Læknafélag Íslands kallar eftir því að lagastoð fyrir ýtrustu sóttvörnum verði tryggð."
Samkvæmt tölum Amnesty International hafa yfir 17.000 heilbrigðisstarfsmenn látið lífið við störf sín í faraldrinum. Slíkt er óþekkt nema helst í stríði eða styrjöldum, segir formaður læknafélagsins.
En hér á landi? Ekki hefur maður heyrt eitt einasta dæmi þess að heilbrigðisstarfsmaður hafi látist vegna Covid. Hér er meðalaldur látinna 88 ár. Ein ung manneskja lést vegna veikinnar og það var Ástrali sem við vitum lítið um en nefnt hefur verið að viðkomandi hafi verið með alvarlegan sjúkdóm.
Hver getur skýringin verið? Miðað við þennan fjölda látinna starfsmanna í heilbrigðisgeiranum, mætti ætla að að minnsta kosti einn heilbrigðisstarfsmaður hefði dáið úr sjúkdómnum hér heima. Eða veikst alvarlega. Gerðist það?
Hvers vegna er reynslan frá öðrum löndum allt önnur en hér heima?
Og þetta er lýsing WHO á veikinni:
Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment. Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness.
Og svona skilgreindi landlæknir Bretlands veikina:
Er þetta lýsing á alvarlegum heimsfaraldri? Og fæstir starfsmenn smitsjúkdómadeildar LSH höfðu verið bólusettir í byrjun mars skv. þessari frétt. Hvers vegna ekki? Var nauðsynlegra að bólusetja alla 100 ára og eldri og 18 ára starfsstúlkur á elliheimilum?
Miðað við þessar skelfilegu tölur um dauðsföll heilbrigðisstarfsmanna í útlöndum, þá er þetta mjög undarlegt. Enginn heilbrigðisstarfsmaður hefur látist hér heima og síðan voru þeir margir hverjir aftar í bólusetningaröðinni en 100 ára og eldri, og það heilbrigðisstarfsmenn á smitsjúkdómadeild LSH!! Fá þeir Ivermectin sem talin er vera góð meðferð við Covid?
p.s. man ekki heldur eftir að hafa heyrt fréttir um dauðsföll heilbrigðisstarfsmanna á Norðurlöndunum.
Alvarleg aðför að sóttvörnum landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Fá þeir ekki bara Ivermectin með kaffinu? Væri alla vega góð hugmynd og gefa almennum borgurum kost á því líka.
https://ivmmeta.com/?fbclid=IwAR2JYL_jXMvIXkGBFF68AJ_6DtS3_EXNiJ6YDm5YMx9EUl1YEl-GDX58MVw
Anna Þórdís Guðmundsdóttir, 6.4.2021 kl. 17:06
Og þú ert nátturlega ekki umkomin þess að skilja að allt er það að þakka hvað vel hefur verið staið að sóttvörnum her og fólk reynt að vernda sjalfa sig og aðra og fara eftir settum reglum ( nema þeir sem brjota sottkvi og hafa smitað aðra ) enda við fa og sma i samanburði milljona þjoðfelaga og óliku saman að jafna ...........Og svo getum við þakkað þrifnaði ,heilnæmu loftslagi og mátulegum kulda að veiran nær ekki nógri fæðu her ...
rhansen (IP-tala skráð) 6.4.2021 kl. 17:23
Yfirlýsing læknafélagsins er alvarleg aðför að mannréttindum.
Guðmundur Ásgeirsson, 6.4.2021 kl. 17:28
Skv. þessum bandaríska lækni virðast læknar amk vita að til sé meðferð.
https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2263162/
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 6.4.2021 kl. 17:29
Rhansen, viltu meina að sóttvarnir í útlöndum séu svona lélegar, hafa ekki verið lockdown og harðar reglur nánast alls staðar í heiminum? Það hefur meðal annars verið sagt að ástæðan fyrir því að flensan skuli vera horfin um nánast allan heiminn, séu harðar sóttvarnir.
https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2262900/
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 6.4.2021 kl. 17:45
Fauci sagði þetta sjálfur í viðtali (en var seinna sama dag farinn að bulla aftur hærri tölur)- "This suggests that the overall clinical consequences of COVID-19 may ultimately be more akin to those of a severe seasonal influenza".(which has a case fatality rate of approximately 0.1%) or a pandemic influenza (similar to those in 1957 and 1968) rather than a disease similar to SARS or MERS, which have had case fatality rates of 9 to 10% and 36%, respectively.”
Þetta er ekkert annað en valdaníðsla hjá yfirvöldum, Svandís og þríeykið eru með öllu orðin óhæf til að gegna þessum störfum, þau eru öll á einhverju valda trippi. Eins og sést klárlega þessa dagana, þau ætla sér öll að komast á svig við dóm hæstaréttar um í raun ekkert annað en stórfelld mannréttindabrot, hugsið aðeins út í það, þetta er hugsunin "við erum að brjóta mannréttindi, einhver dómari vildi ekki leyfa okkur það þannig að við ætlum að koma því í lög sem fyrst með öllum tiltækum ráðun" í staðin fyrir að hugsa, hmmm kannski er þetta komið aðeins of langt hjá okkur og við ættum að stíga aðeins á bremsuna, þetta er hugsunin hjá kjörnum fulltrúum þjóðarinnar.
Halldór (IP-tala skráð) 7.4.2021 kl. 09:23
Sæl Þórdís,
Fyrir það fyrsta þá er 17000 talan ýkt upp hjá formanni Læknafélags Ísland, því að í áróðrinum frá Amnestry International: "Amnesty analysis reveals over 7,000 health workers have died from COVID-19", og ekki 17.000 eins og haft er eftir þessum formanni, er ykir þetta upp um +10.000 í áróðursskini. Þessi 7000 tala CIA áróðurs- frontsins Amnestry International er fengin með því að ýkja upp og telja fólk sem að hefur látist af öðrum sjúkdómum, svo og undirliggjandi sjúkdómum og bílslysum, er læknar þurftu að skrá sem dauðsföll af völdum covid19.
Dr. Annie Bukacek læknir í Montana lýsti því, þegar hún í fyrsta skipti var fengin til þess að skrá dauðsföll eftir bílslys sem dauðsfall af völdum covid19, þannig að við vitum um þessar leynilegu leiðbeiningar til ýkja upp og magna hræðsluáróðurinn (CDC & WHO - Death Certificate Manipulation, explained by Dr Annie Bukacek, more dr's come forward!!). Það þarf hins vegar að athuga hvað mikið af öllum þessum dauðsföllum og skráðu tilfellum, séu false jákvæð tilfelli hér á landi. Í skýrslu frá John Hopkins kemur fram m.a. "..according to Briand, that the COVID-19 death toll is misleading. Briand believes that deaths due to heart diseases, respiratory diseases, influenza, and pneumonia may instead be recategorized as being due to COVID-19 (Johns Hopkins Study Mysteriously Disappears after it Revealed, In Spite of COVID, No More Deaths in 2020 Than In Prior Years). Skýrslan frá John Hopkins virðist styðja þessa CDC skýrslu, að aðeins 6% af öllum þessum dauðsföllum séu af völdum Covid-19.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.4.2021 kl. 12:43
Það er ógnvekjandi kaldhæðni að þrátt fyrir að enginn heilbrigðisstarfsmaður hafi látist hér á landi úr COVID-19 að þá hefur ein ung íslensk kona látist af völdum blóðtappa í kjölfar bólusetningar með Astra Zeneca og önnur var flutt þungt haldin á bráðadeild af sömu ástæðu. Engar fréttir er að fá um líðan hennar eða hvort hún er yfir höfuð enn á lífi. Báðar þessar konur voru heilbrigðistarfsmenn.
Daníel Sigurðsson, 7.4.2021 kl. 14:20
Er þetta rétt Daníel, er hún látin? Man eftir fréttinni:
Þetta gæti útskýrt þögn Lyfjastofnunar sem hefur vanalega hunskast til að svara að lokum en ekki núna?
https://www.frettabladid.is/frettir/einn-i-lifshaettu-med-blodtappa-i-lungum-i-kjolfar-bolusetningar/
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 7.4.2021 kl. 14:25
Já, því miður er þetta alveg rétt. Ein láin og önnur e.t.v. líka en vonandi ekki.
Daníel Sigurðsson, 7.4.2021 kl. 14:41
látin, átti þetta að vera
Daníel Sigurðsson, 7.4.2021 kl. 14:43
Sæl aftur Þórdís,
Það er hægt að kæra þessa lélegu Lyfjastofnun Íslands, en ætli það þurfi ekki líka að kæra Heilbrigðisráðuneytið og heilbrigðisráðherra hérna. Það er kannski ekki svo vitlaust að byrja með undirskriftarsöfnun til að mótmæla þessari lélegu Lyfjastofnun Íslands, er nafngreinir aldrei neinar alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir bólusetningar, svo og veitir litlar sem nánast sagt engar upplýsingar eða hvað þá fréttatilkynningar. Nú og þannig óska eftir að fá nýtt fólk til starfa hjá Lyfjastofnun, svo og bara burt með þetta lélega starfslið sem er þarna í dag.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.4.2021 kl. 15:04
Hvernig stendur á því að heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi geta gefið út svona lista eftir bólusetningar með Pfizer bóluefninu, en hér á landi er ekki hægt sjá nein svona lista yfir alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir bólusetningar ???
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.4.2021 kl. 15:45
Daníel, mér vara að berast þetta svar frá Lyfjast. Þeir segja að þetta hafi verið eldri manneskja? Eldri heilbrigðisstarfsmaður??
Sæl Þórdís
Fyrst ber að nefna að þær tölur sem birtast á vefnum snúa að tilkynningum um grun um aukaverkun og ekki er víst að tilkynningarnar endurspegli raunverulegar aukaverkanir af bóluefnunum en það er metið í hverju tilfelli fyrir sig. Nánar í þeim fyrirvörum sem fram koma á vefnum um notkun tölulegu upplýsinganna sem þar birtast.
Comirnaty (BioNTech/Pfizer):
26 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
COVID-19 Vaccine Moderna:
5 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
Vaxzevria (AstraZeneca):
12 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
*Tilkynningar sem metnar eru sem klínískt mikilvægar geta varðað ýmis einkenni, t.d. blóðtappa þar sem ekki kom til innlagnar á sjúkrahús.
Í allri umfjöllun um tilkynningar vegna gruns um aukaverkun er mjög mikilvægt að fram komi að þegar tilkynningar berast Lyfjastofnun er ekki vitað hvort um orsakasamhengi milli bólusetningar og tilkynntra tilvika sé að ræða. Slíkt er metið í hverju tilfelli fyrir sig.
Kveðja,
Samskiptadeild / Communications Department
Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency
Vínlandsleið 14, IS-113 Reykjavík
Ísland / Iceland
Sími / Tel: +354 520 2100
www.lyfjastofnun.is
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 7.4.2021 kl. 15:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.