Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) hefur verið stefnt fyrir alríkisdómstól fyrir að hafa aldrei rannsakað öryggi þeirra 72 skammta af bóluefnum sem eru á bólusetningaráætlun fyrir börn í Bandaríkjunum. Stofnunin er sökuð um að hafa vanrækt skyldur sínar um að rannsaka samanlögð áhrif á þessum 72 skömmtum sem börnum er gefið.
Læknarnir Paul Thomas og Kenneth P. Stoller, ásamt samtökunum Stand for Health Freedom, krefjast svara í dómsmáli sem gæti kollvarpað umræðunni um öryggi bóluefna.
Í bólusetningaráætluninni fyrir börn er mælt með allt að 72 skömmtum fyrir 18 ára aldur til að vernda gegn 16 sjúkdómum - sem er veruleg aukning frá árinu 1983, þegar skammtarnir voru alls 24. Myndin hér ofar sýnir aukninguna sem orðið hefur á fjölda bóluefna sem börnum eru gefin. Ath. síðustu ár hefur einnig verið mælt með bólusetningum barnshafandi mæðra, þar á meðal Covid sprautum.
Samkvæmt málsókninni, sem lögmaðurinn Rick Jaffe höfðaði fyrir héraðsdómstóli Bandaríkjanna, District of Columbia, hefur CDC ekki framkvæmt ítarlegar rannsóknir á því hvernig öll þessi bóluefni fara saman eða hver samanlögð áhrif þeirra eru, þar á meðal innihaldsefni eins og ál og möguleg langtímaáhrif á heilsuna. Án allra rannsókna er spurningum um öryggi bólusetningaáætlunarinnar ósvarað.
Málsóknin vísar í bandarísk lög um skaða af bóluefnum á börn frá 1986, lög sem sett voru til að tryggja öryggi bóluefna og til verndar framleiðendum í kjölfar málaferla vegna barnaveiki-stífkrampa-kíghóstabóluefnisins (DTP) á níunda áratugnum. Frá þeim tíma voru lyfjaframleiðendur að mestu stikkfrí frá allri fjárhagslegri ábyrgð á skaða sem bóluefnin gætu hafa valdið. (National Childhood Vaccine Injury Act.
Lögin kváðu á um að heilbrigðisráðuneytið skyldi stofna starfshóp og leggja fram öryggisskýrslur til þingsins á tveggja ára fresti. Aftur á móti var starfshópurinn lagður niður árið 1998 og engar skýrslur lagðar fram.
Samtökin Children´s Health Defense (CHD), sem styðja málsóknina, leggja áherslu á nauðsyn þess að lyfjaframleiðendur beri ábyrgð á bóluefnum sínum. Formaður samtakanna Mary Holland sagði: Vanræksla CDC á að rannsaka bólusetningaráætlunina í heild grefur undan trausti almennings. Málið krefst þess að CDC leggi fram sannanir fyrir öryggisrannsóknum eða viðurkenni að þær séu einfaldlega ekki til.
Þessi málshöfðun kemur í kjölfar tilkynningar frá júní 2025 frá ráðgjafarnefnd CDC um bólusetningar (ACIP), undir forystu Svíans Dr. Martin Kulldorff, um að hefja rannsóknir á þessum (samanlögðu) áhrifum. Þetta skiptir máli vegna þess að tilkynningarkerfið um aukaverkanir bóluefna í Bandaríkjunum (VAERS) hefur skráð yfir 2,5 milljónir aukaverkana, þó að rannsókn frá Harvard árið 2011 áætli að færri en 1% af tilfellum séu tilkynnt.
Málsóknin er ákall um gagnsæi í lýðheilsu. Hversu mikil hefði aukningin orðið ef ábyrgðin hefði ekki verið tekin af lyfjafyrirtækjunum?
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
axeltor
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning