Leita í fréttum mbl.is

Ekki efast um bóluefnið sem veitir ykkur ekki eðlilegt líf !

Að minnsta kosti einn fjölmiðill, já hægri Fox, bendir á að Fauci hafði rangt fyrir sér með jóla og Thanksgiving spár (hækkandi smittölur). Það var reyndar eins hér heima. Smitum fjölgaði ekki eftir jóla og áramót og ekki eftir samkvæmið í Ásmundarsal. Og ekki spyrja um bóluefnið segir fréttamaðurinn sem bendir á að það hafi verið logið af fólki, að eftir bólusetngingu yrði lífið eðlilegt á ný en nei, áfram skal vera með grímur og halda fjarlægð. Hér er þetta.

Og hér frá heilbrigðisyfirvöldum á Englandi, vertu áfram með grímu eftir bólusetningu.

Þetta er farið að hljóma eins og margir bentu snemma á. Scam!


mbl.is Þetta kom fram á fundi dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En að stinga saklausu fólki í fangelsi?

,,Er út­lit fyr­ir að þeir sem neita að fara í sýna­töku við kom­una til lands­ins verði skyldaðir í far­sótt­ar­hús?

„Við erum að skoða laga­grund­völl­inn fyr­ir því. Það er auðvitað mik­il­vægt að hann sé skýr. Svo  er verið að skoða fleiri út­færslu­mögu­leika eins og að gera kröfu um nei­kvætt Covid-sýni sem er þá tekið í land­inu sem viðkom­andi kem­ur frá, áður en hann legg­ur af stað,“ seg­ir Svandís. Ákvörðunin verður tek­in í þess­ari viku."

Hvað með að kanna í leiðinni hvort það sé löglegt að stinga saklausu fólki í fangelsi?  Svona fyrst þið eruð komin hálfa leið til Kína. 


mbl.is Skoða hvort farsóttarhúsaaðferðin sé lögleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsfaraldurinn mikli!

,,Harðneiti fólk bæði að fara í sýna­töku og í far­sótt­ar­hús er mögu­legt að vísa því úr landi, ef það er ekki bú­sett hér­lend­is, að sögn Sig­ur­geirs."

En ef fólk er búsett hérlendis og neitar báðu? En annars er þessi heimsfaraldur svakalegur, dánartíðnin var lægri á árinu 2020 en 2019. Sjá tölur Hagstofunnar hér.

Verst að Ísland skuli vera svona lítið þannig að ekki er hægt að rugla eins mikið í fólki eins og t.d. í Bretlandi þar sem allir eru hættir að deyja úr öðru en Covid. 


mbl.is Mögulegar breytingar á reglugerð í vinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki reikningsdæmi!

,,Það kem­ur hon­um (Rögnvaldi) á óvart þegar fólk vel­ur 14 daga fram yfir fimm daga sótt­kví og seg­ir hann um að ræða reikn­ings­dæmi sem hann skilji ekki."

Þetta er ekki reikningsdæmi, þannig lagað séð. Það eru bara ekki allir til að láta troða pinna langt upp í nef og ofan í kok á sér, próf sem er þekkt fyrir að gefa rangar niðurstöður. Þvinguð lífsýnataka kallast þetta og er brot á mannréttindum. 


mbl.is „Reikningsdæmi sem ég skil ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert aðildaríki má semja upp á eigin spýtur

Engu ESB ríki er heimilt að semja um bóluefni upp á eigin spýtur segir Ursula von der Leyen. ,,Við gerum þetta saman."

Ísland er reyndar ekki aðildarríki en virðist bundið þarna inn í.

Build back together, erum við ekki með í því? Resettið á að taka tvö ár ca. Samkvæmt þessari frétti vissi Kári það.

Merkilegt að þetta litla bóluefni sem kom með einkaþotu um daginn hafi verið að mestu nýtt fyrir gamalt og dauðvona fólk.


mbl.is „Þetta er allt í lausu lofti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Twitter lokar á 60,000 repúblíkana

Twitter lokaði ekki bara á forsetann, líka Sidney Powell og Gen. Flynn og skv. þessari frétt um 60,000 "conservatives". 

https://twitter.com/i/status/1347898996497412096


mbl.is Google fjarlægir Parler
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot á stjórnarskrá!

,,Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir legg­ur til að fólk verði skyldað til að fara í sýna­töku gegn Covid-19 við kom­una til lands­ins og að öðrum kosti verði þeir sem ekki fara í skimun send­ir í Far­sótt­ar­hús í 14 daga."

Þetta er klárt brot á stjórnarskrá og bara almennum mannréttindum. Það er ekki hægt að þvinga fólk í þessa sýnatöku sem gefur ekki einu sinni öruggt svar. Annars stinga því í einangrun. Þið eruð farin að færa ykkur hratt upp á skaftið og verðið brátt komin þar sem Bretar, Ástralir og Kanadamenn eru sem eru farnir að skipta sér af kynlífi fólks. Hér eru reglur Breta (kannist þið við myndagrafíkina, eins og hjá Almannvörnum?), hér er Kanada og hér er Ástralía sem gengur hvað lengst og eru eins og verstu perrar.

Og svo þetta, Bretar ætla að setja öklaband á starfmsenn BBC, til að passa nánadartakmörk. 


mbl.is Aukið eftirlit og skylda fólk í farsóttarhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Great Reset tekur um það bil 2 ár!

reset,,Áætlan­ir um af­hend­ingu bólu­efna við Covid-19 breyt­ast stöðugt og nær dreif­ingaráætl­un hér­lend­is ein­ung­is til loka mars, að sögn sótt­varna­lækn­is. Sem stend­ur er út­lit fyr­ir að bólu­efni fyr­ir 30.000 manns komi til lands­ins á fyrsta árs­fjórðungi en það get­ur breyst." (Þórólfur Guðnason mbl. 6.jan.). 

Ég fylgist vel með hinum ýmsu konum og mönnum á twitter, þar á meðal stjórnmálmönnum ýmissa ríkja, og þar finnst meðal annars sú kenning að það megi ekki bólusetja sem flesta sem fyrst því að á bak við þennan mikla heimsfaraldur (heildardánartíðni flestra þjóða er ekki hærri 2019 heldur ívið lægri en undanfarin ár, þar á meðal á Íslandi, sjá hér.) er the Great Reset í gangi, að koma efnahagi þjóða á hausinn og byggja upp á ný þar sem auðhringarnir vilja koma upp nýju stofnanaumhverfi „alþjóðasamfélagsins" þar sem þeir eru jafnréttháir þjóðríkjum. Sjá þessa fínu samantekt

Skilst að "lockdown" hrunið eigi að taka um það bil tvö ár og það vita menn í innsta hring. Jafnvel Kári Stefánsson sem sagði í febrúar að samfélagið yrði á hliðinni í tvö ár. Hvers vegna? Átti ekki bóluefnið að koma fljótlega um áramótin 2019/2020?  Og stóri bróðir Bill Gates er líka alltaf að teygja á því og talar nú um 2022.

Það er ekki hægt að klára faraldurinn strax ef endurræsingin mikla á að taka tvö ár. Því þarf að skammta bóluefni og draga fólk á asnaeyrunum. Lokaspretturinn alltaf að lengjast, ný afbirgði spretta upp, nýjar hættur. Bíða eftir almennilegu hruni svo hægt verði að endurreisa, build back better syngja þjóðarleiðtogar allir í kór, líka Katrín Jakobsdóttir. Sjá twitter 14.des.sl.

Klaus Schwab, höfundur bókarinnar á myndinni er ekkert að fela og búinn að gefa út bókina. Hann er stofnandi World Economic Forum sem fjallað er um hér ofar. Hann sér líka fyrir sér að krakkar séu ekki að flækjast í skólann heldur sitji heima og læri fyrir framan skjái. Sjá ca.mín.04.


mbl.is Afhendingaráætlanir bóluefna breytast stöðugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tjón af völdum bólusetningar bótaskylt

Var að lesa þess frétt:

,,Í lögum um sjúkratryggingar gildir almennt að bætur greiðist ekki ef rekja má tjón til eiginleika lyfs sem notað er við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð. Með frumvarpinu leggur heilbrigðisráðherra til breytingar á lögunum sem tryggja bótaábyrgð Sjúkratryggingastofnunar vegna bólusetningar gegn COVID-19. Ábyrgðin nær yfir þá sem undirgangast bólusetningu á árunum 2021-2023."

Þýðir þetta að þeir sem voru bólusettir 2020 eigi engan rétt?



mbl.is Ekki mistök að greina frá andlátunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bólusett fólk líka lokað inni

lockdown

,,Stjórn­völd í Englandi segja að út­göngu­bann sem til­kynnt var um í gær og tók gildi í dag gæti varað fram í mars.

Aðgerðunum, sem sam­svara al­gjöru út­göngu­banni með ströng­um skil­yrðum fyr­ir und­anþágum, er ætlað að stemma stigu við mik­illi fjölg­un til­fella kór­óna­veirunn­ar í kjöl­far nýs bráðsmit­andi stofns og eru til sex vikna til að byrja með."

Og þeir sem eru bólusettir eru líka lokaðir inni. Hvers vegna er það? Snýst þetta ekki um útbreiðslu sjúkdóms? Merkilegt að þetta bráðsmitandi Brexit afbrigði veirunnar hafi sprottið upp um leið og byrjað var að bólusetja.

En á bak við Main Stream Media er annar heimur sem segir þetta ekki rétt. Spítalar eru ekki fullir, þetta afbrigði er ekki meira smitandi. Og flensan er horfin eins og hér heima. Engin flensutilfelli hafa verið skráð á Íslandi síðan í apríl (ath. inflúensa er skráningarskyldur sjúkdómur). Fólk er að birta heildardánartölur fyrir hinar ýmsu þjóðir t.d. á twitter sem sýnir það sama og hér heima. Dánartíðni hefur ekki hækkað, frekar lækkað. Dánartölur frá Hagstofu Íslands.

Hvað segið þið um þessa kenningu? Hún er fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður G. Bush. Markmiðið er að koma á fót nýju rafrænu greiðslukerfi þar sem manneskjan er tengd við kerfið. Áhugavert að heyra það sem hún hefur að segja og skoða í samhengi við nýju sóttvarnarlögin hér heima þar sem segir meðal annars.
,,Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi." Hefur engum blaðamanni dottið í hug að spyrja lækna eða yfirvöld hvað þetta gæti þýtt? Sjá 5.gr. í frumvarpinu.

Ef þið eruð á twitter, hér er til dæmis áhugavert efni. Þrátt fyrir að fjölmiðlar birti ekki aðrar hliðar málsins þá geta blaðamenn a.m.k. skoðað ;=) Það getur nánast hver sem er verið blaðamaður í dag.

Og þessi prófessor er með haug af tölfræði.

Og hér er breskur stjórnmálamaður sem svarar Boris:

Replying to
No one believes a word you say. We know what is happening. You are collapsing the economy & demoralising people for your Globalist masters to usher in the Great Reset. You will become the most despised PM ever, even more than Blair.


Og meira frá Bretlandi:

 
 
 
Leader of For Britain Party
 
@FB_Committee
·
Jan 4
 
This is not from social media, it is someone I know in my own life: A death in the family, NOT COVID related, registered as a COVID death. Family objected to this and were told it was government policy. The government is deciding what goes on our death certificates.

 

 

 


mbl.is Útgöngubann gæti gilt fram í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Jan. 2021
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband