Leita í fréttum mbl.is

Svíþjóð gerir hlé á AstraZeneca bólusetningu!

,,Alls hafa 5.900 skammt­ar af bólu­efni verið flutt­ir til Íslands á síðustu dög­um og til stend­ur að nota þá alla til að bólu­setja for­gangs­hópa 2, 3, 4 og 6 í næstu viku sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá embætti land­lækn­is."

Á tveimur stöðum í Svíþjóð hefur verið gert hlé á bólusetningum með AstraZeneca vegna fjölda alvarlegra aukaverkana
Sama virðist vera upp á teningnum í Frakklandi og Ítalíu.

Útvarp Saga sagði einnig frá. Hverjum á að bjóða þessa næstu skammta? Hver vill verða veikur til þess að verða ekki veikur? Hér á landi eru engin smit í gangi og líkur á að heilbrigð manneskja veikist illa af C19 eru litlar. Það segir meira að segja Alþjóðaheilbrigiðsstofnunin.

Ungt og heilbrigt fólk hefur ekkert við þetta tilraunabóluefni að gera. Hér er verið að taka óþarfa áhættu á heilsu fólks. Ef yfirvöld áttu ekki von á miklu veikindum hér heima eftir bólusetningar eins og þó er raunin með sjúkraflugninga-, slökkviliðsmenn og starfsfólk hjúkrunarheimila - hvað vita þau þá um langtímaáhrif á lítt prófuðu bóluefni? Svarið er: ekki neitt!

Munum að þetta snérist alltaf um að verja ungu og viðkvæmu hópana. Þegar þeir hafa verið bólusettir ætti upphaflega markmiðinu að hafa verið náð. 


mbl.is 2.400 skammtar frá AstraZeneca bárust í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Treystum vísindamönnum!

,,Rann­sókn á áhrif­um bólu­efn­is Oxford-AstraZeneca á börn hefst í Bretlandi síðar í mánuðinum, þar sem 300 sjálf­boðaliðar munu taka þátt."

Þarna eru fremstu vísindamenn í heimi á ferðinni og þeim ber því að treysta!! Þeir eru reyndar að rannsaka lyf á hópum sem  veikjast lítið sem ekkert af Covid,en hvað! 

Væri áhugavert að vita hvaða börn eru send í svona rannsókn, eru það börn fátækra sem fá kannski eitthvað greitt fyrir?

Hér er hægt að sækja um þátttöku.


mbl.is Bóluefni AstraZeneca prófað á börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn að leika sér með ófullprófuð lyf!

astraz,,Eitt­hvað var um að draga þyrfti úr þjón­ustu hjúkr­un­ar­heim­ila á höfuðborg­ar­svæðinu í gær. Or­sök­in er veik­indi starfs­fólks í kjöl­far bólu­setn­ing­ar sem það fékk dag­inn áður."

Fékk sjálf fréttir af því, að hálfgert neyðarástand hafi skapast á hjúkrunarheimili í Reykjavík, nánast allt starfsfólkið veikt eftir sprautuna.

Þetta sýnir að menn vita lítið hvað þeir eru að gera. Að sprauta framlínustarfsfólk eins og það er kallað á sama tíma með tilraunabóluefni. Ef yfirvöld hefðu átt von á þessum miklu veikindum hefði starfsfólkinu að sjálfsögðu verið skipt niður í smærri hópa. Og ef yfirvöld vissu þetta ekki, vita þau þá hver langtíma áhrifin verða? Þessi hollenski læknir (nei hún er ekki "anti-vax" - bara fagmenneskja sem lætur sig heilsu fólks varða) biður fólk að kynna sér hvað mRNA bóluefni eru og að þeim fylgi hætt á þróun sjálfsónæmis.

Þeir segja síðan að þetta sé allt eðlilegt og sé eins og með mörg önnur flensubóluefni til dæmis. Já er það? Þekkið þið dæmi þess að stór hluti starfsfólks hafi ekki mætt til vinnu daginn eftir fjöldabólusetninga gegn flensu? Það var stundum einn og einn sem veiktist en aldrei þannig að það hafi skapast hálfgert neyðarástand á vinnustað vegna veikinda!


mbl.is Draga þurfti úr þjónustu eftir bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt starfsfólkið?

,,Spurður hvort slakað yrði á regl­um um heim­sókn­ir vegna bólu­setn­ing­ar­inn­ar sagði Gísli að lít­ils hátt­ar til­slak­an­ir kæmu til skoðunar þegar allt starfs­fólk hefði fengið fyrstu spraut­una."

Varla er allt starfsfólkið til í að láta bólusetja sig og varla ætlið þið að skylda það til þess enda hafið þið engan rétt til þess.


mbl.is „Alveg meiri háttar“ að fá strax 70% vernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóttvarnarlæknir vill gera tilraun á unga fólkinu!

unglingarÞað kom fram hjá Þórólfi á fundinum í dag að hann hefði áhuga á að bólusetja yngri hópana. Hann tók fram að þó yngra fólk virðist ekki veikjast mikið að þá hafi það tilhneigingu til að breiða út smit!

Veit hann ekki hvernig bóluefnið virkar? Það hefur margoft komið fram að sá bólusetti geti áfram borið smit á milli, þó að bóluefnið minnki hugsanlega veikindi viðkomandi. Um þetta eru ca. milljón greinar að finna. Hér er til dæmis ein.

Miðað við það sem fram hefur komið í rannsóknum hingað til virðist það því út í hött að bólusetja yngra fólk með ósamþykktu (skilyrt markaðsleyfi á EES svæðinu, neyðarleyfi í USA) erfðabreytta tilraunabóluefni sem getur valdið sjálfsónæmi. Hvaða læknir er tilbúinn að gera þessa tilraun á fólki sínu, fólki sem er ekki í áhættu fyrir tilteknum sjúkdómi! 

Annað: er hann búinn að láta bólusetja sig? Hann er í kringum 70 ára og því í margfalt meiri áhættu en yngra fólkið. Ég skora hér með á hann að fara í bólusetningu nú þegar!!

Munum að þetta átti allt að snúast um gamla og viðkvæma fólkið!


mbl.is Sendir tillögur á næstu dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

16 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir

Lyfjastofnun hefur borist 16 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir og 216 ekki alvarlegar.

Hverjar eru þessar 16 alvarlegu tilkynningar? Við vissum að átta af þessum tilkynningum hafi tengst dauðsföllum. Hvað með hinar átta?

Á þessari skráningarsíðunni VAERS kemur fram hver aukaverkunin er.



mbl.is Beint: Upplýsingafundur almannavarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mossview care home - bólusetning hófst 6. jan.

mosview,,Tíu heim­il­is­menn skosks hjúkr­un­ar­heim­il­is eru látn­ir eft­ir að kór­ónu­veiru­smit komu upp inn­an heim­il­is­ins sem er staðsett í bæn­um Loghg­elly. 25 heim­il­is­menn smituðust af kór­ónu­veirunni í hópsmit­inu og 43 starfs­menn." mbl.6.feb.

Þetta er heimilið Mossview sbr. linkinn á Guardian fréttina.

Í þessari frétt má lesa að allir fengu sína fyrstu sprautu þann 6. jan. sl.: "First round of vaccinations

Residents at Mossview received their first round of Covid-19 vaccinations on January 6.

However, in line with guidance, anyone who had tested positive for the virus in the previous four weeks was not offered it."

 

 

 


mbl.is Tíu látnir vegna hópsmits á hjúkrunarheimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með aukaverkanir?

Skráð eru nú 14 tilfelli um alvarlegar aukaverkanir í kjölfar bólusetninga. Við heyrðum um daginn að Lyfjastofnun hefði verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. Hvað með þessi sex til viðbótar?

Og hvað eru ekki alvarlegar aukaverkanir (skilst að vægur hiti og beinverkir sé ekki tilefni til tilkynningar)? Hér ert til dæmis sýnt hverjar aukaverkanirnar eru.


mbl.is Eitt smit innanlands – var í sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú má loka inni heilbrigt fólk lögum samkvæmt!

„Eins og þetta var lagt upp með þá voru mik­il­væg­ustu breytign­arn­ar þær að það væri hægt að beita ýms­um ráðstöf­un­um til þess að setja fólk í sótt­kví, fólk sem væri grunað um en þyrfti ekki að vera með staðfesta sýk­ingu eins og lög­in sögðu til um,“ seg­ir Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir um breyt­ing­ar á sótt­varna­lög­um sem samþykkt­ar voru á Alþingi í gær."

Það er sem sagt hægt skv. lögum að loka inni fólk sem er ekki veikt. Hugsið ykkur allt einkennalausa fólkið sem hefur verið lokað inni með ólögmætum hætti undanfarið, hér og annars staðar í heiminum. Til dæmis barnið sem var sett sjö sinnum í sóttkví. Þvílíkt ofbeldi. 

Og þann 20. janúar sl. sendi WHO frá sér nýjar leiðbeiningar. Nú þarf að mælast meira magn til að próf teljist jákvætt! Þar með er WHO að segja að það hafi verð of auðvelt að fá fram "false positives". Ekki er ólíklegt að jákvæðum prófum hafi fækkað til muna eftir þessa breytingu.

WHO guidance Diagnostic testing for SARS-CoV-2 states that careful interpretation of weak positive results is needed (1). The cycle threshold (Ct) needed to detect virus is inversely proportional to the patient’s viral load. Where test results do not correspond with the clinical presentation, a new specimen should be taken and retested using the same or different NAT technology.


mbl.is Mjög mikilvægt að taka allan vafa af heimildum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Feb. 2021
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband