6.7.2021 | 09:46
Fullbólusettur á sjúkrahúsi - bóluefnið að slá í gegn eða þannig!
Sá sem liggur á Landspítala vegna Covid-19 er með virkt kórónuveirusmit. Hann er ekki á gjörgæslu heldur á almennri legudeild. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn mbl.is. Annar einstaklingur, sem nú er útskrifaður, var lagður inn á Landspítala vegna Covid-19 í síðustu viku."
Nú þegar um 90% Íslendinga yfir 16 ára aldri hafa fengið a.m.k. einn skammt af lekandi bóluefni mætti gjarnan fylgja öllum svona fréttum hvort viðkomandi hafi fengið bóluefnið eða ekki. Það ættu a.m.k. að vera ca. 90% líkur á að umræddir sjúklingar hafi fengið einn skammt. Við fáum nánast daglegar fréttir af því að þessi efni komi ekki í veg fyrir smit. Nú þurfum við líka að vita hvort þau komi kannski ekki í veg fyrir veikindi heldur (fjölmörg dæmi þess erlendis).
Sendi snöggvast póst á smitsjúkdómadeildina til að spyrjast fyrir hvort veita megi þessar upplýsingar. Það gera alvöru fréttamenn á farsóttatímum! Svarið frá farsóttadeildinni er komið; annar þeirra var óbólusettur, hinn fullbólusettur. Báðir útskrifaðir, gott að heyra.
Sæl
Annar sjúklingurinn var ekki bólusettur- sá útskrifaðist um helgina. Hinn var fullbólusettur og útskrifaðist í gær.
Fh Farsóttanefndar Landspítala."
Mælið þið enn með þessu bóluefni? Og sjá þetta dæmi á myndinni (smella til að sjá betur). Sem sagt einn fullbólusettur lagður inn á sjúkrahús með Covid og svo versta Covid tilfellið í síðustu bylgju eftir Janssen efnið. Eina samsærið sem virðist vera gangi er samsæri gegn fólkinu, það er blekkt og haft af fíflum. Bólusettir með þessum nýju líftæknilyfjunum geta bæði smitast og veikst. Og þessi fullbólusetta íslensk/bandaríska hjúkrunarkona var sett í einangrun og komst ekki aftur heim til sín og bólusettir ættingjar hennar sendir í sóttkví.
Hafnarfjarðarbrandari: Hafið þið heyrt um Hafnfirðinginn sem fór í Laugardalshöllina og fékk sér bóluefni (tvo skammta) sem virkar hvorki gegn smiti né veikindum með tilheyrandi aukaverkunum?
Bólusettu þig fyrir lífstíð!
Ef þið viljið bólusetja ykkur 100% við Covid fyrir lífstíð, hlustið þá á Mike Yeadon vísindamenn með meiru sem starfaði hjá Pfizer í yfir 20 ár og gegndi þar yfirmannsstöðu. Hann fjallar um lygina með Covid bóluefnin, PCR-prófin, rotnu stjórnmálamennina sem ætti að handtaka, ljúgandi BBC, tekur alveg fyrir að einkennalausir geti smitað. "It´s utter non-sense...rubbish"! Ekki er ástæða til að óttast sjúkdóminn sem er mjög læknanlegur, það eina sem er að óttast eru ríkisstjórnir heims og hlýðni fólksins!
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Ertu búin að sjá fréttina um heilgölluðu grímuklæddu dúkkurnar í kirkjugarðinum sem dóu víst úr nýjasta afbrigðinu af Delta sem heitir núna Delta plús og á víst að vera alveg svakalega smitandi?
Kristín Inga Þormar, 6.7.2021 kl. 10:02
Íslenskir læknar virðast ekki hafa sjálfstraust til að segja, "jú víst hefur okkur tekist að þróa meðferðir eftir 18 mánuði af veiru, jú víst! Við erum engir aukvisar!".
En hvað með eitthvað fyrirbyggjandi, kæru læknar? Hafið þið skoðað það eitthvað svo fólk geti nú gert eitthvað heima hjá sér til að hemja veiruna? Aftur er talað um að læknar viti ekki sitt rjúkandi ráð hérna.
Synd og skömm.
Geir Ágústsson, 6.7.2021 kl. 10:38
Ríkið búið að samþykkja að kaupa meira af þessu rusli fyrir 1,4 milljónir kr.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 6.7.2021 kl. 11:23
Núna fer ballið að byrja þegar genabreyttir fara að smitast til jafns á við hina óbreyttu. WHO var að gefa út aðvörun vegna Delta afbrigðisins sem Indverjar eru þegar búnir að bæla niður með notkun Ivermectin(Og lögsóknum gegn WHO).
Ágúst Kárason, 6.7.2021 kl. 14:55
Sæl Þórdís, í þessum link er mjög svo áhugavert video frá Kanadískum lögmönnum í stjórnskipunarrétti.
Þeir eru búnir að reyna ýmislegt í Kanada til að koma málum fyrir dóm. Hann er ekki bjartsýnn á framhaldið.
Þarna er hann einungis að tala um grjótharðar staðreyndir. Hver hefði trúað að svona gæti gerst í vestrænu réttarríki?
Magnús Sigurðsson, 6.7.2021 kl. 20:27
Fyrirgefðu Þórdís, hérna kemur tengillinn.
https://www.wakingtimes.com/canadian-lawyers-sounds-the-alarm-on-the-canadian-covid-police-state/
Magnús Sigurðsson, 6.7.2021 kl. 20:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.