11.3.2021 | 12:49
Sóttvarnarlæknir úti á þekju?
,,Enn fremur benti Þórólfur á að bólusetningar hér á landi hafi gengið vel og hann hafi ekki fengið neinar upplýsingar um alvarlegar aukaverkanir hjá fólki sem var bólusett með bóluefni Astra Zeneca."
Er hann ekki að fylgjast með eða er hann að reyna blekkja? Hann talar ekki eins og læknir þessa dagana, meira eins og lobbýisti fyrir lyfjafyrirtæki. Þrjár tilkynningar hafa borist um alvarlegar aukaverkanir vegna AstraZeneca.
Og hvað telst vera alvarleg aukaverkun? Svar frá Lyfjastofnun, tveggja vikna gamalt:
Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum. Fyrir þær 18 alvarlegu tilkynningar sem nú hafa borist í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 eru 9 andlát, 9 tilfelli um innlögn á sjúkrahús og þar af vörðuðu 2 lífshættulegt ástand.
Og þykir þetta eðlilegt - nýja normið? Tekið af síðu Droplaugarstaða:
Stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Af mbl.is
Erlent
- Munu hefja fjöldaframleiðslu á eldflaugunum
- Tillaga Trumps um frið í Úkraínu ekki algalin
- McGregor sekur: Borgar um 36 milljónir í skaðabætur
- Trump mun ekki sæta refsingu
- Ákærður fyrir morð á 13 ára stúlku
- Svíar virða ögranir Rússa að vettugi
- Efast ekki um að Bandaríkin átti sig á skilaboðum
- 281 hjálparstarfsmaður drepinn á árinu
Athugasemdir
Hver næsti yfirmaður Þórólfs sóttvarnarlækns í skipuriti hins OPINBERA?
Er það ekki Alma landlæknir sem að leggur blessun sína yfir stöðu mála?
Jón Þórhallsson, 11.3.2021 kl. 14:02
Jú mikið rétt, hún er hans yfirmaður, þessi sem kippti tengdó út á bólusetningadaginn á Sóltúni (og/eða maður hennar - hjartlæknirinn).
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 11.3.2021 kl. 14:11
Sæl Þórdís,
Já, það rétt ég heyrði þetta í dag um kl 11 frá honum Þórólfi, og hann karlinn passaði svona líka vel uppá að minnast ekki á alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar með Pfizer og Moderna bóluefnin hér á landi.
Þessum sóttvaranalækni er ALLS EKKI treystandi, svo og þar sem að hann hefur áður komið með þau ósannindi, að bóluefnin sem notuð eru hér á landi gegn covid19 séu örugg (sjá https://www.covid.is/bolusetningar, eða " Þau bóluefni sem notuð verða hér á landi við nýju kórónuveirunni (COVID-19) eru örugg og veita bestu mögulegu vernd gegn sjúkdómnum.")
Það er ekki það við höfum einnig dæmi um fleiri svona ósannindi frá honum Þórólfi sóttvaranalækni:
"..sóttvarnarlæknir fullyrðir að efnið sé öruggt" (Vísir 06. september 2009)"..bóluefnið sem notað er hér á landi uppfyllir alla staðla um öryggi (Fréttablaðið 21. des 2009) og "..bóluefnið er mjög öruggt" (DV 4. nóv 2009).
Í pressunni sunnudaginn þann 8. febrúar 2011 undir fyrirsögninni "Sóttvarnalæknir andmælir: Ekki sýnt fram á tengsl svefnsýki og svínaflensusprautu hér á landi", en þar kemur það frá embættinu, eða:"..vill árétta að þessi tengsl hafa einungis sést í Finnlandi en hafa ekki sést hér á landi, né heldur í Svíþjóð, Noregi eða Danmörku eða annars staðar".
Þegar í ágúst 2010 var vitað um tilfelli í Svíþjóð : "In Aug 2010, following media attention in Sweden and Finland associating the pandemic vaccine Pandemrix with new onset narcolepsy, a review was initiated at the request of the European Commission under Article 20 of Regulation (EC) No 726/2004, on 27 August 2010" .
Nú og talandi um svefntruflanir, þá var frá 26. maí 2011 að telja búið að skrá inn á Eudravigilance gagnagrunninum alls 281 tilfelli drómasýki (e. narcolepsy) og af þeim voru 185 tilfelli er komu upp í Svíþjóð og Finnlandi, og hin 96 drómasýkistilfellin höfðu verið skráð sem hér segir: 31 tilfelli í Frakklandi, 17 í Noregi, 26 í Þýskalandi, 3 í Swiss, 4 í Hollandi, 1 í Portúgal og 3 á Bretlandi eftir bólusetningar með Pandemrix bóluefninu.
En hér á landi var Embætti landlæknis ennþá að mæla með bólusetningu í Fréttablaðinu þann 27. desember 2011 og með þeim fullyrðingum, að "í Finnlandi og Svíþjóð tengdist bólusetning með Pandemrix drómasýki hjá ungu fólki. Þessi tengsl hafa hins vegar ekki sést í öðrum löndum þrátt fyrir milljónir bólusetninga .."
Þessi ósannindi eru lýsandi dæmi yfir það hvernig Embætti landlæknis er bara í því að koma inn ósannindum, eða þar sem að vitað var alls frá 26. maí 2011 um allt að 281 tilfelli drómasýki (e. narcolepsy), svo og í öðrum löndum en Finnlandi og Svíþjóð.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 11.3.2021 kl. 14:51
"Drómasýki í kjölfar Pandemrix-bóluefnisins greindist fyrst og fremst hjá ungum einstaklingum og voru bætur til hvers einstaklings því háar, en bætur voru greiddar í níu málum af 17 umsóknum sem bárust stofnuninni. " https://www.althingi.is/altext/151/s/0463.html
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 11.3.2021 kl. 16:34
"....hann hafi ekki fengið neinar upplýsingar um alvarlegar aukaverkanir hjá fólki sem var bólusett með bóluefni Astra Zeneca." ???
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 11.3.2021 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.