Leita í fréttum mbl.is

Ráð frá Indlandi

„Ég er ekki með neitt lykt­ar­skyn og ekki neitt bragðskyn,“ sagði Víðir þegar hann var spurður um ástandið á fundi dags­ins.

„Nú eru liðnir þrír mánuðir síðan ég smitaðist. Ég mæli ekki með því við neinn að fá þetta.“ (en fór samt óvarlega sjálfur).

Hér eru ráðleggingar frá Indlandi hvernig hægt er flýta fyrir bata.

En hafa þeir blaðamenn sem á fundinum voru í dag og spurðu m.a. Víði út í þetta, engan áhuga á aukaverkunum vegna C19 bólusetninga? Það varð mun meira um veikindi en menn bjuggust við.

Þær eru í dag 344 og þar af 18 alvarlegar, þar af  þrjár vegna Moderna en það lyf var ekki gefið eldra fólki, heldur þeim sem eru í lögreglunni, slökkviliðinu og sjúkraflutningum.

Fékk loks svar frá Lyfjastofnum um verkanirnar, hér er svarið:

 

,,Sæl Þórdís 

Takk fyrir erindið. Hér koma svör við spurningum þínum.

 

Hverjar eru þessar alvarlegu aukaverkanir sem skráðar eru á vefinn ykkar v C19 bólusetninga? Þær eru 18 í dag.

Fyrst ber að nefna að þær tölur sem birtast á vefnum snúa að tilkynningum um grun um aukaverkun og ekki er víst að tilkynningarnar endurspegli raunverulegar aukaverkanir af bóluefnunum en það er metið í hverju tilfelli fyrir sig. Nánar í þeim fyrirvörum sem fram koma á vefnum um notkun tölulegu upplýsinganna sem þar birtast.

 

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum. Fyrir þær 18 alvarlegu tilkynningar sem nú hafa borist í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 eru 9 andlát, 9 tilfelli um innlögn á sjúkrahús og þar af vörðuðu 2 lífshættulegt ástand.

 

Og hvað er dæmi um aukaverkun sem ekki telst alvarleg? Skilst að væg einkenni séu ekki eitthvað sem verið er að tilkynna.

Allar aukaverkanir sem ekki falla innan skilgreiningarinnar í svari við spurningu 1 teljast „ekki alvarlegar“. Langalgengastar slíkra tilkynninga fyrir bóluefnin til þessa eru flensulík einkenni og óþægindi á stungustað.

 

Hvers vegna er þetta ekki sundurliðað eins og er t.d hjá VAERS í Bandaríkjunum?

Ekki er unnt að veita sundurliðaðar upplýsingar í rauntíma, þar sem vinnsla aukaverkananna á eftir að fara fram. Vegna ákalls um tölulegar upplýsingar brást Lyfjastofnun þannig við að veita tölulegar upplýsingar í rauntíma, jafnvel þótt ekki væri hægt að sundurliða nákvæmlega tilkynningarnar. Allar tilkynningar vegna gruns um aukaverkun fara í samevrópskan gagnagrunn þar sem greining á þeim fer fram, þ.á.m. mat á hvort líkur séu á orsakasamhengi milli tilviksins sem tilkynnt er og bólusetningarinnar. Út frá þessum upplýsingum er síðan metið hvort nýjar eða óvæntar aukaverkanir hafi komið fram sem gefi tilefni til að grípa til breytinga á ráðleggingum um notkun viðkomandi lyfs. Fyrir fyrsta bóluefnið sem fór í almenna notkun (Comirnaty frá BioNTech/Pfizer) hefur verið gefin út fyrsta mánaðarlega skýrslan um öryggi og í henni voru tilkynningar frá Íslandi líka með í greiningunni. Niðurstaðan skýrslunnar var að öryggi bóluefnisins væri í samræmi við fyrri gögn um öryggi þess og að engar nýjar aukaverkanir hafi komið fram.

 

Að auki viljum við benda þér á að ítarlega samantekt allra tilkynninga vegna gruns um aukaverkun á Evrópska efnahagssvæðinu má finna hér.

 

 

Bestu kveðjur,

 

 

Samskiptadeild / Communications Department

Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency

Vínlandsleið 14, IS-113 Reykjavík

Ísland / Iceland

Sími / Tel: +354 520 2100

www.lyfjastofnun.is

Umhverfisvernd - ekki prenta þennan tölvupóst að óþörfu / Please don't print this e-mail unless you really need to

Ábyrgð þín á tölvupósti / Your e-mail responsibilities: www.lyfjastofnun.is

Fyrirvari: Við svörun erinda er stuðst við samþykkta, opinbera lyfjatexta og önnur rýnd gögn sem gefin eru út af lyfjayfirvöldum á Íslandi og í Evrópu. Starfsfólk Lyfjastofnunar veitir ekki persónulegar ráðleggingar um lyf/lyfjanotkun. Sjá nánar á vef stofnunarinnar.

__________________________________________________________________________

 

 

 

 

-----Original Message-----
From: Þórdís B. Sigurþórsdóttir <thordisbs@simnet.is>
Sent: föstudagur, 19. febrúar 2021 11:13
To: Lyfjastofnun - IMA <lyfjastofnun@lyfjastofnun.is>
Cc: Samskiptadeild - IMA <IMA-samskiptadeild@lyfjastofnun.is>
Subject: Fwd: fyrirspurn um aukaverkanir bólusetninga - ítrekun

 

 

Daginn, hef sent fjórar fyrirspurn um málið, ítreka hér með.

 

Hverjar eru þessar alvarlegu aukaverkanir sem skráðar eru á vefinn ykkar v C19 bólusetninga. Þær eru 18 í dag. Og hvað er dæmi um aukaverkun sem ekki telst alvarleg? Skilst að væg einkenni séu ekki eitthvað sem verið er að tilkynna. Hvers vegna er þetta ekki sundurliðað eins og er t.d há VAERS í Bandaríkjunum?

 

með kv.þórdís"

 


mbl.is Finnur enn hvorki bragð né lykt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grímulausi dagurinn handan við hornið!

nomday„Fólk er al­mennt hliðhollt því að nota grím­ur en auðvitað kem­ur að því að við hætt­um skyldu­notk­un á grím­um,“ sagði Þórólf­ur. 

Hvort það verði á þessu ári eða næsta verði að koma í ljós en Þórólf­ur kveðst ekki jafn svart­sýnn og Ant­hony Fauci, sótt­varna­lækn­ir Banda­ríkj­anna, sem býst við því að Banda­ríkja­menn noti grím­ur á næsta ári."

Hávær orðrómur er um að verið að sé að skipuleggja "grímulausan dag" (svona eins og ,,göngum til vinnu" dagur).

Þessi pistill er ritaður í nóvember síðastliðinn, þannig að ef ykkur vantar upplýsingar um hvernig þetta verður á næstu mánuðum (eða a.m.k. hvað stjórnvöld munu reyna að gera, fer eftir því hvað fólk lætur bjóða sér), getið þið alltaf haft samband við höfund greinarinnar. Hann fylgist ágætlega vel með þróun mála í öðrum löndum. En í greininni segir meðal annars:

,,Eða kannski ekki, því bandaríski sóttvarnarlæknirinn Anthony Fauci er ekki sammála. Hann vill að þeir bólusettu gangi áfram með grímur og virði fjarlægðarmörk þar sem smithætta er enn til staðar, því ekki væri vitað hversu öruggt bóluefnið verður."

Og við búum í landi sem varla er nokkuð smit að finna, og framhaldsskólakrakkar enn látnir sitja tímunum saman í skólum með grímur fyrir andlitum, jafnvel í þolprófi í leikfimi! Er ekki í lagi með ykkur? Hversu margir læknar ráðleggja þetta? Og sóttvarnarlæknir var á allt annarri grímuskoðun fyrir einhverjum mánuðum síðan.

N
ú er búið að bólusetja gamla fólkið á hjúkrunarheimilum (ekki samt alla, nánar um það síðar), þá hljóta krakkarnir sem eru ekki í áhættu að geta setið grímulausir í kennslustundum. Því meira súrefni, því betra fyrir námið!

 


mbl.is Grímulaus hegðun ekki í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. febrúar 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband