13.12.2020 | 14:10
Jólasveinarnir misnotaðir og kirkjum lokað!
Jólasveinarnir eru ein sterkasta ímynd jólanna í hugum barna og eins sú gamla hefð að setja skóinn út í glugga.
Vonandi sáu sem fæst börn fréttatímann sl. föstudagskvöld þar sem þríeykið og fréttastofa RÚV settu einhvers konar met í fíflaskap.
Landlæknir sagði að börnin ættu að spritta skóinn áður en hann færi út í glugga og líka á eftir, jafnvel þó í hann færi eitthvað matarkyns, eins og smákökur. Því sprittið dræpi jú veiruna! (skítt með smákökuna sem krakkinn átti að borða).
Jólasveinarnir þurftu ekki að fara í sóttkví en fengu þó PCR pinna í nefið sagði Þórólfur, til að ganga úr skugga um að þeir væru ekki sýktir. Og Rögnvaldur lögregluþjónn er tilbúinn með 13 fangaklefa ef jólasveinarnir skyldu brjóta sóttavarnarreglur.
Þarna voru menn auðvitað að misnota valdið sem þeim hefur verið fært. Eru með áróður til að fá krakka til hlýða og nota tækifærið til að heilaþvo þá. Íslenskir foreldrar sem margir myndu ganga í sjóinn fyrir þríeykið, munu eflaust predika þessa þvælu fyrir börnum sínum.
Og meira um fíflaskap má finna á vef Almannavarna þar sem verið er að kynna "sóttvarnarsveina" sem heita Félagsfælir, Grímugaur o.fl. (fleiri hugmyndir: Veiruhrellir, Krakkaskelfir, Sprittsleikir, Lygagámur, Gluggagægir nr. 0122...).
Á Englandi er í gangi auglýsingaáróðursherferð þar sem jólasveinn er lagður inn á spítala með Covid, þannig að þið sjáið að þjóðir þurfa að ganga í takt og taka þátt í að svívirða og niðurlægja menningu sína (því það er heimsfaraldur!).
Og enn meiri fíflaskap mátti lesa í auglýsingu fyrir Jólaþorpið í Hafnarfirði þar sem tekið var fram að Grýla yrði á staðnum til að fylgjast með því hvort allir væru ekki að spritta, annars kæmi kartafla í skóinn!
Í grunnskólum í Hafnarfirði (Hraunvallaskóla a.m.k.) var með skömmum fyrirvara sett á bann við jólagjöfum, þ.e.a.s. sú hefð að krakkarnir komi með litlar jólagjafir fyrir hvert annað á litlu jólunum var slegin af. Rökin: sýkingarhætta, veira á pökkunum!
Og svo eru það kirkjurnar. Þeim hefur óbeint verið lokað yfir jólin. 10 manna hámark í kirkjum, forðast ber söng og hátt tal sem þýðir dauflegt eða ekkert messuhald í kirkjum yfir jólin. Og ekkert heyrist frá biskup eða öðru kirkjufólki!? Á sama tíma eru verslunarmiðstöðvar fullar af fólki og sóttvarnarrelgur brotnar þar daglega (engin undanþága er á fjölda í alrýmum verslunarmiðstöðva skv. reglugerð). En menn líta undan, enda miklir peningar í húfi.
Ef þið sjáið ekki að þessar takmarkanir, boð og bönn eru aðför gegn jólunum, helgihaldi og okkar gömlu siðum, skoðið nánar og lesið til dæmis reglugerð ráðherra um samkomutakmarknir þar sem "gleymdist" að setja á fjöldatakmarkanir í verslunarmiðstöðvum og þar sem horft er framhjá daglegum brotum á sóttvarnarreglum.
Ef yfirvöldum væri alvara með reglurnar væri auðvitað búið að loka verslunarmiðstöðvum.
Og ef enn betur er skoðað og fólk leggst í smávegis rannsóknarvinnu, þá er aldrei að vita nema það sjái fingraför kínverska kommúnistaflokksins, félaga þeirra í WHO, ofl., á þessu handriti sem þríeykið þarf að lesa upp í skömmtum. Þið munið að þetta byrjaði allt með leðurblöku á blautmarkaði í Wuhan! Kínverjar lögðu svo línurnar fyrir restina af heimsbyggðinni. Þeir hafa nú boðað bleyjunoktun meðal flugþjóna.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs
Athugasemdir
Ég þarf reglulega að róa minn 10 ára strák niður og segja honum að veiran sé honum skaðlaus og að hann þurfi ekki að vera hræddur. Hann er samviskusamur og sprittar og þvær og hvaðeina, og er sem betur fer undanþeginn grímunotkun (Danmörk) en ég hugleiði stundum hvernig honum liði ef hann væri með skítthrædda foreldra sem atast í honum með hræðsluáróður. Greyið börn slíkra foreldra!
Geir Ágústsson, 18.12.2020 kl. 09:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.