Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2024
27.2.2024 | 18:14
Arnar Þór og Alma í kappræðum
Það yrði áhugavert að sjá og heyra þau Arnar Þór og Ölmu í kappræðum, t.d. um umframdauðsföllin sem átt hafa sér stað í tíð Ölmu, sérstaklega árið 2022, eftir hina "öruggu og áhrifaríku" sprautuherferð.
Skora á Ölmu að bjóða sig fram þannig að landsmenn geti meðal annars horft á hana svara fyrir annus horriblis í beinni útsendingu.
Langar annars að vita hver skoraði á hana, var það tengdó á Sóltúni (í þakklætisskyni)?
Alma Möller: Íhuga að íhuga forsetaframboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 28.2.2024 kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2024 | 19:35
Navalny lést úr blóðtappa segir yfirmaður leyniþjónustu Úkraínu
Fyrr í dag skýrði yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, Kyrylo Budanov, frá því að Navalny hafi látist af völdum blóðtappa.
Fréttamenn spyrja Budanov um dánarorsök Navalny og Budanov svarar: Það gæti valdið ykkur vonbrigðum en það sem vitum er að hann fékk blóðtappa.
Hér má sjá upptöku af fréttinni:
https://twitter.com/i/status/1762107989241078163
Daily Mail segir meðal annars frá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.2.2024 | 15:12
Leynd hvílir yfir flugi erlenda ferðmannsins með mislingana
Í Morgunblaðinu 25. janúar sl. er haft eftir sóttvarnalækni að þátttaka í bólusetningu gegn mislingum hafi farið dvínandi hér á landi, að það sé áhyggjuefni og landið viðkvæmt fyrir útbreiðslu mislinga.
Og viti menn, aðeins nokkrum dögum síðar, 31. jan., á hingað að hafa komið erlendur ferðamaður sem greinist með mislinga á Landspítalanum og hann settur í einangrun. Og upp hófst mikið fár:farið í bólusetningu, óbólusettir í mikilli hættu!
Fyrirspurn var send á sóttvarnalækni sunnudaginn 4.feb. þess efnis hvort allir þeir sem voru í fluginu með hinum smitaða hefðu verið upplýstir.
Svar sóttvarnalæknis var að svo væri. En sama dag var bætt við leiðréttingu í frétt embættisins. Ferðamaðurinn kom víst ekki til landsins 31. jan. heldur 1. feb. Hann fékk útbrot þann 1. feb. og leitaði til heilbrigðisþjónustu 2. feb. segir í fréttinni. Hann fær sem sagt útbrot sama dag og hann er á ferð og flugi.
Haft var samband við upplýsingafulltrúa Icelandair sem sagði að þetta hafi líklega ekki verið með þeirra vél, upplýsingafulltrúinn virtist auk þess ekki hafa heyrt af atvikinu.
Fyrirspurn var þá send á flugfélagið Play sem svarar því að maðurinn hafi komið frá Kaupmannahöfn 31. janúar, ekki 1.febrúar. Sjá hluta úr samtali á mynd.
Skv. þessu og leiðréttingu sóttvarnalæknis voru upplýsingar um smithættu sendar á ranga flugfarþega (Landspítalinn upplýsir sóttvarnalækni um smitið sem upplýsir flugfélagið og annað hvort sendir flugfélagið eða sóttvarnalæknir boð til farþega).
Ítrekað var reynt að fá svar við því með hvaða flugi maðurinn kom. En svör sóttvarnalæknis voru að það skipti ekki máli, að samband hefði verið haft við þá sem málið varðaði og að erlendi ferðamaðurinn hafi komið 1. feb. en ekki 31. jan. eins og fyrst var sagt. Upplýsingafulltrúi Landspítalans svaraði ekki, ekki landlæknir og ekki upplýsingafulltrúi heilbrigðisráðuneytisins.
Hingað til hafa greinargóðar upplýsingar fylgt með fréttum af þessu tagi; flugnúmer, flugfélag, komu-og brottfarastaður, sjá t.d. hér og hér. En núna virðist alls ekki mega segja með hvaða flugi maðurinn kom. Hafi hann komið 1.feb. þá var hann sem sagt með útbrot í fluginu eða fékk þau strax eftir komuna til landsins, kannski í fríhöfninni eða með flugrútunni í bæinn!
Nýlega segir sóttvarnarlæknir síðan frá því að engin fleiri smit hefðu fundist. Sem hlýtur að vera nokkuð gott fyrst að líkurnar á að smita aðra séu 90% og ferðamaðurinn annað hvort kominn með útbrot í vélinni eða fengið strax við komuna til landsins.
Og fyrst að það er leyndarmál með hvaða flugi maðurinn kom, mætti spyrja hvort þessi saga sé sönn eða hvort hér sé verið að skapa hysteríu og smala fólki í bólusetningar.
Yfirlæknir á Landspítala skrifar grein í Mogga og segir mislinga á 19.öld hafa fellt fleiri en spænska veikin o.s.frv. Samfélagsmiðlar loguðu og mæður sögðu m.a. að skylda ætti svona bólusetningar sem hefðu bjargað mörgum mannslífum.
Er það bóluefnum að þakka?
Að lokum má nefna að dauðsföll af völdum mislinga og annarra smitsjúkdóma voru þegar að líða undir lok, m.a. með tilkomu aukins hreinlætis, hreins vatns, betri geymsluaðferða á matvælum o.fl., þegar bóluefnin komu til sögunnar og því er spurning hvort verið sé að eigna lyfjafyrirtækjunum eitthvað sem þau ekki eiga. Sjá td. mynd úr skjali Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, bls. 85. (Byrjað var að bólsuetja við mislingum á Íslandi 1976).
Sama með aðra sjúkdóma. Takið eftir að ekkert bóluefni kom fyrir skarlatsótt en dauðsföll af völdum hennar fjöruðu samt út.
Bloggar | Breytt 16.2.2024 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs