27.5.2011 | 15:40
Mismunandi skilningur á óljósum lögum!
Munurinn á aðferðafræði fjármálafyrirtækjanna byggir á mismunandi skilningi þeirra á lögunum og hvernig standa eigi að útreikningi.
Það er svona að leggja fram óskýr lög og sleppa því að skilgreina skilmerkilega hvernig endurútreikningum til hagsbóta fyrir skuldara" skuli háttað. Lögin eru fúsk og endurspegla fúsk þessara fjármálastofnanna. Óskýr lög bjóða upp á misskilning og bjóða upp á spillingu. Voru þau höfð óljós að ásettu ráði. Eða er þetta útkoman þegar hálfvitar" búa til lög?
Bílalánin misjafnlega dýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Óháður endurskoðandi var búinn að komast að þeirri niðurstöðu að fjármálafyrirtækin reiknuðu hvert með sínum hætti. Því ber hinsvegar ekki saman við niðurstöður þeirrar úttektar sem Umboðsmaður skuldara virðist vera að kynna. Augljóslega getur aðeins annað tveggja verið rétt, og því hlýtur maður að spyrja hvort nokkuð mark sé takandi á þessu.
Ég er farinn að hallast að því að það sé vandfundinn sá maður á landinu sem kann að reikna rétt. Því miður.
Guðmundur Ásgeirsson, 27.5.2011 kl. 16:34
Í fréttinni frá Umboðsmanni skuldara kemur hvergi fram að t.d. Íslandsbanki bætir við dráttarvöxtum pr. afborgun ef uppreiknuð afborgun er hærri en sú afborgun sem upphaflega var send skuldara og hann greiddi. Þetta gerir bankinn þó svo að skuldarinn hafi staði í skilum með allar greiðslur og jafnvel greitt vel fyrir eindaga í nokkrum tilfellum. Með þessum útreikningum tekst Íslandsbanka að draga mjög úr lækkun lánsins því þessi dráttarvextir sem fyrst og fremst féllu á greiðslur á árinu 2007 þegar gengið var lágt eru það háar fjárhæðir að ávinningur vegna 2008-2010 hverfur að mestu leiti.
Jón Óskarsson, 27.5.2011 kl. 17:30
Jón: samkvæmt lögunum um endurútreikningin er klárlega óheimilt að leggja annað en seðlabankavexti á endurreiknuðu lánin, þ.m.t. vanskilavexti. Það skal hinsvegar engan undra að Íslandsbanki skuli gera það engu að síður, það er einfaldlega í samræmi við fyrra framferði að brjóta á viðskiptavinunum.
P.S. Tókuð þið eftir því hvern var verið að ráða sem fjármálastjóra Orkuveitunnar? Gengislánarar til Okurveitu Í helgarblaði Morgunblaðsins er svo auglýst eftir arftakanum.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.5.2011 kl. 13:57
@Guðmundur: Þetta var einmitt það sem ég hef haldið fram að það hljóti að vera óheimilt með öllu að leggja á dráttarvexti til viðbótar þessum útreikningum. Nógu slæm er niðurstaðan samt að miða við Seðlabankavextina í stað upprunalegra vaxta.
Ég hef tekið eftir því að "stórsnillingar" bankakerfisins og okurlánafyrirtækjanna hafa átt greiða leið í ýmsar góðar stöður og oftar en ekki teknir fram yfir aðra mjög hæfa umsækjendur um viðkomandi störf. Það væri alveg full þörf á því að fara að skoða nánar hvar menn sem staðið hafa að mjög vafasömum viðskiptum hafa komið sér fyrir núna. Greinin þín um "Gengislánara til Okurveitu" er mjög góð.
Jón Óskarsson, 31.5.2011 kl. 00:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.