Leita í fréttum mbl.is

Heilbrigðisráðherra Ástralíu útskrifaður af sjúkrahúsi

huntEins og helstu fjölmiðlar hér heima greindu nýlega frá var heilbrigðisráðherra Ástralíu, Greg Hunt, fluttur á sjúkrahús daginn eftir að hann fékk tilraunabóluefnið AstraZeneca.

Hann tók bóluefnið til að hvetja Ástrala sem kunna að vera hikandi við bólusetningu. (Nei nei, fjölmiðlar sögðu ekkert frá því enda eru þeir allir á styrkjum frá ríkinu og þurfa því að gæta orða sinna).
Mogginn komst þó næst því, því bloggið mitt er í eigu Moggans og því má segja að ég sé blaðamaður hjá Mogganum ;) Sjá fréttina hér.

Í gær sendi ráðherrann frá sér tilkynningu og sagðist vera laus af spítalanum eftir að hafa fengið Cellulitis eða húðnetjubólgu í vinstri fótlegg. Hann tók ekki fram að veikindin væru alls ótengd bólusetningunni eins og einhverjir fjölmiðlar höfðu gert sem nefndu einnig að veikindi hans gætu haft neikvæð áhrif á almenningsálitið, sem sagt öfugt við markmiðið.

mediastatment

Heilbrigðisráðherrann setti tilkynninguna meðal annars á twitter þar sem má lesa ummæli fólks við fréttina, aðallega Ástrala sýnist mér. Þar benda menn á að Cellulitis sé skráð sem ein helsta aukaverkun AstraZeneca. Einn spyr ráðherrann hvers vegna hann hafi fengið sprautuna í fótlegginn!
leg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Þórdís, 

Takk fyrir þessar upplýsingar, en það rétt hjá þér, að þessir lélegu ritstýrðu fjölmiðlar hér (já og fjölmiðlar á styrkjum frá ríkinu) vilja alls ekki fjalla um alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar, hvað þá um öll þessi fórnarlömb bólusetninga og/eða hvað þá um þessi hættulegu erfðabreyttu innihaldsefni í bóluefnunum. Allt er gert hér til þess að koma inn áróðrinum fyrir bólusetningum, og þannig svona algjörlega einhliða, svo og með drottningarviðtölum á RÚV, nú og alltaf er passað upp á, að ræða EKKI við einhver sem hefur eitthvað á móti bólusetningum. Þessir fjölmiðlar ræða ekki við fólk sem að hefur eitthvað á móti bólusetningum, heldur eins og segir um okkur, og EKKI við okkur. Á athugasemdar- kerfum hjá DV, Vísir og Hringbraut eru svo allar neikvæðar athugasemdir teknar niður í sambandi við bólusetningar.   

Hvernig stendur á því að ekki var fjallað um þessar fréttir hér (fyrir neðan )varðandi þá dauðsföll í Suður Kóreu og Sikiley (Ítalíu) eftir bólusetningar með þessu AstraZeneca bóluefni? 

SEOUL (Reuters) - South Korean authorities are investigating the deaths of two people, both with pre-existing conditions, who died within days of receiving AstraZeneca's COVID-19 vaccine.

Three more people die after receiving AstraZeneca vaccine in S. Korea,

Italy bans AstraZeneca batch following two deaths in Sicily


          

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.3.2021 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband