Leita í fréttum mbl.is

Heilbrigðisráðherra Ástralíu á gjörgæslu eftir AstraZeneca

huntHin 55 ára gamli Greg Hunt, heilbrigðisráðherra Ástralíu var fluttur á gjörgæslu daginn eftir að að hafa fengið í sig tilraunbóluefnið AstraZeneca sem Danir hafa nú hætt að nota, tímabundið að minnsta kosti, vegna tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir.

Tekið er fram í fréttinni að það verði aldrei vitað hvort veikindin tengist bóluefninu. Ástralir virðast vera aftarlega í rannsóknum, hér heima tók það nokkra daga að finna út að gamla fólkið hafi ekki dáið vegna bólusetninga.

Í þessari frétt kemur fram að Hunt, ásamt forsætisráðherra Ástralíu hafi farið í bólusetningu til að hvetja þá sem eru hikandi við Covid bólusetningar, rétt eins og Dolly Parton gerði nýlega með bóluefnið Moderna.

Fólk flykkist auðvitað í bólusetningu ef Dolly Parton, sem lagði peninga í framleiðslu á Moderna, lætur sprauta sig! En hvað með Pál Óskar, er hann kominn með? Ég myndi bjóða honum minn skammt ef ég væri ekki hreinlega á móti því að fólk léti sprauta í sig ófullprófuðu lyfi sem er á undanþágu. Ég fékk ítrekun um að mæta (í stuttermabol) 17. mars kl. 14.20 í Laugardagshöllina.

Uppfært: "Hunt’s condition has not been considered to be related to his dose of the AstraZeneca COVID-19 vaccine on Sunday in Melbourne." Hafið þið heyrt einhvern segja að aukaverkanir séu tengdar bólusetningu? Þá á ég við yfirvöld og lyfjafyrirtækin?

Í stuttu máli. Fjöldi ríkja hafa nú tekið AstraZeneca úr umferð, a.m.k. tímabundið, vegna tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir. En segja samt að það sé ekkert sem bendi til þess að það séu nokkur tengsl.

Ráðerrann frá jafnvel í 2 vikur vegna húðsýkingar!

Uppfært: Svo virðist sem hluti áhafnarinnar á skipinu HMAS Sidney hafi einnig verið flutt á sjúkrahús vegna vægra aukaverkana.

Uppært: Laus af spítala.

hunt


mbl.is Danir stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nokkuð hæpið að ígerð í fæti tengist bóluefninu og hann var ekki lagður inn á gjörgæslu. En hvað eru smá falsfréttir þegar skapa á ótta, óróa og upplausn í þjóðfélaginu?

Vonandi lætur þú ekki undan og lætur bólusetja þig.

Vagn (IP-tala skráð) 11.3.2021 kl. 12:51

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Þetta var í fjölmiðlum, samdi þetta ekki sjálf.

Whether his condition is a result of receiving the vaccine or not we are sure we will never know, but it is extremely coincidental for him to suddenly suffer an “infection” when he has been an otherwise fit and healthy man. (linkur á frétt í bloggi):

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 11.3.2021 kl. 13:19

3 identicon

Þórólfur er hvergi hættur og endurtekur nákvæmlega sama leikinn og árið 2011 þar sem hann þrætir fyrir skaðsemi bóluefnisins Pandemrix sem hann mælti í hástert með líkt og Haraldur Briem þv. landlæknir gerði en Þórólfur þrætir enn þann daginn í dag fyrir skaðsemi Pandemrix og núna enn og aftur þegar það kemur að Astrazeneca.

 

"Það er talað um kvikasilfur í bóluefnum sem er mjög rangt því það eru engin kvikasilfursambönd í bóluefnum sem notuð eru á Íslandi og hefur ekki verið í mjög langan tíma, segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í samtali við DV árið 2011.

Þórólfur virðist hafa gleymt því að Pandemrix svínabóluefnið sem fékk flýtimeðferð hjá eftirlitsstofnunum og fór lítið prófað á markað í sk.„Svínaflensu neyðarástandinu“ sem sérfræðingum sem voru fjárhagslega tengdir lyfjarisunum tókst að magna upp úr öllu valdi enn Pandemrix var með tímeresal rotvarnarefni eða hið hefðbundna kvikasilfurefni, sem flestir framleiðendur voru farnir að forðast. Í öllu þessu ímyndaða neyðarástandi var allri nákvæmni sleppt og kvikasilfrinu laumað aftur í bóluefnið, en auk þess var nýtt efni, ónæmisglæðirinn "Skvalen", einnig í bóluefnasprautunni en "Skvalen" er af sérfræðingum talið mun alvarlegra en kvikasilfrið sjálft. Þess ber einnig að geta að sk. "tímeresal" er alls ekki eini þátturinn í bólusetningum sem tengdur er taugasjúkdómum.

CR (IP-tala skráð) 11.3.2021 kl. 13:45

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Vagn, hér er áreiðanlegur fréttamiðill frá Ástralíu. Þetta er víst rétt hjá þér. Hann fékk sem sagt Astra 8. mars, lagður á spítala 9. mars vegna húðsýkingar og verður frá í tvær vikur!!
https://www.skynews.com.au/details/_6238340763001?fbclid=IwAR1sZtXe109MdlS7JQen2Rm4saiNd2FHQt7PmE1eOldLAdNmDoTpVx7dqsk

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 11.3.2021 kl. 19:07

5 Smámynd: Lárus Baldursson

Spánverjar hafa lagt það til innan ESB að það verði tekið upp bólusetningarvottorð innan sambandsins samkvæmt frétt á Sky news og þegar spánverjinn var spurður um það hvort þeir sem væru bólusettir þyrftu ekki að fara í 14 daga sóttkví að og myndu sleppa við aðrar takmarkanir en spánverjinn svaraði því neitandi og þá missti spyrillinn áhugan, og sannar það að það væri alveg eins hægt að sprauta fólk með glúkósa, því þessi lyf sem kölluð eru bóluefni eru það ekki heldur etthvað sem tekur úr sambandi ónæmiskerfi líkamans eða hreinsunardeildina og eru þess vegna stór hættuleg en það kemur ekki í ljós fyrr en eftir sirka hálft til eitt og hálft ár.

Lárus Baldursson, 12.3.2021 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband