7.4.2021 | 18:04
Nefgrímur fyrir ósmitaða!
Brögð eru að því að ósmitaðir beri veiruna milli manna í nefkokinu."
Þetta sagði Björn Ingi Jónsson, verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Viljið þið skila því til hans Björns að það eru komnar nýjar grímur á markaðinn fyrir ósmitaða.
Síðan er hægt að kaupa fjórfaldar grímur sem ná yfir munn og nef ef þú ert t.d. með indverska afbrigðið sem er tvöföld veira!
Hópsmitið á vinnustað í Mýrdal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.4.2021 kl. 18:57
En svo getur veiran auðvitað sest á hendur fólks, eyru, augu, fatnað og þar fram eftir götunum. Það hlýtur að þurfa grímur fyrir þetta allt líka.
Ef fólkið sem trúir á þetta, þmt. þessi Björn Ingi Jónsson, hugsaði rökrétt, sem það gerir vitanlega ekki, myndi það krefjast þess að allir væru alltaf í sóttheldum heilgöllum og með súrefniskút.
Þorsteinn Siglaugsson, 7.4.2021 kl. 19:08
Veiran gat lifað við allskyns aðstæður í upphafi, m.a. dögum saman í grimmdar frosti berskjölduð á harðplasti.
Þá mátti sjá fólk með einnota latexhanska og sprittbrúsann úðandi á undan tuskunni um allan bæ, en nú er það aðallega margvíslega einota gríman, sem var forboðin í fyrra.
Persónulega grunar mig að þessi veira sé af sömu ætt og púkar Sæmundar, og muni lifa svo lengi sem menn tilbiðja hana á fjósbitanum með söngvum ættuðum úr neðra.
Magnús Sigurðsson, 7.4.2021 kl. 20:39
Þessi lýsir ástandinu vel.
https://www.visir.is/g/20212093775d/hvernig-skal-sjoda-is-lenskan-frosk
Magnús Sigurðsson, 7.4.2021 kl. 20:56
Það er engin stoð fyrir grímuskyldu í sóttvarnalögum. Sú regla er bara í reglugerð ráðherra, sem nýlegar dómsúrlausnir staðfestu að er ekki nóg ef lagastoðina skortir.
Guðmundur Ásgeirsson, 7.4.2021 kl. 22:31
Guðmundur,
Sóttvarnarreglur hafa ekki þurft neina lagastoð hingað fólk. Fólk hefur séð um að hrópa á hvert annað úti á götu, jafnvel fyrir framan börn, ef það fylgir ekki seinustu útgáfu boðorðanna frá upplýsingafundunum svokölluðu.
Geir Ágústsson, 8.4.2021 kl. 11:22
Fyrst engin lagastoð er fyrir hendi, þá þarf að brjóta þessa "grímuskyldu" á bak aftur:
Tveir menn, annar með grímu hinn ekki, fari á staðinn í einhverjum stórmarkaði, og taki með sér Jón Magnússon og kvikmyndatökulið (með góða hljóðupptöku): brenna síðan beint niður í Héraðsdóm og kæra eftir að hinum fyrri hefur verið hleypt inn en þeim síðari ekki.
Björn Jónsson (IP-tala skráð) 8.4.2021 kl. 11:31
Björn,
Málið er að verslanir hafa látið hræða sig og þær mega auðvitað mismuna á meðan þær gera það ekki eftir kynþætti, húðlit, kynhneigð og trúarbrögðum, enda væri slíkt andstætt stjórnarskrá. En eins og fínn veitingastaður má meina þér að labba inn í stuttbuxum og sandölum má búðareigandi mismuna fólki eftir "klæðaburði".
Íslendingar hafa ekki látið lög og reglur flækjast fyrir sér. Hræðsla og fylgispekt er nóg til að fá fólk til að siga lögreglunni á fermingarveislur nágranna sinna.
Geir Ágústsson, 8.4.2021 kl. 11:56
Ég efast um að þetta standist hjá þér Geir:
Svona grímur eru ekki "klæðnaður", í neinum skilningi þess orðs,
og dómarar ættu að geta áttað á slíkri mismunun og borið saman
við lög og stjórnarskrá.
Annars væri ágætt ef einhver löglærður sem fylgist með þessari
umræðu léti ljós sitt skína um þetta atriði..
Hefur enginn nema ég tekið eftir hrokanum í Svandísi eftir að dómurinn féll?
'Ég er valdið og valdið er hjá mér':
Hanna Birna Kristjánsdóttir gengin aftur í ljósum logum !
Björn Jónsson (IP-tala skráð) 8.4.2021 kl. 12:52
Eftir að ég komst að því að einnota grímur geta innihaldið efnið grafín, sem svipar til asbests, hef ég haft grímuna yfir hökunni en aldrei sett hana yfir nefið, enda hef ég takmarkaðan áhuga á að farast af steinlunga eða lungnakrabba.
Þorsteinn Siglaugsson, 10.4.2021 kl. 20:48
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 11.4.2021 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.