Leita í fréttum mbl.is

213 Íslendingar létust úr Covid þrátt fyrir 95% bólusetningahlutfall

Dán­artíðni hér á landi hef­ur lækkað jafnt og þétt síðasta ára­tug­inn ef árið 2022 er und­an­skilið en þá hækkaði dán­artíðnin nokkuð. Seg­ir land­læknisembættið að það megi að mestu rekja til fjölda and­láta vegna covid-19, sem voru alls 213 á ár­inu." Þetta segir í tengdri mbl frétt.

„Fagfólkið" hjá landlæknisembættinu mætti útskýra hvers vegna svo margir létust af Covid, þegar bólusetningahlutfall eldri hópanna (þeirra sem helst létust) var um 95%. Flestir höfðu fengið fjóra skammta af svokölluðu bóluefni.

Ef hundurinn þinn væri þrí- eða fjórsprautaður við Rabies og fengi svo Rabies og myndi auk þess deyja úr sjúkdómnum þá myndu einhverjir klóra sér í hausnum og spyrja spurninga.

En hey, ekki með covid sprauturnar en einstaklingur telst fullbólusettur eftir 2 skammta segir á síðu landlæknisembættis sem auðvitað á fullt í fangi með að útskýra fyrirbærið.

Munum að íslenskur læknir er til rannsóknar fyrir að skrá fjögur andlát á Covid-sprautur. Alveg eins og starfsfólk Sóltúns var til rannsóknar þegar það spurðist út að tengdamóðir þáverandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra, var sú eina á Sóltúni sem ekki fékk sprautuna. Aldrei var rannsakað hví sú gamla hafi ekki fengið sprautuna eins og allt hitt gamla fólkið. Bara hver „lak" (eins og það fréttist ekki að allt gamla fólkið hafi fengið sprautu við hátíðlega athöfn á elliheimili nema tengdamóðir landlæknis og móðir hjartalæknis!) Ljóst er að Alma Möller og eiginmaður hennar, hjartalæknirinn, voru innherjar!

Og sjáið upplýsingarnar hjá embættinu. Faglegar ekki satt? Uppfærslu hætt. Hvenær var henni hætt, á hvaða tímabili eru landsmenn tví,-þrí-og fjórbólusettir? Linkur á bólusetningar 2023" neðst. Úps, virkar ekki.

Á maður að sjá það á þessum upplýsingum sem ekki er auðvelt að finna, fyrir það fyrsta? „Staðan í dag." Í dag hvenær?

Ath. að ómögulegt hefur reynst að fá upplýsingar um hversu margar sprautur þeir fengu sem sagðir eru hafa dáið úr covid.(Við vitum fyrir víst, að ef þeir covid-látnu hefðu verið ósprautaðir, væri það í öllum fjölmiðlum, daginn út og inn.)

tölfræði

 


mbl.is Ólíkar dánarorsakir karla og kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þegar íslenski læknirinn skráði fjögur andlát vegna bólusetninga hóf embætti Landlæknis rannsókn á skráningunum.

Ekki á andlátunum eða orsökum þeirra heldur skráningunum.

Látið það sökkva inn.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.1.2025 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og níu?
Nota HTML-ham

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband