingurinn er sem sagt nýbólusettur á aldrinum 12 - 59 ára?
Einstaklingurinn sem liggur á gjörgæslu er undir sextugu, með undirliggjandi áhættuþætti og hefur verið í aðhlynningu á Covid-19-göngudeild Landspítalans. Þetta staðfestir Runólfur Pálsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild spítalans.
Sjúklingurinn telst óbólusettur en Runólfur bendir á að einstaklingar sem voru bólusettir fyrir viku teljist einnig óbólusettir enda séu áhrif bólusetningarinnar ekki komin fram fyrr en að tveimur til þremur vikum liðnum." (mbl.is)
Þannig að hann er nýbólusettur, les maður á milli línanna, á aldrinum 12 - 59 ára með undirliggjandi sjúkdóma? Ath. búið er að bólusetja 12-15 ára með undirliggjandi sjúkdóma. Síðasti bólusetningardagur í Höllinni var 14. júlí þannig að það hljóta að vera a.m.k. tvær vikur síðan nema þetta hafi verið sérstök ósk um bólusetningu fyrir þá sem alls ekki gátu beðið.
Uppfært: hér er orðrétt svar frá Runólfi:
Þetta byggir á upplýsingum sem við fengum um að þessi einstaklingur hafi einungis fengið fyrri skammt bóluefnis af tveimur fyrir einni viku síðan. Það tekur 2 vikur að fá fullnægjandi svörun við bóluefninu. Einstaklingar eru taldir fullbólusettir þegar a.m.k. 2 vikur eru liðnar frá gjöf seinni skammtsins af tveimur. Þetta er sem sé flokkað svona þó að gjöf bóluefnis sé auðvitað bólusetning. Það má auðvitað deila um þetta orðaval."
Samt er verið að boða ófrískar konur í þessar sprautur á morgun, margar hverjar sem eiga stutt eftir af meðgöngunni. Er áhættan þess virði í ljósi þess sem nú er að koma fram í helstu fjölmiðlum (lengi búið að vera í umræðunni annars staðar) í sambandi við þann mikla vanda sem konur stríða nú við með blæðingar sínar. Þær hafa stofnað hóp þar sem þær tala margar hverjar í örvæntingu um þessar breytingar og önnur veikindi eftir sprauturnar, þar á meðal blæðingar á meðgöngu!
Ef þetta er rétt mat hjá mér (sem það er eftir uppfærsluna) þá eru allir þeir átta sem nú liggja inni fullbólusettir (nema einn sem er nýlega bólusettur/hálfbólusettur). Meiriháttar gott bóluefni/líftæknilyf sem var verið að prófa á Íslendingum eða þannig! Enda segir í samningi ESB við Pfizer að hættan á því að framleiðsla bóluefnis mislukkist sé mjög mikil. Þeir vissu þetta og hafa þurft að setja þetta skriflega í samning (og rukka fyrirfram) svo þeim yrði ekki stefnt.
Enginn læknir, vísindamaður eða sérfræðingur hefur svarað þessari grein sem unnin er upp úr gögnum læknatímaritsins NEJM (New England Journal of Medicine), þrátt fyrir margar fyrirspurnir, bara pass! Enda vita þeir ekkert hvað var verið að selja þeimm ekki frekar enn menn vissu hvað þeir voru að kaupa með Decode bréfunum hér áður. Trúðu bara bisnesskallinum Kára sem sagði þessi lyf koma í veg fyrir SMIT í 90% tilfella.
Myndin sem fylgir var í Mogganum í gær. Ég hefði líka skrifað infertility drug á sprautuna. Til að vekja enn meiri úlfúð.
p.s. hér er grein eftir Guðrúnu Bergmann sem fjallar um innihaldið í þessum lyfjum, Grafen Oxíð (sbr. myndina í Mogga).
Óbólusettur í áhættuhópi á gjörgæslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Af mbl.is
Innlent
- Mikil eftirspurn eftir jólatrjám
- Þungt ástand í margar vikur vegna RS-veiru
- Spursmál: Jólakveðja og þáttur fyrir áramót
- Kona sakfelld fyrir að draga dreng eftir dyraat
- Furðulega margir heppnir síðustu vikurnar
- Láta ekki bara vopnin tala
- Ríkisstjórnin ekki beint á leiðinni í jólafrí
- Efling birtir lista yfir fimm fyrirtæki
- Fundaði með starfsfólki í fjóra tíma í gær
- Tilfellum RS-veiru fjölgar verulega
- Styttri afgreiðslutími vínbúða á aðfangadag
- Á allt sitt undir því að njóta trausts almennings
- Mín hugleiðsla
- Leiðindaveður yfir jólahátíðina
- Máttu ekki auglýsa mesta úrvalið og besta verðið
Fólk
- Hættulegt mengi sem við lifum í
- Ragnar Þór hélt jólin fyrr en vanalega
- Við getum jarðað alla
- Lífið er alveg lífshættulegt
- Óvæntar vísbendingar kynda undir sambandsorðróma
- Við vorum grimmdin
- Geggjaðar og gallaðar í senn
- Amma tramma skítaramma
- Aldrei hefði ég ímyndað mér að þetta myndi enda svona
- Meira kynlíf hjá mér
Athugasemdir
..."telst obólusettur".....en búinn að fá í sig sprautuefnið, kannski....
Leifur (IP-tala skráð) 28.7.2021 kl. 13:37
Skondið að sjúklingurinn teljist óbólusettur ef hann var bólusettur fyrir viku!
Við vitum nefninlega að alvarlegar aukaverkanir vegn bóluefnanna geta komið fram miklu fyrr og það jafn vel áður en viðkomandi er staðinn uppúr stólnum.
Fréttin er semsagt í skötulíki þar sem hún er sett í þannig búning að fljótt á litið fer lesandann ekki að gruna að um alvarlega aukaverkun gæti verið að ræða vegna bóluefnisins. Er þetta hugsanleg enn einn feluleikurinn í upplýsinga-sirkusnum?
Daníel Sigurðsson, 28.7.2021 kl. 14:53
Síðasti bólusetningardagur var 14.júlí eða fyrir tveim vikum. Nema þetta sé e.k. sérósk um sprautur t.d. hjá 12-15 ára þar sem foreldrar þurftu sérstaklega að biðja um og mæta á heilsugæslu eða annað.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 28.7.2021 kl. 16:11
Þetta er rétt metið hjá þér.
Það hefur komið fram að viðkomandi hafi fengið sprautu en teljist samt ekki fullbólusettur þar sem ekki nógu langt er liðið frá sprautunni til að ná skilgreiningunni.
Við það má bæta að einnig hefur komið fram að viðkomandi sé "á miðjum aldri" undir sextugu. Það hlýtur að þýða að hann sé a.m.k. ekki undir fertugu. Með þær upplýsingar ættirðu að geta þrengt tímasetninguna betur en í pistlinum.
Þessu var svo slegið upp í fjölmiðlum með fyrirsögnum sem voru undantekningalaust orðaðar þannig að þær kveiktu þá hugmynd að sá eini sem er á gjörgæslu sé "óbólusettur". Allt til þess fallið að styðja nýja áróðurinn um að bólusetning sé mikilvæg til að koma í veg fyrir "alvarleg veikindi", eftir að þeim mistókst að koma í veg fyrir útbreiðslu smita.
Þetta tilvik og sú staðreynd að hin bólusettu er að valda smitum hjá hlutfallslega fleiri óbólusettum en þeir eru hlutfallslega í samfélaginu, verður svo notað þannig að hægt sé að benda á þetta og segja "sko, sjáiði, þetta kemur fyrir ykkur ef þið þiggið ekki sprauturnar". Þrátt fyrir að staðreyndin sé sú að hin bólusettu eru að valda þessu tjóni á samfélaginu með hegðun sinni, vegna þess að stjórnvöld lofuðu þeim "eðlilegu lífi" eftir sprauturnar.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.7.2021 kl. 21:50
ég sendi honum fyrispurn, spurði hvers vegna hann segir þetta asvona.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 28.7.2021 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.