Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Ítalir höfða mál gegn Pfizer og AstraZeneca!

Ítalir höfða mál gegn Pfizer og AstraZeneca fyrir tafir á bóluefni sem þegar hefur verið greitt fyrir. Hvað er íslenska ríkið búið að greiða fyrir bóluefni frá hinum ýmsu framleiðendum? 
 
"Italy to sue both Pfizer and Astra Zeneca for not providing the doses pre-paid. Probably lot of other nations to follow. The lawsuit may run into billions as economic damage of not having the vaccine built into it."
 

mbl.is Háttsettir troða sér fram fyrir í bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur kemst veiran inn á hjúkrunarheimili!

Hvernig eru reglurnar hjá Norðmönnum? Ekki er gamla fólkið að ferðast til útlanda. Tveir á hjúkrunarheimilum látnir sem talið er að megi rekja til nýja afbrigðisins. Sjá frétt.


mbl.is Öllu lokað á tæplega milljón Norðmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er RNA bóluefni?

Bóluefnið sem nú er verið að nota vegna Covid19 kallast RNA bóluefni. En hvað er það? Þessi hollenski læknir útskýrir það á einfaldan og öfgalausan hátt. Athugið hún er ekki andvíg bólusetningum almennt séð en vill að fólk hugsi sig um áður en það tekur ákvörðun um að láta bólusetja sig með RNA bóluefni. 


Hvað er búið að greiða mikið til AstraZeneca?

,,Lyfja­fram­leiðand­inn AstraZeneca, sem þróað hef­ur bólu­efni við kór­ónu­veirunni með Oxford-há­skóla, seg­ist munu dreifa færri skömmt­um á fyrsta árs­fjórðungi en upp­haf­lega var ráðgert vegna fram­leiðslu­vanda. Evr­ópska lyfja­stofn­un­in hef­ur ekki enn gefið bólu­efni AstraZeneca markaðsleyfi en stefnt er að því að gera það 29. janú­ar. Bólu­efnið hef­ur þó verið tekið í notk­un í Bretlandi."

Samningar voru gerðir við íslenska ríkið í nóv. Hvað hafa þessir samstarfsaðilar ÍE/Amgen fengið mikið greitt frá íslenska ríkinu?


mbl.is Framleiðsluvandi AstraZeneca tefur dreifingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjöldi látinna eftir aldursflokkum

Hér er hægt að skoða fjölda látinna eftir aldursflokkum. Sýnist í fljótu bragði að meira sé um dauðsföll meðal yngri hópa en fyrri ár og minna um dauðsföll eldra fólks, 70 ára og eldri.

Sjá hér. Ath. þetta er til 20. nóv.


mbl.is Dánartölur sveiflast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hljótum að vera komin með töluvert ónæmi

,,Ekki er vitað hversu stór­an hluta þjóðar­inn­ar þarf að bólu­setja gegn Covid-19 til þess að hægt sé að koma í veg fyr­ir út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar í sam­fé­lag­inu, að sögn Þórólfs Guðna­son­ar sótt­varna­lækn­is."

Það er auðvitað aldrei hægt að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar, henni er ekki hægt að útrýma. Og sérstaklega ekki með bóluefni þar sem sá bólusetti getur enn smitað!!

En við sjáum hversu mjög er farið að hægja á smitum sem hlýtur að gefa til kynna að töluvert ónæmi er komið á í samfélaginu. Það eru auðvitað ekki bara þeir sem hafa greinst með smit í mælingu sem eru orðnir ónæmir heldur líka allir þeir sem hafa ekki farið í mælingu. Veit um þó nokkur tilfelli þar sem fólk hefur greinst með mótefni en kannast ekki við að hafa verið veikt.

 


mbl.is Óvíst hversu marga þarf að bólusetja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er tilgangurinn með bólusetningavottorðinu?

passport,,Vott­orðið fá þeir sem hafa lokið bólu­setn­ingu við Covid-19 og geta þeir fram­vísað því á landa­mær­um og orðið því und­anþegn­ir sótt­varn­aráðstöf­un­um í sam­ræmi við regl­ur hlutaðeig­andi lands." mbl.is

Það hefur komið fram að manneskja sem er bólusett geti enn borið smit á milli, hvers vegna þarf hún þá ekki að fara eftir sóttvarnarráðstöfunum? Segjum að hún taki rútuna í bæinn frá Leifsstöð. Þar gæti viðkomandi snert eitt sæti og svo annað þar sem veirurnar skríða um (og ef þetta var London flug þá gæti rútan verið full af Bretum með Brexit veiruna sem er mun meira smitandi en hin afbrigðin) og svo kemur næsta manneskja og snertir sætið og nuddar sér um augun og hún komin með veiruna! Og í stað þess að vera í sóttkví á milli skimana eftir heimkomu þá er bólusetta manneskjan í vinnunni meðal fjölda fólks eða á veitingastöðum að bera veiruna á milli hurðarhúna og kaffibolla og fleira.  

Bólusetta manneskjan gæti verið orðin mun kærulausari eftir að hafa fengið bóluefnið því hún upplifir sig öruggari og verður kærulausari fyrir vikið. Snertir allt og alla! Hún gæti því verið hættulegri en óbólusett manneskja.

Það eina sem gerist eftir þessa bólusetningu miðað við fréttir er að manneskjan sjálf verður ekki eins veik ef hún kemst í snertingu við veiruna.

Auk þess hefur komið fram að mótefnið eftir bólusetningu endist aðeins í nokkra mánuði. Hvað gildir vottorðið lengi?

Skv. nýjustu upplýsingum frá þjónustufulltrúa á netspjalli covid.is þá er ekki vitað hvað vottorðin gilda lengi! 

 


mbl.is Bólusetningarvottorð tilbúin á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa farið með almannafé!

,,Til­kynn­ing­ar til Lyfja­stofn­un­ar um and­lát í kjöl­far bólu­setn­ing­ar með bólu­efni Pfizer nú orðnar sjö tals­ins. Í öll­um til­vik­um er um að ræða aldraða ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma á hjúkr­un­ar- eða dval­ar­heim­il­um. Alls hef­ur Lyfja­stofn­un borist 61 til­kynn­ing um mögu­leg­ar auka­verk­an­ir, þar af átta al­var­leg­ar." 

Peningum ríkissins væri betur varið í skimun fyrir brjóstakrabbamein kvenna og/eða velferðar unga fólksins (en 2020 var met ár í sjáfsvígum), heldur en að sprauta nýju erfðabreyttu tilraunabóluefni í fólk sem er við dauðans dyr. Ég veit til þess að íbúi á hjúkrunarheimili í Reykjavík sem læknar lögðu til fyrir nokkrum vikum að myndi hefja líknarmeðferð (en fjölskylda ekki sammála) hafi fengið bóluefni við Covid!


mbl.is Sjö andlát tilkynnt í kjölfar bólusetningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki efast um bóluefnið sem veitir ykkur ekki eðlilegt líf !

Að minnsta kosti einn fjölmiðill, já hægri Fox, bendir á að Fauci hafði rangt fyrir sér með jóla og Thanksgiving spár (hækkandi smittölur). Það var reyndar eins hér heima. Smitum fjölgaði ekki eftir jóla og áramót og ekki eftir samkvæmið í Ásmundarsal. Og ekki spyrja um bóluefnið segir fréttamaðurinn sem bendir á að það hafi verið logið af fólki, að eftir bólusetngingu yrði lífið eðlilegt á ný en nei, áfram skal vera með grímur og halda fjarlægð. Hér er þetta.

Og hér frá heilbrigðisyfirvöldum á Englandi, vertu áfram með grímu eftir bólusetningu.

Þetta er farið að hljóma eins og margir bentu snemma á. Scam!


mbl.is Þetta kom fram á fundi dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En að stinga saklausu fólki í fangelsi?

,,Er út­lit fyr­ir að þeir sem neita að fara í sýna­töku við kom­una til lands­ins verði skyldaðir í far­sótt­ar­hús?

„Við erum að skoða laga­grund­völl­inn fyr­ir því. Það er auðvitað mik­il­vægt að hann sé skýr. Svo  er verið að skoða fleiri út­færslu­mögu­leika eins og að gera kröfu um nei­kvætt Covid-sýni sem er þá tekið í land­inu sem viðkom­andi kem­ur frá, áður en hann legg­ur af stað,“ seg­ir Svandís. Ákvörðunin verður tek­in í þess­ari viku."

Hvað með að kanna í leiðinni hvort það sé löglegt að stinga saklausu fólki í fangelsi?  Svona fyrst þið eruð komin hálfa leið til Kína. 


mbl.is Skoða hvort farsóttarhúsaaðferðin sé lögleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband