8.3.2021 | 14:32
Ábyrgðarlaust - fólk að skíða undir áhrifum!
Áfengissala í Hlíðarfjalli.
,,Um helgina verður hægt að kaupa bjór, kakó með rommi, prosecco, hvítvín hússins (chardonnay) og rauðvín hússins (shiraz) á veitingastaðnum á hótelinu. Uppi í Strýtu verður það bjór og kakó með rommi.Ekki má taka áfengi út af skíðahótelinu þessa helgina, en innan skamms verður sett upp svæði þar sem má neyta áfengis á skaflinum við nestishúsið."
Þetta er fjölskyldusvæði og mikið af ungu fólki og börnum að skíða. Íslendingar eru ekki beint sú þjóð sem helst kann sér hóf þegar kemur að áfengisdrykkju.
Það er sem sagt leyfilegt að skíða undir áhrifum áfengis, þar sem börn eru meðal annars á ferðinni.
Sjá frétt um slys og fulla Breta á skíðum. Og hér um aukna möguleika á skíðaslysi eftir áfengissneyslu.
![]() |
Áfengissala í Hlíðarfjalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.3.2021 | 11:06
Rauf starfsmaðurinn sóttkví / einangrun eða ekki?
,,Í gær var greint frá því að tveir hefðu greinst um helgina utan sóttkvíar en þeir smituðst væntanlega af snertifleti á stigagangi en íbúi í sama húsi greindist með smit við seinni skimun á landamærunum."
Einn þessara sem býr í stiganginum virðist samkvæmt sögunni vera starfsmaður LSH og hafa farið á tónleika í Hörpu án þess að niðurstaða siðari skimunar lægi fyrir.
Það hlýtur að þykja saga til næsta bæjar ef það er starfsmaður á heilbrigiðisstofnun sem kemur hugsanlega af stað hópsmiti með því að fara á tónleika. Víðir slítur fundinum þegar Þórólfur kemst í vandræði með svör. ,,Þetta átti bara að vera stuttur fundur."
Hér er upplýsingafundurinn.
![]() |
15 í einangrun 107 í sóttkví |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2021 | 18:35
Starfsmaðurinn fylltist öryggiskennd eftir neikvætt PCR próf!
Upplýsingafundi vegna nýs smits hjá starfsmanni Landspítalans og sóttkvíar annarra þar af leiðandi, var að ljúka. Starfsmaður þessi fór á tónleika í Hörpu í gærkvöldi og því stendur yfir smitrakning meðal annarra tónleikagesta. Athygli vakti í lokin spurning fréttakonu RÚV til Þórólfs: ,,Rauf starfsmaður spítalans einangrun með því að fara á tónleikana í Hörpu?" Fréttakona virtist vita eða telja að starfsmaðurinn ætti bókaðan tíma í sýnatöku og niðurstaða lægi því ekki fyrir. Þórólfur sagði þá að starfsmaðurinn hafi ekki verið búinn að bóka tímann en hafi fengið neikvæða niðurstöðu úr sýni nokkrum dögum áður og við það hafi viðkomandi fyllst öryggiskennd!
En átti starfsmaðurinn eftir að fara í síðari sýnatökuna? Það er eitthvað sem vantar inn í söguna. Ef starfsmaðurinn var búinn að fá neikvætt svar nokkrum dögum fyrir tónleikana, var hann samt smitaður og því fer nú fram smitrakning? Var það sýnataka eitt eða tvö? ,,Þau sem hafa ekki verið bólusett þurfa að fá tvær neikvæðar niðurstöður með viku millibili áður en þau losna úr sóttkví."
Fundi var slitið fljótlega, heyrðist að sóttvarnarlækni hafi vafist þarna tunga um tönn. En hann virtist hafa miklar áhyggjur af nýrri bylgju og hópsmiti.
Síðan væri áhugavert að vita hvers vegna þessi starfsmaður spítalans var ekki bólusettur; er það læknir, hjúkrunarkona eða...? Og eins með tilliti til þess hvort hann eða hún hafi rofið einangrun eftir að fyllast öryggiskennd eftir neikvæða niðurstöðu úr (fyrri?) sýnatökunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
50 manns í sóttkví þar á meðal starfsmenn spítalans, bólusettir og óbólusettir.
,,Starfsmaðurinn vinnur á göngudeild smitsjúkdóma, ofnæmis og lungnasjúkdóma. Már segir að sjúklingahópurinn sem þarna sækir þjónustu sé viðkvæmur."
Þarfnast þetta ekki frekari útskýringa? Ekki til nóg bóluefni eða afþakkaði hann og jafnvel fleiri starfsmenn? Það væri áhugavert að heyra hvort læknar og / eða hjúkrunarfólk hafi ekki viljað tilraunabóluefnið. Var það Pfizer eða þetta með apaveirunni?
,,Ekki er búið að bólusetja alla starfsmenn þar sem ekki hefur fengist nógu mikið af bóluefnum til að bólusetja allt starfsfólk sjúkrahússins. Í fyrstu atrennu voru framlínustarfsmenn bólusettir. Það er hörgull á bóluefni og allir finna fyrir því.
En nýbúið að boða fólk á tíræðisaldri sem margt býr heima hjá sér. Og eins og við höfum heyrt forstjóra Lyfjastofnunar greina frá, að þá virðist fólk sem var á grafarbakkanum hafa verið bólusett. Þykir þetta fagleg forgangsröðun?
Og fleiri en einn starfsmaður spítalans ekki bólusettur?
,,Fólk sem er búið að bólusetja getur snúið aftur til starfa þegar það fær neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. Þau sem hafa ekki verið bólusett þurfa að fá tvær neikvæðar niðurstöður með viku millibili áður en þau losna úr sóttkví."
Það þarf sem sagt að skera úr um að bólusettur einstaklingur sé ekki smitaður! Hvað segir það um bóluefnið? Og skyldi PCR prófið á þeim smitaða hafa verið 40 snúninga sem margir telja ómarktækt. Allt yfir 35 þykir mjög veikt. WHO sendi frá sér nýjar leiðbeiningar 20. janúar sl. þess efnis að skoða þurfi sérstaklega vel veikar niðurstöður PCR prófa.
Uppfært: Það eru tiltölulega fáir starfsmenn á þessari deild búnir að fá bólusetningu."
Þetta verður áhugaverðara með degi hverjum, eru það kannski læknar og heilbrigðisstarfsmenn sem síst vilja taka inn erfðabreytta tilraunabóluefnið? En mæla með fyrir aðra!
![]() |
50 af spítalanum í sóttkví |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2021 | 19:38
Fékk SMS frá Þórólfi - mættu á morgun í stuttermabol!
Varð hissa að fá þetta sms frá Þórólfi í dag.
Sóttvarnarlæknir: Þórdís hér er strikamerki fyrir bólusetningu 05.03.2021 klukkan 9.30.
Staðsetnging: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Laugardagshöll - inngangur A. Mættu í stuttermabol, bólusett í almannarými. Heilbrgiðisstarfsmenn AstraZeneca.
Skil ekki hvers vegna hann er að senda mér þetta. Hef þó nokkrum sinnum skrifað honum og mótmælt hinu og þessu í sambandi við þessa alþjóðlegu tilraunarstarfsemi lyfjafyrirtækjanna með ófullprófuð lyf. Samt sendir hann mér strikamerki og skipar manni að mæta í stuttermabol í bólusetningu. Ekki nóg með það, heldur sendi hann manninum mínum þetta líka, sem sagt mitt boð. Í símann hans. Þarf hann að láta marga vita? Kannski komið út um allan bæ!
Þar að auki er þetta bóluefni sem inniheldur simpansaveiru, og eitthvað erfðabreytt efni úr fóstri. Sjá mynd neðar. Sama og þegið. Ætla að halda áfram að hlusta á þetta fallega lag. Mæti sem sagt ekki. Gat ekki svarað sms-inu.
Uppfært: Ég, tengdó á Sóltúni og spretthlauparinn Yohan Blake stöndum hörð á móti þessum óbeinu þvingunum og hræðsluáróðri.
Bloggar | Breytt 6.3.2021 kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.3.2021 | 11:49
Fjöldi aukaverkana (veikinda) kom á óvart!
Við verðum að byggja bólusetningu þjóðarinnar á niðurstöðum vísindarannsókna sem hafa sýnt fram á öryggi bóluefnanna og vernd gegn Covid-19-sjúkdómi." (Ingileif hjá Decode).
Gerðuð þið það ekki með fyrstu bólusetningu með AstraZeneca, var það ekki byggt vísindarannsóknum? En miklu fleiri fengu aukaverkanir (urður veikir) og mættu ekki til vinnu daginn eða dagana á eftir en reiknað var með? Allir voða hissa. Hvað þykist þið þá vita um langtímaáhrif? Síðan þurfti að breyta fyrirkomulaginu, bólusetja starfsmenn hjúkrunarheimila fyrir frídaga, þannig að mannekla yrði ekki á hjúkrunarstofnunum.
Þetta kemur fram á facebook síðu Droplaugarstaða:
Það sama á við með Moderna, allir voða hissa að hraustustu menn Íslands mættu ekki til vinnu daginn eftir, eða dagana á eftir.
Kom bara á óvart! Og 23 alvarlegar aukaverkanir, bjuggust þið við því? Og eruð þið að upplýsa fólk um aukaverkanir og að það sé að taka lyf sem er á tilraunarstigi og er ekki með markaðsleyfi eins og þessi sérfræðingur hélt fram heldur með skilyrt markaðsleyfi (undanþágu). Það er því lygi í þessari konu að lyfin séu með markaðsleyfi.
![]() |
Ekki siðferðislega réttlætanlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.3.2021 | 21:27
Hættið að hlýða Víði!
Þessi kona vill að þið hættið að hlýða Víði. Hún hefur rannsakað hvernig nasistar fengu meirihluta þýskra ríkisborgara til að hlýða og styðja þannig nasistastjórnina. Með undirgefni. Nasistarnir gengu alltaf lengra og lengra, alveg eins og við sjáum ríkisstjórnir gera víða í heiminum í dag. Það er hættulegt að hlýða þessu fólki segir hún. Og munum að nasistar voru sósíalistar - National Socialist German Workers Party.
Ef allir hætta að hlýða, klárast þetta á morgun. Ítalir til dæmis mótmæltu og opnuðu veitingastaði, stóðu bara saman. Ríkisstjórnin reyndi eitthvað en gafst fljótt upp.
Dæmi hér að heiman: Ef þú samþykkir að ganga um í smitlausu landi með grímu (eins og kjáni), þá kemur Þórólfur og segir: Þér líður bara vel með grímuna, þú verður með hana áfram. Engin smit í landinu, en til öryggis skaltu hylja andlit þitt eins og múslimi. Það klæðir þig bara vel, þú undirgefna og heimska manneskja. Ég er búinn að fá fálkaorðu og nú ræð ég hvernig þú átt að haga þér. Einu sinni sagði ég reyndar að grímur gögnuðust almenningi lítið en nú segi ég ykkur samt að vera með grímur um ókomna tíð.
Sjáið þessi "sóttvarnarlög" sem Alþingi samþykkti nýlega. Er ekki í lagi með þetta fólk?
Ef þetta væri í raun stórhættulegur heimsfaraldur þá hefði tengdó á Sóltúni auðvitað verið bólusett, Víðir hefði ekki verið með partý og ráðherrarnir ekki verið allir saman á Rangá og Bjarni Ben ekki í Ásmundarsal.
Veirusýkingar geta auðvitað verið hættulegar en það er ekkert nýtt.
Og lítur þetta út eins og heimsfaraldur? Svona er þetta um allan heim og síðan er inflúensan horfin. Þetta eru síðustu fréttir af henni. Hér heima fær maður þau svör að ekki standi til að birta flensutölurnar alveg strax fyrir árið 2020, því það sé brjálað að gera út af covid (engin covid smit í margar vikur, samt brjálað að gera). En fékk þó staðfestingu á að ekkert flensutilfelli hefði fundist frá því í apríl 2020.
En síðan rekst maður á svona fínar samantektir um svindlið.
Bloggar | Breytt 3.3.2021 kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.3.2021 | 14:43
Aldrei heyrt um brasilíska afbrigðið!
Maður fær hinar ýmsu fréttir á samfélagsmiðlum, þrátt fyrir að stjórnendur þeirra reyni nú með veikum mætti að stjórna umræðunni.
Hér er skemmtileg frétt. Þessi náungi frá Brasilíu segir engan í Brasilíu hafa heyrt um brasilíska afbrigðið.
Hér er líka nýlegt myndband frá Rio de Janeiro, iðandi mannlíf.
Ég á vini í Brasilíu, best að ég sendi þeim línu og spyrji hvort þeir hafi heyrt um afbrigðið. Síðast þegar ég sá mynd af þeim á facebook voru þau í hópíþróttum, fullt af fólki saman í myndatöku á eftir, enginn með grímu. Mun segja þeim að fréttamaður hér á Íslandi sé að fara á taugum út af þessu brasilíska, meðal annars.
Uppfært. Svar komið frá Marciu vinkonu minni í Brasilíu. Þau vita ekki um neinn sem hefur smitast af þessu brasilíska en segja að einhverjir pólitíkusar vinni hörðum höndum að því að "búa það" til. (Þess má geta að flestir Brasilíubúar bera enga virðingu fyrir pólitíkusum).
Bloggar | Breytt 3.3.2021 kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spretthlauparinn Yohan Blake frá Jamaica segist frekar ætla að sleppa því að taka þátt í Ólympíuleikunum í sumar heldur en taka bóluefni gegn Covid-19. Hann gefur ekki upp ástæðuna en segist hafa gert upp hug sinn. "My mind still stays strong, I do not want any vaccine, I rather miss the Olympics than take the vaccine, I am not taking it."
Í vetur kom í fréttum að hlauparinn Usain Bolt, líka frá Jamaica, hafi reynst jákvæður af Covid-19. Hann veiktist reyndar aldrei. Hann sem sagt hefði ekki vitað að hann væri "veikur" ef honum hefði ekki verið sagt það.
Það að hraustasta fólk í heimi sé hvatt til að taka bóluefni sem er á tilraunastigi og ekkert er vitað um langtímaáhrif er galinn hugsunarháttur. Hér heima hefur komið fram hjá sóttvarnarlækni að til standi að bólusetja ungt fólk sem er ekki í neinni áhættu vegna Covid. Hvaða læknir með viti mælir með því að ungt fólk fái tilraunabóluefni sem ekki er í áhættu gegn tilteknum sjúkdómi? Og það gegn veiru sem er sífellt að breytast og ekki vitað hvort þessi lyf vinni gegn, þ.e.a.s. öllu nýju afbrigðunum. First, do no harm!
,,Dick Pound frá Kanada, reyndasti stjórnarmaður IOC, sagði í viðtali við Sky News á dögunum að allar þjóðir heims gætu tekið þátt í Ólympíuleikunum ef hægt yrði að bólusetja allt íþróttafólkið áður en þeir hæfust."
,,Samtök íslenskra ólympíufara, SÍÓ, hafa sent Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands, ÍSÍ, áskorun um að hafa frumkvæði að því að líklegir þátttakendur á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar, ásamt þjálfurum og fararstjórum, verði bólusettir fyrir kórónuveirunni."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2021 | 10:13
Hvað þýða nýju sóttvarnarlögin?
Frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum var samþykkt 04.02.2021 með fjörutíu og sjö samhljóða atkvæðum.
Veist þú hvaða breytingar voru að eiga sér stað?
Svandís heilbrigðisráðherra sagði að "Verið sé að tryggja betur réttindi borgara og skýra með afgerandi hætti þau hugtök og ráðstafanir sem verið er að beita."
Sjá: https://www.visir.is/g/20212069648d/breytingar-a-sottvarnalogum-samthykktar
Hvað er átt við þegar hún segir að "verið sé að tryggja betur réttindi borgara"?
Hér eru nokkur brot úr þessum lögum um skyldubólusetningar og aðrar ný lögleiddar aðgerðir:
- Afkvíun: Takmarkanir á för milli byggðarlaga, landshluta eða til eða frá landinu. Afkvíun tekur almennt til svæða eða er beint að stórum hópi fólks.
- Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli, eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- eða munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá eða hjartalínurit.
- Ónæmisaðgerð: Skipulögð aðgerð sem örvar ónæmiskerfið til að halda smitsjúkdómi í skefjum í samfélaginu, svo sem með bólusetningu eða gjöf mótefna.
- Sótthreinsun: Heilbrigðisráðstafanir til að óvirkja eða drepa flestar örverur, hvort sem það er gert með efnafræðilegum eða eðlisfræðilegum aðferðum. Það á við um húð, yfirborð flata eða í eða á farangri, farmi, gámum, farartækjum, vörum og póstbögglum.
Athugið að "inngrip" og "ónæmisaðgerð" (bólusetning) er ekki það sama. Hvað er þá "inngrip" nákvæmlega?
Hér eru nokkur brot úr því hverning þessum nýju lögum verður framfylgt:
Sóttvarnalæknir getur leitað aðstoðar lögreglu við að framfylgja ákvörðunum sem teknar eru samkvæmt þessari lagagrein, eftir atvikum með líkamlegri valdbeitingu beri nauðsyn til.
Stjórnvaldsákvörðun um aðgerðir samkvæmt þessari lagagrein er kæranleg til ráðherra feli hún ekki í sér sviptingu frelsis. Kæra frestar ekki framkvæmd ákvörðunar.
Þá má að kröfu sóknaraðila skylda varnaraðila til að afhenda vegabréf sitt meðan á frelsissviptingu stendur ef hætta þykir á að hann muni reyna að yfirgefa landið.
Hér má sjá breytingarnar í heild sinni á vef alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0865.html
Hér má sjá lögin frá 1997: https://www.althingi.is/lagas/nuna/1997019.html
Eftir að hafa lesið yfir þessi gögn:
1) Hefur þú heyrt einhverja alvöru umræðu í fjölmiðlum um þessi atriði hér að ofan?
2) Finnst þér eðiliegt að þingmenn hafi samþykkt þessi lög með fjörutíu og sjö samhljóða atkvæðum?
3) Finnst þér þessi lög hafa verið samþykkt á þeim grundvelli sem þau voru kynnt af Svandísi í fjölmiðlum "til að tryggja betur réttindi borgara"?
4) Ert þú ánægð/ur með þessa lagasetningu?
5) Eru þessi lög brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar og/eða mannréttindasáttmálans?
,,Mikilvægt er að fram komi að heimildir sóttvarnalaga til skerðingar á réttindum, samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmálans...(sjá meira)" sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra m.a. þegar hún mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi.
Sjá: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/02/08/Breyting-a-sottvarnalogum-samthykkt-a-Althingi/
6) Er Ísland ennþá lýðræðisríki eftir þessa lagasetningu?
Og eru þetta ekki annars lög til langframa?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs