Leita í fréttum mbl.is

Nýjasta nýtt frá Astra Zeneca - RS-bóluefni fyrir ungabörn

Börn sem hafa ekki náð sex mánaða aldri geta fengið bólusetningu við RS-veiru frá og með næsta hausti. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur heimilað sóttvarnarlækni að ganga til kaupa á mótefni við RS-veiru til tveggja ára." Svo segir í tengdri frétt."

Það gleymist alveg að minnast á hver framleiðandinn er. Astra Zeneca! Munum covid sprauturnar frá þeim sem fljótlega voru teknar úr umferð sökum blóðtappahættu, og fyrir um ári síðan var markaðsleyfið fyrir efnið innkallað. Það gerðist um svipað leyti og fjöldamálsóknir voru gegn fyrirtækinu í Bretlandi sem þurfti að viðurkenna skaðann fyrir dómstólum. Ástæðan sem var gefin í fjölmiðlun var dvínandi eftirspurn ;)

„Við lok samnings um kaup á mótefninu árið 2027 verða áhrif bólusetninganna metin og skoðað hvort skynsamlegt sé að bjóða þær til framtíðar samhliða almennum bólusetningum barna." 

Það verður sem sagt gerð
 tveggja ára tilraun á íslenskum hvítvoðungum og ungabörnum. Sem er töluvert lengri tími en covid-bóluefnið frá Astra Zeneca var notað í Danmörku, eða fáeina mánuði, og eitthvað lengur hér á landi. 

Skammturinn kostar skv. þessari frétt frá rúmlega 500 USD - rúmlega 1000 USD eða um 70 - 100 þús. kr. Margfaldið það með fjölda ungabarna sem eiga að taka þátt í tilraun heilbrigðisráðherra.

Hér má sjá yfirlit yfir aukaverkanir. Merkilegt að ráðlagt sé að börn sem áður hafa fengið bráðaofnæmi við lyfinu fái ekki mótefnið nýja. Lyfið er fyrst gefið hvítvoðungum og ungabörnum undir 6 mánaða. Áður hvenær, í móðurkviði eða fyrra lífi?

beyfortus


mbl.is Yngstu börnunum býðst bólusetning gegn RS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og tíu?
Nota HTML-ham

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband