14.7.2010 | 11:42
Missa engin réttindi!
Hér er frétt frá Avant frá því í febrúar: Menn hvattir til að greiða áfram.
16.02.10
Um fyrirvara við greiðslur til Avant hf.
Vegna þeirrar réttaróvissu sem nú er uppi um lögmæti gengistryggðra bílasamninga vegna tveggja misvísandi dóma Héraðsdóms Reykjavíkur,vill Avant hf. taka fram að ef Hæstiréttur Íslands staðfestir dóm héraðsdóms í máli Lýsingar frá 12. febrúar sl., á þeim forsendum að gengistrygging höfuðstóls sé ólögmæt þá má vænta að sú niðurstaða hafi áhrif á sambærilega gengistryggða lánasamninga Avant hf. Félagið telur því ekki þörf á að viðskiptamenn Avant hf. geri sérstaka fyrirvara við greiðslu af slíkum bílasamningum til félagsins. Þeir viðskiptavinir AVANT hf. sem greiða skilvíslega af gengistryggðum samningum þar til niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir missa því engin réttindi gagnvart félaginu. Eru viðskiptavinir Avant hf. hvattir til að greiða skilvíslega af bílasamningum og forðast vanefndir enda er fyrirsjáanlegt að þær munu hafa í för með sér verulegan vanskilakostnað og óþægindi fyrir hlutaðeigandi greiðendur ef Hæstiréttur snýr við niðurstöðu héraðsdóms í framangreindu máli.
http://avant.is/Bilavefur/Frettir/Frett/2010/02/16/Um-fyrirvara-vid-greidslur-til-Avant-hf.-/
Starfsemi Avant óbreytt fyrst um sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Heldurðu að það geti verið að ég fái ekki endurgreitt það sem ég hef ofgreitt þessu Avant? Ekki einu sinni það sem ég hef ofgreitt þeim umfram tilmæli Seðlabanka og FME? Þrátt fyrir fögur fyrirheit um annað
Getur það verið að það þurfi að fara með "slaghaminn" á fleiri en lögmenn jafnvel á bankamenn og stjórnmálamenn þessa lands til að þeir taki einhverjum sönsum?
Þetta er farið að snúast um meira en fólk sé "bara vinnunni" þetta er farið að snúast um persónur og leikendur.
Magnús Sigurðsson, 14.7.2010 kl. 11:51
Magnús, taktu sem fyrst saman hvað þú telur þig hafa ofgreitt án vaxta og sendu Avant kröfu um endurgreiðslu þar að lútandi. Hafðu með fyrirvara um að upphæðin muni breytast við útreikning réttmætra vaxta vegna þessara ofgreiðslna sbr. 18.gr. vaxtalaga. Sendu þetta í ábyrgðarbréfi eða farðu og láttu kvitta fyrir móttöku bréfsins. Taktu einnig fram að þú munir ekki borga meira (þ.e. hafir þú ekki þegar greitt meira en virði samningsins) fyrr en viðunandi tilboð um endurgreiðslu hefur borist. Skoðaðu líka 7.gr. vaxtalaganna, hún leyfir að skuldari haldi eftir greiðslu eða hluta greiðslu ef ástæður þar að lútandi eru lögmætar og má þá ekki innheimta dráttarvexti af slíkri greiðslu sem haldið er eftir vegna atvika sem varða kröfuhafa.
Erlingur Alfreð Jónsson, 14.7.2010 kl. 12:12
Nákvæmlega eins og í skaupinu, sorrý það sem þú áttir inni er horfið, en blessunarlega tókst okkur að bjarga skuldunum þínum!
Óli (IP-tala skráð) 14.7.2010 kl. 12:43
þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég hætti að greiða af mínum lánum. Það var auðséð að ef lánin yrðu ólögmæt væru félögin ekki í neinni stöðu til að greiða þetta.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 14.7.2010 kl. 13:07
Þakka þér fyrir ráðleggingarnar Erlingur, ég á reyndar ekki von á að þessir kónar opni ábyrgðarbréf þó þeir séu þrælvanir að senda þau.
Óli ætli ég verði ekki rukkaður áfram af þrotabúinu eins og ekkert hafi í skorist.
Magnús Sigurðsson, 14.7.2010 kl. 13:14
Og Magnús, stefna stjórnendum enda eru þeir ábyrgir:
http://www.dv.is/frettir/2010/7/14/bjorn-thorri-lantakendur-fari-af-fullum-thunga-gegn-stjornendum-felaga/
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 14.7.2010 kl. 13:18
"Slaghamarinn" gæti verið skilvirkari. Það er ekki svo auðvelt að ná þeim frá London þegar það þarf að hafa tal af þeim.
Magnús Sigurðsson, 14.7.2010 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.