Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2025

Bandaríkin hafna breytingum á alþjóða heilbrigðsreglugerðinni

Heilbrigðisráðherra og utanríkisráðherra Bandaríkjanna gáfu í dag út sameiginlega yfirlýsingu um formlega höfnun Bandaríkjanna á breytingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) á alþjóða heilbrigðisreglugerðinni frá árinu 2024.

Breytingarnar myndu veita WHO heimild til að fyrirskipa alþjóðleg útgöngubönn, setja á ferðatakmarkanir eða aðrar aðgerðir sem hún telur viðeigandi til að bregðast við óljósri „hugsanlegri lýðheilsuáhættu“.

Þessar reglugerðir verða bindandi ef þeim verður ekki hafnað fyrir 19. júlí 2025, óháð því hvort Bandaríkin hætti í WHO eða ekki.

„Tillögur að breytingum á alþjóða heilbrigðisreglugerðinni opna dyrnar fyrir áróðri og ritskoðun sem við sáum á meðan COVID-faraldrinum stóð,“ sagði Kennedy, heilbrigðisráðherra.

„Bandaríkin geta unnið með öðrum þjóðum án þess að stofna borgaralegum réttindum okkar í hættu, án þess að grafa undan stjórnarskrá okkar og án þess að afsala okkur dýrmætu fullveldi Bandaríkjanna.“ Kennedy birti einnig myndband þar sem hann útskýrði aðgerðirnar fyrir bandarísku þjóðinni.

„Hugtökin í breytingunum á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni frá 2024 eru óljós og víðtæk og auka hættuna á alþjóðlegum viðbrögðum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur samræmt og einblínir á pólitísk mál eins og samstöðu, frekar en skjótar og árangursríkar aðgerðir,“ sagði Rubio, utanríkisráðherra.

„Stofnanir okkar hafa verið og munu halda áfram að vera skýrar: við munum setja Bandaríkjamenn í fyrsta sæti í öllum aðgerðum okkar og við munum ekki þola alþjóðlega stefnu sem brýtur gegn tjáningarfrelsi, friðhelgi einkalífs eða persónufrelsi Bandaríkjamanna.“

Þann 1. júní 2024 samþykkti Alþjóðaheilbrigðisþingið (WHA), æðsta ákvarðanatökustofnun WHO, endurskoðaða útgáfu af alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni í gegnum hraðferli án nægilegrar umræðu og almenningsþátttöku.

Öll yfirlýsingin er hér:





Pfizer lota EM0477 og réttarhöldin í Hollandi

Réttarhöld um bóluefnaskaða í Leeuwarden, Hollandi

Þann 9. júlí 2025 hófst sögulegt dómsmál í Leeuwarden í Hollandi sem markar mögulega upphaf á alþjóðlegu uppgjöri vegna skaða og spillingar í tengslum við COVID-19 sprautur. Réttarhöldin snúast um lotu nr. EM0477 af COVID-19 sprautunum frá Pfizer, og er því haldið fram að þessi lota hafi valdið verulegum skaða, þar á meðal dauðsföllum. Þetta mál, sem sumir kalla undanfara „Nürnberg 2.0“, er höfðað gegn valdamiklum einstaklingum. Í stefnunni eru lögð fram traust sönnunargögn, þrátt fyrir tilraunir til ritskoðunar og þöggunar. Stefnendur eru allt einstaklingar sem hafa hlotið skaða af bóluefnunum og einn þeirra hefur í millitíðinni látist. Þrír til viðbótar hafa óskað eftir að vera með í málssókninni.

Lota EM0477 og sönnunargögn

Þungamiðja málaferlanna er Pfizer lota nr. EM0477, þar sem lögð eru fram 146 sönnunargögn, m.a. innanhúss tölvupóstar, krufningar, samningar sem stjórnvöld gerðu og vitnisburðir uppljóstrara. Þessi lota er sérstaklega alræmd, og felur í sér tilkynntar aukaverkanir um skaða frá 79 heilsugæslustöðvum, læknum og ættingjum sem tilkynntu yfirvöldum um skyndileg dauðsföll í kjölfar bólusetninganna. Sönnunargögnin benda til kerfisbundins máls, sem einskorðast ekki við þessa einu lotu, heldur bendir til víðtækara misferlis lyfjafyrirtækjanna og háttsettra einstaklinga.

Lykilspurningar sem vakna eru meðal annars vanræksla á að innkalla hættulegar framleiðslulotur, yfirhylming á tilkynntum aukaverkunum og sú friðhelgi sem Pfizer hefur fengið með samningum sínum við ríkisstjórnir heims. Ákæruvaldið stefnir að því að afhjúpa alþjóðlegt bandalag milli stórfyrirtækja, lyfjafyrirtækja, fjölmiðla og stjórnvalda.

Stefnendur tilgreina nokkra þekkta einstaklinga í þessu máli, þar á meðal Albert Bourla, forstjóra Pfizer, sem er sakaður um að hafa blekkt almenning, Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands og núverandi framkvæmdastjóra NATO, fyrir að leyna öryggisgögnum, Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fyrir leynilega bóluefnasamninga og fyrir að hylma yfir aukaverkanir, Bill Gates, sem er áhrifamikill í alþjóðlegum heilbrigðismálum og Klaus Schwab, stofnanda Alþjóðaefnahagsráðsins. Þessar ásakanir snúast ekki aðeins um réttarbaráttu heldur eru jafnframt áskorun um heiðarleika í alþjóðlegum stjórnarháttum og ábyrgð fyrirtækjanna.

Handtaka Arno van Kessel, lögmanns stefnenda

Verulega reyndi á skriðþunga málsins þegar Arno van Kessel, aðallögmaður málaferlanna, var handtekinn 11. júní sl. Van Kessel var fjarlægður með valdi af heimili sínu af sérstöku íhlutunarteymi. Bundið var fyrir augun á honum, hann handjárnaður og stungið í fangelsi við hámarksöryggisgæslu í Suður-Hollandi, sem leyfir hvorki heimsóknir fjölskyldu né samskipti af neinu tagi.

Þessi handtaka, sem átti sér stað rétt fyrir réttarhöldin 9.júlí, er talin tilraun til að hræða aðra frá því höfða mál af svipuðum toga, ásamt því að spilla málsmeðferðinni. Tímabundin fangelsun Van Kessel sem lögmanns í málinu, hefur verið framlengd í allt að tvö ár og veldur áhyggjum yfir því að lögfræðiaðstoð sé ekki lengur til staðar. Hollenski lögmaðurinn og kollegi Van Kessel, Peter Stassen, hefur þó tekið við málinu. Fangelsið sem er þekkt fyrir yfirheyrsluherbergi og aðgang að dómskerfinu á netinu, hefur verið líkt við fangelsið í Guantanamo-flóa.

Áhrif og krafa um réttlæti

Réttarhöldin í Leeuwarden eru talin geta undið upp á sig og leitt til svipaðra dómsmála á heimsvísu. Í málinu er lögð áhersla á nauðsyn þess að stofna nýjan alþjóðlegan dómstól ef borgaralegir dómstólar skyldu bregðast og gefið til kynna að herdómstólar séu síðasta úrræðið í baráttunni gegn landráðum á hæsta stigi.

Handtaka Van Kessel og sönnunargögnin sem lögð eru fram varpa enn frekara ljósi á hversu víðtæk ritskoðunin og þöggunin er í tengslum við COVID-19 bóluefnin, hinar ýmsu tilskipanir og hagnaðinn sem hefur hlotist af bóluefnunum, þar sem jafnframt er krafist réttlætis fyrir fórnarlömb og ábyrgðar sakborninga.

 

 


Hver er bólusetningastaða þeirra greindu og látnu?

Það sem vantar alveg inn í svona fréttir er hver bólusetningastaða þeirra veiku (greindu) og látnu er. Því samhliða svona fréttum er oftast talað um bólusetningar í leiðinni og þannig er það í pappírsútgáfu Moggans í dag (og sbr. mynd með þessari tengdu frétt):

19 létust af Covid-19. Hver var bólusetningastaða þeirra? 90% landsmanna hafa fengið Covid-sprautur og hlutfallið er enn hærra hjá 70 ára og eldri.

Segir í skýrslunni að tímabært sé að skoða hvort hægt sé að afmarka frekar hvaða hópar þurfa enn Covid-bólusetningu reglulega. Árið 2025 er síðasta árið sem samevrópskir samningar um covid19-bóluefni skila bóluefni hingað til lands."

Og:

Í fyrra greindust 145 með kíghósta og var helmingur þeirra börn 14 ára og yngri, þar af sex ungbörn á fyrsta aldursári, en þeim er hættast við alvarlegum veikindum. Enginn lést vegna kíghósta í fyrra. Frá 2019 hefur verið boðin bólusetning gegn kíghósta á meðgöngu með ágætri þátttöku, eða um 70%."

Í svona frétt þar sem fjallað er um veikindi og bólusetningar samhliða, þá vantar algjörlega samanburðinn. Hvaða börn fengu kíghósta, mæður þeirra sem ekki fengu bólusetningu á meðgöngu, börn sem ekki fengu sjálf kíghósta bólusetninga eða hvað?

Hér er samantekt frá því í fyrra í tengslum við sýkingar í skólum. Skv. fyrirspurn og svari sóttvarnalæknis höfðu allir þeirra greindu fengið bóluefnið.

Án þessara upplýsinga eru engin vísindi til staðar! Og konurnar á mæðratips" missa sig og saka foreldra um að bólusetja ekki börnin sín!!

https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2301684/

Í þessu samhengi mætti einnig nefna að heilbrigðisyfirvöld eru ekkert að hafa fyrir því að kanna flensubólusetningastöðu (eða segja það a.m.k.) þeirra sem lagðir eru inn vegna flensunnar. Hvernig væri það nú? Þau segjast ekkert vita um samband flensubólusetninga og innlagna vegna flensunnar. En sú vísindi! ;)

https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2310303/





mbl.is Versta bylgja kíghósta í nær 30 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband