Leita í fréttum mbl.is

Ríkisfyrirtækið SP fjármögnun

Á hinn bóginn hafi  dómar Hæstaréttar í þessum málum nokkur áhrif á SP- Fjármögnun hf., dótturfélag bankans. Landsbankinn muni hins vegar styðja SP- Fjármögnun hf. þannig að staða viðskiptavina fyrirtækisins verði trygg. 
 
Það hefur nú verið "stutt við" vesalings dótturfyrirtækið áður. Síðan hefur SP verið duglegt við að stela með því að rukka kúnnana um áætlaðan viðgerðarkostnað (sem aldrei fer fram) í uppgjörum sínum, engir reikningar eru á bak við þær ímynduðu viðgerðir. Síðan stela þeir enn meira með því að bæta vsk. ofan á ímyndaða kostnaðinn, stela í nafni skattsins. Og aftur engir reikningar, bara word skjal. Skil ekki að það þurfi að „styðja" þá, þeir ættu að vera í góðum málum, svo duglegir að stela. Síðan setja þeir kröfur (uppgjör) inn í heimbanka aftur í tímann og rukka þannig dráttarvexti aftur á bak.  Móðurfyrirtækið hefur fengið ábendingu um þetta, en er ekki leiðrétt. Síðan rukkar SP kúnnana fyrir vörslusviptingar með vsk. en  án reiknings, senda bara gíróseðil. Og svo gleymdist alveg að gefa út alla reikninga fyrir bílunum sem seldir voru á kaupleigu.  Og aðeins um bónusgreiðslurnar til Kjartans frkv.stjóra dótturfyrirtækisins.


mbl.is Forsendur til að taka kröftuglega á skuldamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er nokkuð ljóst eftir tíðindi dagsins að við búum í algjöru barbaríi.  Hér á landi er glæpalýður við völd sem skýlir sér á bak við afglöp í starfi.

Magnús Sigurðsson, 16.9.2010 kl. 21:23

2 identicon

Kæra Þórdís Björk.

Hvað getum við eiginlega gert ?

Við hljótum að eiga einhvern leik á móti, það er asskota kornið ekki hægt að láta fjármögnunar-fyrirtækin vaða svona yfir okkur enn og aftur.. langlundar- geð okkar er farið að skaða verulega ?

Kristinn Jónsson (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband