Leita í fréttum mbl.is

England og Wales: 63% aukning á dauðsföllum unglingsdrengja frá því að bólusetningar hófust

Birt á frettin.is

Skoðun á opinberum gögnum ONS (Office for National Statistics) hefur leitt í ljós að frá því að byrjað var að gefa unglingum á Englandi og Wales Covid-19 bóluefni hefur orðið 63% aukning á dauðsföllum meðal unglingsdrengja, og eina vikuna var aukningin nánast 700%.

Veftímaritið The Expósé sem er mjög iðið við að skoða opinber gögn og skýrslur á Bretlandi sagði frá því 1. október sl. að ONS gögn sýndu að 47% aukning hafi orðið á dauðsföllum af öllum orsökum meðal unglinga á aldrinum 15-19 ára, síðan byrjað var að gefa Covid-19 bóluefnið.

Athugun The Exposé leiddi í ljós að opinber gögn ONS sýndu að á tímabilinu 26. júní 2020 - 18. september 2020 hafi verið 148 dauðsföll meðal unglinga á aldrinum 15 - 19 ára.

ONS gögn sýna aftur á móti að á tímabilinu 25. júní 2021 - 17. september 2021 hafi orðið 217 dauðsföll meðal unglinga á aldrinum 15 - 19 ára, sem þýðir að dauðsföll meðal unglinga eldri en 15 ára voru 47% fleiri en á sama tímabili árið 2020.

Frá og með 27. júní á þessu ári hafa yfir 147.000 einstaklingar yngri en 18 ára fengið að minnsta kosti einn skammt af Covid-19 bóluefni.

Gögnin og grein The Exposé má skoða hér. Og taflan neðar sýnir dauðsföllin.

theexpose

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Þetta er skelfilegt ef rétt reynist en svona tölfræði þarf auðvitað að þekja fleiri ár. Opinber gögn þurfa líka að eyrnamerkja látna sem sprautaða og ósprautaða.

Geir Ágústsson, 4.10.2021 kl. 16:52

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ísraelar hafa verið að lenda í svipuðu.

Ég fann þetta graf: https://swprs.org/wp-content/uploads/2021/06/israel-20-29-deaths-increase-petrou-768x553.jpg

Ég þori að veðja að þetta er svona annarsstaðar.

Það er merkjanleg fjölgun á skyndilegum dauðsföllum gjörsamlega allstaðar þar sem mikið hefur verið bólusett.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.10.2021 kl. 19:38

3 identicon

Ég væri einmitt til í að sjá tölur fyrir kóvíðið (er þetta t.d kannski út af því að unglingar eru loksins frjálsir til að fara út og leika sér eða eitthvað slíkt), en þetta er hræðilegt ef satt reynist að þetta er tengt sprautunum...

Halldór (IP-tala skráð) 4.10.2021 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband