Leita í fréttum mbl.is

Svarbréf til FME vegna endurútreikninga lána

Það reynir verulega á þolinmæðina að eiga samskipti við Fjármálaeftirlitið (FME) og aðrar „eftirlitsstofnanir." Þetta bréf sendi ég FME í gær og er svarið við því þar neðar. Þetta sendi ég svo í dag.  

 

Sæll Sigurður,

Ég sendi þér hér dæmi um endurútreiknað lán frá SP fjármögnun. Upphafleg lánsfjárhæð var 2.000.000,-.  Gætirðu útskýrt þessa útreikninga og hvers vegna er t.d. talað um verðbætur á bls. 3? Þetta er lán með óverðtryggðum vöxtum.

Og ein spurning varðandi endurútreikninga á síðu SP fjármögnunar er svo hljóðandi:
"Greiðsluseðlar hafa ekki verið sendir út í fjóra mánuði, hvernig verður það tímabil meðhöndlað?".
Svarið er svo hljóðandi: "Upphæð sem nemur þessum fjórum gjalddögum verður bætt við höfuðstól og samningstími lengdur um fjóra mánuði."


Það er einungis hægt að reikna vexti af endurreiknuðum höfuðstól á umræddu tímabili til samræmis við vexti Seðlabanka Íslands. Það að bæta umræddum ógreiddum greiðslum við endurútreiknaðan höfuðstól þýðir í raun að fyrirtækið ætlar að rukka viðskiptavini sína um margra tuga prósenta vexti á umræddu tímabili.

Hafa fyrirtækin heimild til að lengja lánstímann án samþykkis lántaka?

Núvirði lánsins er það sama og fyrir breytingu (og hafa breytingarnar því ekki áhrif á CAD hlutfall fyrirtækjanna) og því er ekki um neina lækkun að ræða, bara búið að breyta ólöglegu láni í löglegt, ekki rétt?

Neytendastofa segir að hún hafi ekkert með sölureikningana að gera.  Er það ekki hlutverk FME að fylgjast með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög og reglur og að öðru leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, sbr.8. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi?

 

með kveðju,

Þórdís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru nu meiri glæpahundarnir !

Hildur (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 19:17

2 identicon

Haltu þessum hundingjum við efnið Þórdís, veiti svo sannanlega ekki af, það virðis sama hvert litið er þetta er allt sama pakkið sem er á mála hjá stjórnvöldum, og svívst einskis við að mistúlka og túlka sér í hag til að þjófahyskið nái sínu fram.

Geir Birgir Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband