Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2021

11 af 13 eru bólusettir

Kom fram á vef LSH í morgun. 

https://frettin.is/2021/10/27/11-af-13-covid-sjuklingum-a-landspitala-bolusettir/


mbl.is 84 smit greindust innanlands – 35 í sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með þá sem liggja inni?

,,Alls greind­ust 62 kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær. Af þeim sem smituðust var meiri­hluti óbólu­sett­ur, eða 35. Bólu­sett­ir voru 27.

Af þess­um 62 voru 42 þegar í sótt­kví við sýna­töku.

Ekki hafa fleiri smit greinst á ein­um degi frá því í lok ág­úst.

Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is. 

Tvö smit greind­ust virk á landa­mær­um, auk eins eldra smits. Eitt sýni bíður mót­efna­mæl­ing­ar.

Fjór­ir liggja inni á sjúkra­húsi með sjúk­dóm­inn. Einn þeirra er á gjör­gæslu.

499 manns eru í ein­angr­un vegna smits og 1.499 til viðbót­ar í sótt­kví."

Þetta er hálfunnin frétt fyrst verið er að flokka í bólusetta og óbólusetta. Hvað með þá sem liggja inni? Og eru börn í hópi þeirra sem greindust með smit, ef undir 12 ára þá eru þau öll óbólusett með Covid ,,bóluefninu."

Þessi ókláraða frétt er því augljóslega áróðursfrétt. Þetta lyf sem Lyfjastofnun og yfirvöld kjósa að kalla bóluefni kemur ekki í veg fyrir smit og því segir þessi flokkun ekkert. Við viljum aftur á móti vita hvort þeir sem liggja inni séu bólusettir eða ekki, átti þetta lyf ekki að koma í veg fyrir veikindi (fyrst að það virkaði ekki gegn smitum)? Ekki er ólíklegt að meirihluti þeirra sem liggur enn sé bólusettur, annars hefði sá sem skrifaði þessa frétt tekið annað fram.


mbl.is 62 smit innanlands og meirihlutinn óbólusettur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mesta verðbólga í Bandaríkjunum í 13 ár

Viðsnúningur bandaríska hagkerfisins eftir heimsfaraldrinum hefur leitt til mestu verðbólgu í næstum 13 ár. Neysluverð hækkaði í maí um 5% frá því á síðasta ári.

Vinnumálaráðuneyti Bandaríkjanna segir hækkun vísitölu neysluverðs í síðasta mánuði hafa verið þá mestu frá því í ágúst 2008, þegar neysluverðsvísitalan hækkaði um 5,4%. Kjarnavísitalan sem undanskilur matvæli, olíu, bensín og rafmagn, hækkaði um 3,8% í maí frá fyrra, en það er mesta hækkun á vísitölunni frá því í júní 1992.

Neytendur í Bandaríkjunum finna fyrir verðhækkununum, sérstaklega á bifreiðum. Vísitalan fyrir húsgögn, flugfargjöld og fatnað hækkaði sömuleiðis mikið í maí.

Wall Street Journal segir frá.

 

 

 


Unglingurinn var bólusettur með blóðtappabóluefninu Þórólfur!

Það var barn sem var með blóðtappa í lung­um eft­ir Covid-sýk­ingu"...segir Þórólfur. (Um er að ræða 14 ára dreng sem hafði nýlega verið bólusettur).

Ekki einu sinni faðir drengsins tók þessu mati læknanna sem heillögum sannleik. Viðtal var við feðgana á Stöð 2 þar sem fram kom að strákurinn, sem heilsugæslan taldi að hafi fengið kvíðakast, hafi nýlega farið í bólusetningu. faðirinn sagðist ekki ætla að taka afstöðu til þess hvort orsökin væri Covid eða bóluefnið. Hversu sannfærandi var þá mat læknanna?

En skv. handritinu frá WHO og CDC á að klína öllum bóluefnasjúkdómum upp á Covid. Það er glæpurinn í þessu öllu. 

Sjáið hvernig CDC segir sjúkrahúsum að falsa tölurnar. Ísland gerir það líka.

Þetta snýst allt um að koma þessu ófullreynda og varasama bóluefni út og næst í yngri börn. Þórólfur talar ekki sem læknir heldur pjúra lobbýisti lyfjafyrirtækjanna. Hann ætti að hætta að þiggja laun og álagsgreiðslur frá íslenska ríkinu. Hann er ekki að starfa fyrir íslenskan almenning.

Hafið þið séð Ölmu landlækni nýlega? Nei, hún er pólitíkus" og hefur vit á að fela sig. Skyldi tengdó enn sitja óbólusett inni á Sóltúni, stofnandi öllu hinu gamla fólkinu og starfsfólkinu í hættu! Hjartalæknirinn, maður hennar, vissi auðvitað hverskonar lyf þetta væru og passaði upp á mömmu gömlu.

 


mbl.is Barn fékk blóðtappa í lungu eftir Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjóri Texas bannar skyldubólsetningar við COVID-19

Birt á fréttin.is

 

Greg Abbott ríkisstjóri Texas, hefur gefið út framkvæmdatilskipun sem segir að enginn aðili í Texas geti neytt einstakling, þar með talið starfsmann eða neytanda, til að sýna fram á COVID-19 bólusetningu. Það á við um alla sem eru mótfallnir bólusetningunni af hvaða ástæðu sem er; af  persónulegum, trúarlegum, eða læknisfræðilegum ástæðum, þar með talið vegna fyrri sýkingar af COVID-19.  

Framkvæmdatilskipunin fellur úr gildi þegar lögin verða samþykkt.

„Bóluefni gegn COVID-19 er öruggt, áhrifaríkt og besta vörnin gegn veirunni, en ætti að vera val hvers og eins og enginn skal vera þvingaður til að taka það," sagði Abbott ríkisstjóri.

Abbott sagði að ástæða tilskipunarinnar væri bólusetningaskylda Joe Bidens í öllum ríkjum, og að forsetinn færi þar út fyrir sitt valdsvið. 

Sjá nánar á vefsíðu ríkisstjórans.


Ríkisstjóri Texas bannar skyldubólusetningar við COVID-19

Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, hefur gefið út framkvæmdatilskipun sem segir að enginn aðili í Texas geti neytt einstakling, þar með talið starfsmann eða neytanda, til að sýna fram á COVID-19 bólusetningu. Það á við um alla sem eru mótfallnir bólusetningunni af hvaða ástæðu sem er; af  persónulegum, trúarlegum, eða læknisfræðilegum ástæðum, þar með talið vegna fyrri sýkingar af COVID-19.  

Framkvæmdatilskipunin fellur úr gildi þegar lögin verða samþykkt.

„Bóluefni gegn COVID-19 er öruggt, áhrifaríkt og besta vörnin gegn veirunni, en ætti að vera val hvers og eins og enginn skal vera þvingaður til að taka það," sagði Abbott ríkisstjóri.

Sjá nánar á vefsíðu ríkisstjórans.

 

 

 


Óbólusettir íþróttamenn vinna sigur fyrir dómstólum

16 óbólusettir íþróttamenn unnu sigur fyrir dómstólum í Ohio ríki í Bandaríkjunum. Deilurnar snérust um bann Western Michigan háskólans við íþróttaiðkun óbólusettra sem nær einnig til íþróttafólks frá öðrum háskólum sem koma í keppnisskyni.

Í samhljóða niðurstöðu dómsins, birtri 7. október sl. ályktaði  áfrýjunardómstóllinn í Cincinnati, Ohio að háskólinn hefði brotið gegn fyrstu grein stjórnarskráarinnar sem meðal annars kveður á um frelsi í trúmálum.

Allir íþróttamennirnir 16 höfðu óskað eftir undanþágu á Covid bólusetningu af trúarlegum ástæðum en háskólinn, að sögn dómsins, „hunsaði eða neitaði," beiðninni.

Í dómnum segir: „Háskólinn stillti íþróttafólkinu upp við vegg": Látið bólusetja ykkur eða hættið að fullu að taka þátt í íþróttaleikjum milli háskóla. Með því að skilyrða rétt fólksins til að stunda íþróttir við þann eina kost að láta af eigin trúarskoðunum, hefur háskólinn íþyngt stjórnarskrávörðum rétti þeirra."

Skyldan til bólusetningar hefði komið í veg fyrir að íþróttafólkið gæti spilað leiki eða stundað æfingar með liðum sínum nema það væri bólusett við Covid.

Hér má lesa dóminn.

 

 

 


Pfizer bólusetur heilt bæjarfélag í Suður-Brasilíu

Pfizer ætlar að rannsaka virkni bóluefnisins gegn COVID-19 með því að bólusetja alla íbúa eldri en 12 ára í bænum Toledo í suðurhluta Brasilíu. 148,000 manns búa í bænum. Þetta tilkynnti fyrirtækið á miðvikudag. 

Um er að ræða samstarf Pfizer og bólusetningarráðs Brasilíu, heilbrigðisyfirvalda í Toledo, sjúkrahúss og háskóla.

Pfizer sagði að tilgangurinn væri að rannsaka smit kórónuveirunnar við „raunverulegar aðstæður" eftir að íbúar bæjarins hafa verið bólusettir.

Það er lítil andstaða við bólusetningar í bænum þar sem 98% bæjarins hafa fengið fyrsta skammt, aðallega af Pfizer, AstraZeneca og Sinovac, sagði yfirmaður heilbrigðismála sveitarfélagsins, Gabriela Kucharski, og bætti við að 56% væru fullbólusettir.

„Framtakið er fyrsta og eina sinnar tegundar þar sem ráðist hefur verið í samvinnu við lyfjafyrirtækið í þróunarríki," sagði Pfizer.

Til samanburðar má geta þess að rétt um 47% af brasilísku þjóðinni er bólusett.

New York Times segir frá og fleiri miðlar.

 

 

 

 

 

.


Fjölmenn mótmæli standa nú yfir í Róm gegn ,,græna passaum"

Fjölmenn mótmæli standa nú yfir þessa stundin i Róm á Ítalíu þar sem bóluefnavegabréfum er mótmælt. Frá og með 15. október verður Ítölum skylt að framvísa passanum hjá vinnuveita, hvort sem það eru ríkis-eða einkafyrirtæki. 

Þeir sem ekki geta sýnt fram á fulla bólusetningu, neikvætt PCR - próf eða fyrri Covid sýkingu munu missa störf sín.

Upptöku af mótmælunum má sjá hér.

 

https://twitter.com/disclosetv/status/1446867103932469251

 

 

 


Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband