Leita í fréttum mbl.is

Efnahagsböðlar!

Í tilkynningu frá Sigurplasti segir, að það ráði ekki við afborganir af stökkbreyttum ólöglegum gengisbundnum lánum. Niðurstaða Hæstaréttar um vexti af þessum lánum og yfirlýsing viðskiptaráðherra í kjölfarið um að væntanleg lagasetning muni ekki ná til fyrirtækja sé kornið sem fyllti mælin.

Niðurstaða Hæstaréttar frá 16. júní var einfaldlega sú að gengistrygging við erlenda gjaldmiðla væri ólögleg. Það skiptir ekki nokkru einasta máli hvort lántakinn sé einstaklingur eða fyrirtæki, það var dæmt um sjálft prinsippið. 

Að setja lög um að ólögleg gengistrygging lána eigi ekki við þegar lántakinn er fyrirtæki er klikkun og í raun er verið að gera ólögmætið löglegt.

Þessi aðferð fjármálastofnanna sem ríkisstjórnin virðist ætla að styðja minnir á sögu Efnahagsböðulsins (Economic Hitman) sem heimsótti Ísland fyrir nokkru, að veita lán sem ekki er hægt að borga til baka og komast þannig yfir verðmætin. Fjármálastofnanir vissu að þessi lán myndu tvö-og þrefaldast og fjölmargir myndu aldrei geta greitt lánin til baka. Sjá t.d. hér.

Skora á ykkur að taka þátt í hópmálsókn Samtaka lánþega, því fleiri sem taka þátt, því lægri verður kostnaður á hvern einstakling.

 

 

 


mbl.is Sigurplast gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl ég er þar!

Sigurður Haraldsson, 28.9.2010 kl. 08:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband