Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011

Einungis heimilt að vaxtareikna upphaflegan höfuðstól!

Eftirfarandi kemur fram í greinarskrifum Gunnlaugs Kristinssonar lögg. endurskoðanda: 

 Með lögum nr. 151/2010 var lögfest sérregla í 18 gr. laga nr. 38/2001 um þá aðferðarfræði sem beita ætti við endurútreikning lánasamninga sem hefðu að geyma ákvæði um ólögmæta vexti og verðtryggingu. Aðferðin er sú að upphaflegur höfuðstóll skal vaxtareiknaður miðað við vexti Seðlabanka Íslands. Frá höfuðstól og áföllnum vöxtum skal síðan draga frá innborganir miðað við hvern greiðsludag og ráðstafa upp í áfallna vexti og höfuðstól. Skýrt kemur fram í greininni að einungis er heimilt að vaxtareikna upphaflegan höfuðstól. Í athugasemdum með frumvarpi laganna er skýrt tekið fram að ekki sé heimilt að krefjast vanskilavaxta né annarra vanskilaálaga. Ákvæðið er tæmandi um hvaða vaxtaútreikningi megi beita á hin ólögmætu lán.

Úr fréttinni:  Þrjú fyrirtækjanna leggja hins vegar vexti við höfuðstól bílalána við hvern áfallinn gjalddaga og má því til einföldunar segja að vaxtavextir reiknist mánaðarlega (til einföldunar sko...Wink).

Lögin eru þar að auki afturvirk og kvörtun vegna þeirra m.a. hefur verið send til ESA, sjá nánar hér.

 

 


mbl.is Ávinningur kominn fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunandi skilningur á óljósum lögum!

Munurinn á aðferðafræði fjármálafyrirtækjanna byggir á mismunandi skilningi þeirra á lögunum og hvernig standa eigi að útreikningi.

Það er svona að leggja fram óskýr lög og sleppa því að skilgreina skilmerkilega hvernig endurútreikningum „til hagsbóta fyrir skuldara" skuli háttað.  Lögin eru fúsk og endurspegla fúsk þessara fjármálastofnanna. Óskýr lög bjóða upp á misskilning og bjóða upp á spillingu. Voru þau höfð óljós að ásettu ráði. Eða er þetta útkoman þegar „hálfvitar"  búa til lög?

 

 


mbl.is Bílalánin misjafnlega dýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigusamningurinn er lánssamningur!!

Halda mætti að stjórnendur fjármögnunarfyrirtækjanna væru annað hvort fávitar eða atvinnuglæpamenn!! úr fréttinni....„Fjármögnunarfyrirtækin litu svo á að um væri að ræða leigusamninga og fólki í greiðsluaðlögun væri því heimilt að greiða áfram..."

Hæstiréttur hefur DÆMT að bílasamningar/kaupleigusamningar væru Lánssamningar en EKKI leigusamningur og því var um brot á lögum  um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 að ræða!  Þetta er sem sagt lánssamningar!


mbl.is Bílar teknir af fólki í greiðsluskjóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband