26.3.2021 | 13:22
Innlögnum fækkar úr einni í núll vegna covid!
Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af því að kórónuveirusmitið sem greindist utan sóttkvíar í gær tengist gosstöðvunum í Geldingadölum."
Þá er komin ástæða til að loka gossvæðinu, enda ómögulegt að hafa einhverja skemmtun til staðar þegar árið er 1984. Für ihre Sicherheit, að sjálfsögðu!
Öllu var skellt í lás fyrir páskana, rétt eins og var gert fyrir jólin. Þá þurfti að loka gamla fólkið inni, mátti ekki vera með í jólakúlunni enda gæti það veikst. Nú er búið að bólusetja allt gamla fólkið (nema eina, nefni engin nöfn!).
Rögnvaldur lögga hjá Almannavörnum sagði í gær að nú ættum við að vera í páskakúlum (páskaegg hefði verið meira smart, minna kjánalegt!). Ný bylgja er skollin á, skólabörn landsins í lífshættu út af breska afbrigðinu sem íslenskur vísindamaður segir ekki meira hættulegt, heldur minna. Erlendar rannsóknir hefðu nú sýnt að sú breska væri hættulegri"... en ekki var vísað í eina einustu rannsókn. Þórólfur var spurður af fréttamanni hvort þessir með breska afbrigðið væru veikari en af hinu kínverska: "uhh, ehhh, ja, tja sko..., við erum að kynnast veirunni! Þórólfur segir: ,,börnin munu veikjast", og allir í kór: börnin munu veikjast..." En enginn á spítala með covid. Núll!
En viti menn, svo kom bara viðtal við íslenskan barnasmitsjúkdómalækni sem sagði að börnum stafi ekki meiri hætta af þessu breska! Og búið að loka öllu. Og samkvæmt fólki sem þekkir til í Laugarnes-og Laugalækjaskóla er ekkert barnanna veikt.
Þvílík steypa, þvílík blekking!! Ekki undarlegt að Þórólfur hafi stamað, hikstað og hikað á fundinum í gær.
Smitið utan sóttkvíar tengist gosstöðvunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Þeir sem hafa verið að greinast undanfarna daga eru nýsmitaðir og sá hluti þeirra sem samkvæmt tölfræðinni gæti þurft sjúkrahúsinnlögn er einfaldlega ekki orðinn veikur ennþá. Þess vegna eru engar innlagnir akkúrat núna og þess vegna hefur sú punktstaða lítið að segja ef tímafaktorinn frá smiti til veikinda er ekki tekinn inn í myndina.
Guðmundur Ásgeirsson, 26.3.2021 kl. 15:22
Tilvitnun í sjálfan mig, frá færslu 21. mars:
"Ég bíð hreinlega spenntur eftir því að lesa orðasambandið "smithætta við eldgos" og þá er hægt að nota regluverk veirunnar til að halda fólki frá eldgosi. Almannavarnadeild lögreglu hlýtur hreinlega að vera hugleiða það. Þá þarf ekki lengur að biðla til fólks um að fara varlega því ný reglugerð heilbrigðisráðherra hreinlega lokar svæðinu - vegna smithættu!"
https://geiragustsson.blog.is/blog/geiragutsson/entry/2262524/
Geir Ágústsson, 26.3.2021 kl. 20:53
Guðmundur,
Er heilbrigðiskerfið orðið það yfirkeyrt VEGNA VEIRU að það þarf að FLETJA ÚT KÚRVUNA, eða er allt þetta bara "just in case"?
Geir Ágústsson, 26.3.2021 kl. 20:54
Geir. Forvarnir ganga út á að afstýra því að eitthvað gerist sem maður vill ekki að gerist. Þess vegna gera Almannavarnir viðbragðsáætlanir fyrir óorðna atburði, til að geta brugðist við þegar þeir gerast frekar en að þurfa að glíma við slæmar afleiðingar þeirra eftir á.
Guðmundur Ásgeirsson, 26.3.2021 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.