Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2023

Frásagnir almennings af hörmulegum afleiðingum sprautanna

causeunknownAlmenningur um allan heim hefur þurft að þola miklar hörmungar undanfarin ár, hörmungar sem valdahópar samfélagsins þ.e. stjórnvöld, auðkýfingar, meginstraumsfjölmiðlar og ákveðinn hópur vísindamanna og fylgjendur þeirra ber fulla ábyrgð á.
 
Almenningi var talin trú um það að ef hann léti sprauta sig með tilraunaefni þá fengi hann frelsi sitt aftur sem tekið hafði verið af honum á geræðislegan hátt vegna flensu sem ljóst var strax að var ekki skaðlegri en hefðbundnar flensur fyrri ára (og leysti flensuna alveg af, engar flensuskráningar voru eftir viku 9 árið 2020 hjá landlæknisembættinu).
 
Tilraunaefnið sem kallað er Covid bóluefni reyndist stórhættulegt eins og m.a. tölur Lyfjastofnunar hér á landi staðfesta.
 
Umframdauðsföll hafa verið gríðarleg í mest sprautuðu löndunum eftir að sprautuherferðin hófst. Fjöldi látinna í heiminum af völdum tilraunaefnisins er talinn vera kominn í 17 milljónir.
 
Á internetinu má finna fjölda frásagna almennings af fólki sem lést eða veiktist alvarlega eftir að hafa verið sprautað með tilraunaefninu. Slíkt getur ekki verið tilviljun eða borið vott um að efnið væri árangursríkt og öruggt eins og fólki var talið trú um.
 
Hérna er linkur á tugi blaðsíðna með frásögnum almennings. Rétt er að vara viðkvæmt fólk við því sem þar er að sjá.
 
Myndin er af bók Edward Dowd fyrrverandi starfsmanni Black Rock. Hann hefur skoðað tölur yfir greiddar bætur bandarískra tryggingafélaga vegna skyndidauða og veikinda undanfarin ár.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband