4.10.2025 | 14:08
Samræmist lyfjagjöfin samviskueiði lækna um að valda ekki skaða - Hippókratesareiðinum!?
Fyrsta villan í þessari hræðsluáróðurs-lyfjasölufrétt landlæknis er að þetta er ekki bóluefni heldur mótefni sem á að endast í nokkra mánuði við kvefveirunni RSV. Það kemur ekki fram í fréttinni(að það endist aðeins stutt) og heldur ekki að það séu helst fyrirburar sem eru í áhættu á að fá slæma sýkingu.
Nei, það samræmist auðvitað ekki læknaeiðinum að gefa fullfrískum ungbörnum nýtt lyf frá Astra Zeneca sem hefur engar langtímarannsóknir að baki og var fyrst byrjað að gefa að einhverju ráði haustið/veturinn 2023-2024. Landlæknir og heilbrigðisyfirvöld þora ekki fyrir sitt litla líf að minnast á framleiðandann, AstraZeneca, og Lyfjastofnun Íslands þóttist ekki vita hver framleiðandinn væri. ;) Vörumerkið ekki beint söluvænlegt (enda breyttu þeir fljótt nafni á AstraZenca Covid-bóluefninu í Vaxevria).
Samkvæmt meðfylgjandi upplýsingum frá Landspítalanum hafa níu börn, eins árs og yngri, þurft að leggjast inn á gjörgæslu á síðustu tíu árum, sem sagt ekki einu sinni eitt á ári! Og athygli vekur u.þ.b 85% aukning á innlögnum barna eins árs og yngri vegna RS árið 2022. Samkvæmt Embætti landlæknis hefur engin rannsókn verið gerð á þessari miklu aukningu þó það sé einmitt þeirra hlutverk að framkvæma þess konar athuganir.
Nei, þeirra hlutverk virðist að miklu leiti snúast um selja lyf, sem í þessu tilfelli kostar um 100 þúsund kr. skammturinn. Tvöfaldur skammtur kostar enn meira og er gefið börnum sem eru orðin fimm kíló. Það á sem sagt að gefa ÖLLUM fullfrískum börnum, 0-23 mánaða, nýtt lyf við kvefpest sem fyrirburum stafar helst hætta af. Og í einhverjum tilfellum börnum 0-6 mánaða.
Barnalæknirinn Valtýr Thors Stefánsson sem vann ráðgjafastörf (e. consultancy work) gegn greiðslum fyrir Sanofi, sem er markaðsleyfishafi umrædds lyfs, sagði í viðtali á Bylgjunni að þau væru mjög spennt að prófa lyfið. Ein ástæðan var skv. honum að þó að engin börnin hafi látist hér á landi af RSV síðustu áratugi að þá létust mörg börn í vanþróuðum löndum af sýkingunni!
Rök heilbrigðisyfirvalda, sérfræðinganna og vísindamanna, eru sem sagt: Gefa skal ÖLLUM börnum á Íslandi, 0-23 mánaða, rándýrt nýtt lyf frá Astra Zeneca við kvefveiru sem fyrirburar og börn í vanþróuðum ríkjum eru helst í hættu á að veikjast alvarlega af.
Krumlur lyfjarisanna eru bersýnilega á kafi í íslenska heilbrigðiskerfinu og fyrirtækin ráða meðal annars til sín íslenskan lækni í sölustarf, nei ég meinti ráðgjafastarf.
Læknirinn agíterar fyrir lyfinu,og hefur bersýnilega skipt samviskunni út fyrir greiðslur sem enginn má vita hverjar eru. Landspítalinn fær lögmann (ekki upplýsingafulltrúa spítalans) til að þvæla og leika hálfvita og komast þannig hjá því að afhenda upplýsingar sem skattgreiðendur eiga allan rétt á að sjá.
Meira síðar.
![]() |
Hefja bólusetningar gegn RSV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 4. október 2025
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Október 2025
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- Ágúst 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
-
aslaugas
-
agny
-
annaeinars
-
danna
-
axeltor
-
agustkara
-
bookiceland
-
contact
-
einarborgari
-
rlingr
-
sagamli
-
helga-eldsto-art-cafe
-
bofs
-
sade
-
gusg
-
noldrarinn
-
hafthorb
-
hhbe
-
hlf
-
diva73
-
snjolfur
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
kreppan
-
jaj
-
islandsfengur
-
nonniblogg
-
nyja-testamentid
-
thjodarskutan
-
kristinnp
-
loncexter
-
marinogn
-
sighar
-
sigurduringi
-
sushanta
-
viggojorgens
-
vilhjalmurarnason
-
thorsteinnhelgi
-
valli57
-
tbs