Leita í fréttum mbl.is

Forstjóri Pfizer selur hlutabréf sín sama dag

,,Spurður hvort þetta muni ekki gera það að verk­um að viðkom­andi fyr­ir­tæki verði óskap­lega rík af sölu bólu­efn­is seg­ir Kári svo ekki þurfa að vera. „Mér skilst á öll­um að það sé sam­ráð þess­ara fyr­ir­tækja um að selja ekki bólu­efn­in á þann hátt að þau græði á þeim mikið. Frek­ar að litið verði á þetta sem fram­lag iðnaðar­ins til heims­ins al­mennt. Menn þurfa ekki að engj­ast yfir þeim mögu­leika að lyfja­fyr­ir­tæk­in muni nota þetta til að ræna og rupla,“ seg­ir Kári." 

En hvað með sjálfa forstjórana?

Forstjóri Pfizer selur hlutabréf sín sama dag og góðu fréttirnar voru sendar út. ;)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Lyfjafyrirtækin hafa sjaldan látið gróðatækifæri renna sér úr greipum af fúsum og frjálsum vilja. Og vitanlega á það sama við nú, hvað svo sem einhverjir millistjórnendur í slíkum fyrirtækjum staðhæfa.

Þorsteinn Siglaugsson, 11.11.2020 kl. 20:35

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ekki þarf lengi að leita á netinu að tengslum á milli stórfyrirtækja, þótt reynt sé að fela sumt. Reuters fréttastofan er nú í eigu fjölmenningarfyrirtækisins Thomson Reuters. Eftir kreppu eignaðist Thomson samsteypan meðal annars Reuters.  Reuters er fréttastofan sem gaf út þá opinberu yfirlýsingu að Bill Gates og fyrirtæki hans væru ekki með einkaleyfi á kórónavírusum þrátt fyrir að slík gögn hefðu dreifzt um netið lengi, og talið sannanir af sumum, en auðvitað öllu neitað opinberlega sem falsfréttir. Það er auðvelt að senda út slíkar tilkynningar þegar innbyrðis tengslin í fjölmiðlafyrirtækunum eru algjör og eignarhaldið. Trúverðugleikinn er samt harla lítill á slíkum yfirlýsingum þegar vitað er hverjir hagnast mest á þeim.

Samþjöppunin hefur mikið aukizt á þessum áratug eftir Hrunið 2008 og búast má við enn meiri samþjöppun eftir þennan faraldur. Það þýðir að maður verður að taka því af varúð sem verið er að beina að manni, því hinn venjulegi borgari verður meira peð eftir því sem þeir ríku verða ríkari og voldugri.

Undarlegt að tilkynnt sé um þetta Pfizer bóluefni nokkrum dögum eftir "kjör" Bidens. Það getur varla verið tilviljun, virðist meira vera skipulögð atburðarás. Nú ætlar Biden að setja á fullt í alþjóðavæðingunni. Við lifum á spennandi tímum, oft var þörf en nú er nauðsyn á alþjóðahreyfingum sem setja stórfyrirtækjum skorður og veita þeim aðhald. Ekki endilega vinstrisinnuðum, enda jafnaðarmenn á kafi í fjölmenningunni, Sorosardýrkun og svoleiðis. Kapítalisminn er núna kominn inní mannréttindahreyfingarnar, enda ekki skrýtið að VG og Sjálfstæðisflokkur hafi tekið höndum saman.

Ingólfur Sigurðsson, 11.11.2020 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband