15.7.2025 | 21:21
Pfizer lota EM0477 og réttarhöldin í Hollandi
Réttarhöld um bóluefnaskaða í Leeuwarden, Hollandi
Þann 9. júlí 2025 hófst sögulegt dómsmál í Leeuwarden í Hollandi, sem markar mögulegt upphaf á alþjóðlegu uppgjöri vegna skaða og spillingar í tengslum við COVID-19 sprautur. Réttarhöldin snúast um lotu nr. EM0477 af COVID-19 sprautunum frá Pfizer, og er því haldið fram að þessi lota hafi valdið verulegum skaða, þar á meðal dauðsföllum. Þetta mál, sem sumir kalla undanfara Nürnberg 2.0, er höfðað gegn valdamiklum einstaklingum. Í stefnunni eru lögð fram traust sönnunargögn, þrátt fyrir tilraunir til ritskoðunar og þöggunar. Stefnendur eru allt einstaklingar sem hafa hlotið skaða af bóluefnunum og einn þeirra hefur í millitíðinni látist, en þrír til viðbótar hafa óskað eftir að vera með.
Lota EM0477 og sönnunargögn
Þungamiðja málaferlanna er Pfizer lota nr. EM0477, þar sem lögð eru fram 146 sönnunargögn, m.a. innanhúss tölvupóstar, krufningar, samningar sem stjórnvöld gerðu og vitnisburðir uppljóstrara. Þessi lota er sérstaklega alræmd, og felur í sér tilkynntar aukaverkanir um skaða frá 79 heilsugæslustöðvum, læknum og ættingjum sem tilkynntu yfirvöldum um skyndileg dauðsföll í kjölfar bólusetninganna. Sönnunargögnin benda til kerfisbundins máls, sem einskorðast ekki við þessa einu lotu, heldur bendir til víðtækara misferlis lyfjafyrirtækjanna og háttsettra einstaklinga.
Lykilspurningar sem vakna eru meðal annars vanræksla á að innkalla hættulegar framleiðslulotur, yfirhylming á tilkynntum aukaverkunum og sú friðhelgi sem Pfizer hefur fengið með samningum sínum við ríkisstjórnir heims. Ákæruvaldið stefnir að því að afhjúpa alþjóðlegt bandalag milli stórfyrirtækja, lyfjafyrirtækja, fjölmiðla og stjórnvalda.
Stefnendur tilgreina nokkra þekkta einstaklinga í þessu máli, þar á meðal Albert Bourla, forstjóra Pfizer, sem er sakaður um að hafa blekkt almenning, Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands og núverandi framkvæmdastjóra NATO, fyrir að leyna öryggisgögnum, Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fyrir leynilega bóluefnasamninga og fyrir að hylma yfir aukaverkanir, Bill Gates, sem er áhrifamikill í alþjóðlegum heilbrigðismálum og Klaus Schwab, stofnanda Alþjóðaefnahagsráðsins. Þessar ásakanir snúast ekki aðeins um réttarbaráttu heldur eru jafnframt áskorun um heiðarleika í alþjóðlegum stjórnarháttum og ábyrgð fyrirtækjanna.
Handtaka Arno van Kessel, lögmanns stefnenda
Verulega reyndi á skriðþunga málsins þegar Arno van Kessel, aðallögmaður málaferlanna, var handtekinn 11. júní sl. Van Kessel var fjarlægður með valdi af heimili sínu af sérstöku íhlutunarteymi. Bundið var fyrir augun á honum, hann handjárnaður og haldið í fangelsi við hámarksöryggisgæslu í Suður-Hollandi, sem leyfir hvorki heimsóknir fjölskyldu né samskipti af neinu tagi.
Þessi handtaka, sem átti sér stað rétt fyrir réttarhöldin, er talin tilraun til að hræða ásamt því að spilla málsmeðferðinni. Tímabundin fangelsun Van Kessel sem lögmanns í málinu, hefur verið framlengd í allt að tvö ár og veldur áhyggjum yfir því að lögfræðiaðstoð sé ekki lengur til staðar. En lögmaðurinn Peter Stassen mun taka við málinu. Fangelsið sem er þekkt fyrir yfirheyrsluherbergi og aðgang að dómskerfinu á netinu, hefur verið líkt við fangelsið í Guantanamo-flóa.
Áhrif og krafa um réttlæti
Réttarhöldin í Leeuwarden eru talin geta undið upp á sig og leitt til svipaðra dómsmála á heimsvísu. Í málinu er lögð áhersla á nauðsyn þess að stofna nýjan alþjóðlegan dómstól ef borgaralegir dómstólar skyldu bregðast og gefið til kynna að herdómstólar séu síðasta úrræðið í baráttunni gegn landráðum á hæsta stigi.
Handtaka Van Kessel og sönnunargögnin sem lögð eru fram varpa enn frekara ljósi á hversu víðtæk ritskoðunin og þöggunin er í tengslum við COVID-19 bóluefnin, hinar ýmsu tilskipanir og hagnaðinn sem hefur hlotist af bóluefnunum, þar sem jafnframt er krafist réttlætis fyrir fórnarlömb og ábyrgðar sakborninga.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning